17.05.1976
Efri deild: 116. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4396 í B-deild Alþingistíðinda. (3765)
282. mál, löggiltir endurskoðendur
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið til athugunar frv. til l. um löggilta endurskoðendur. N. leggur til að það verði samþ. með lítils háttar breytingu við 2. gr., en 4. liður 2. gr. orðast svo:
„Ráðh. veitir löggildingu til endurskoðunar manni sem....4) hefur eftir 18 ára aldur unnið að alhliða endurskoðunarstörfum undir stjórn löggilts endurskoðanda samtals í 3 ár, þar af a.m.k. 11/2 ár að loknu brottfararprófi frá viðskiptadeild.“
N. leggur til, að þessu ákvæði verði breytt úr einu og hálfu í eitt ár. Það er mikilsvert að menn hagnýti sér þekkingu sína að námi loknu úti í atvinnulífinu í einhvern tíma að loknu námi, en hins vegar taldi n. að það væri kannske fullmikið, að um 11/2 ár væri að ræða og varð því sammála um að mætti lækka þetta í eitt ár. Nemendur viðskiptadeildar töldu, að óþarfi væri að hafa slíkt ákvæði, og fóru þess á leit í bréfi að það yrði numið í burtu, en n. varð sammála um að milda þetta ákvæði á þennan hátt.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Það fylgir því góð grg. og eins hefur hæstv. fjmrh. gert grein fyrir því í framsögu sinni. Ég vil aðeins ítreka það að n. hefur orðið sammála um að frv. verði samþ., en fjarverandi afgreiðslu málsins var Albert Guðmundsson.