17.05.1976
Neðri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4414 í B-deild Alþingistíðinda. (3811)
64. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga
Frsm. (Ólafur G. Einarsson):
Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn þessarar hv. d. hefur frá því snemma á þingtímanum haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. um verðtryggingu fjárskuldbindinga. Þetta frv. var flutt af hv. þm. Ellert B. Schram. Hann flutti það einnig á síðasta þingi, en þá var það ekki útrætt í n. og kom þess vegna ekki til afgreiðslu í þd. Sá dráttur, sem orðið hefur á afgreiðslu málsins frá n., stafar ekki af áhugaleysi nm. á málinu. Þvert á móti hefur öllum nm. verið ljóst frá byrjun að nauðsyn sé á setningu reglna um verðtryggingu kaup- og verksamninga. Þessi nauðsyn hefur orðið sérstaklega ljós á undanförnum missirum þegar mikil verðbólga hefur verið í landinu.
Frv. var sent til umsagnar þriggja aðila: Seðlabankans, Meistarasambands byggingarmanna og Húsnæðismálastjórnar ríkisins. Seðlabankinn mælir með því að frv. nái fram að ganga, en það hafði Seðlabankinn einnig gert í umsögn um sama mál á síðasta þingi. Í umsögn Seðlabankans er bent á að mikillar réttaróvissu gæti um heimildir til beitingar vísitölu í verksamningum, sölusamningum um fasteignir og íbúðir og verktakasamningum. Örri verðbólguþróun fylgi hve erfitt sé að greiða fyrir notkun vísitöluákvæða, t.d. í sölusamningum um íbúðir, þar sem langur tími liði frá samningsgerð til afhendingar. Jafnframt bendir Seðlabankinn á nauðsyn þess að settar verði reglur sem veiti kaupendum vernd.
Meistarasamband byggingarmanna mælir eindregið með samþykkt frv. Í umsögn Meistarasambandsins segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Fyrirtækjum innan vorra raða, sem standa í byggingu íbúða til sölu, hefur á undanförnum árum verið bannað að verðtryggja íbúðirnar á byggingartímanum, en þeir einstaklingar, sem kaupa hjá þeim íbúðir á byrjunarstigi byggingar, geta oft selt þessar íbúðir í lok byggingartímans fyrir tvöfalt verð. Með slíkum reglum er ekki verið að stuðla að eðlilegum viðskiptaháttum,“ segir í þessari umsögn.
Húsnæðismálastjórn segir í lok umsagnar sinnar:
„Að öllu athuguðu virðist stjórninni því leið þessi“ — þ.e. leiðin sem frv. gerir ráð fyrir — „vera varasöm, þótt hún sé eindregið þeirrar skoðunar að réttar hækkanir vöruverðs og vinnulauna hljóti að bætast við söluverð íbúða. Húsnæðismálastjórn bendir hins vegar á verðbótaleið svonefnda sem stofnunin hefur notað og ýmsir opinberir aðilar raunar einnig. Hér er um að ræða nokkurs konar málamiðlunarleið sem fundin var upp af húsnæðismálastjórn 1973. Með því kerfi er samið um dulbúna verðtryggingarleið þar sem vísitala er ekki nefnd, en ákveðið að aðalþættir við byggingu húsnæðis séu færðir upp í samræmi við verðlagsbreytingar á byggingartíma. Það verður að draga í efa að þessi aðferð dugi á hinum almenna íbúðarsölumarkaði þar sem opinberum aðila er ekki til að dreifa til eftirlits.“
Ég þarf ekki að hafa fleiri orð um þau atriði sem fram koma í umsögnum þessara þriggja aðila.
Eins og fram kemur í nál. fjh.- og viðskn. á þskj 820 mælir n. einróma með því að þetta frv. verði samþ., en með ákveðinni breytingu á orðalagi 1. gr. og reyndar að nokkru með breytingu á efni hennar. Það er fellt niður tímamarkið, 12 mánuðir, sem í frv. greindi, þ.e. að verðbætur greiðist ekki vegna samninga sem tekur skemmri tíma en 12 mánuði að framfylgja. Í öðru lagi er bætt inn ákvæði þess efnis að verksamningar, sem verðtryggingar skuli njóta, verði að vera gerðir samkv. reglum sem félmrn. setji. Með þessu telur n. að tryggður verði réttur verkkaupa eða kaupanda þar sem n. á við með þessu ákvæði að félmrn. láti útbúa ákveðið form fyrir þessa samninga. Samkv. brtt. n. mundi 1. gr. frv. hljóða svo:
„Við 2. gr. l. bætist ný mgr., svo hljóðandi: Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. er heimilt að kveða svo á í kaup- og verksamningum um hús, húshluta eða önnur mannvirki að söluverð megi breytast í samræmi við breytingar á verðlagsvísitölu frá þeim tíma, sem verk skal hefjast, og til afhendingardags, enda hafi afhending ekki dregist vegna vanefna seljanda eða verksala. Slíkir verksamningar skulu vera samkv. reglum sem félmrn. setur.“
Þetta er einróma till. fjh.- og viðskn. Og ég læt í ljós þá von, þótt álit n. sé seint á ferðinni, að það takist að afgreiða þetta frv. sem lög frá því Alþ. sem nú situr.