17.05.1976
Neðri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4416 í B-deild Alþingistíðinda. (3814)
238. mál, ferðamál
Frsm. (Friðjón Þórðarson):
Virðulegi forseti. Samgn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um skipulag ferðamála. Svo sem hv. þm. er kunnugt eru gildandi lög um ferðamál nr. 4 frá 1969, en að meginstofni til eru þau frá árinu 1964. Þessi lög, sem voru góð og gild á sínum tíma og gerðu mikið gagn, eru nú orðin þetta gömul, og framámenn og áhugamenn í ferðamálum hafa litið svo á að nauðsynlegt væri að endurskoða þau og samræma þau þróun tímans. Þess vegna hafa verið flutt frv. nokkrum sinnum á árunum eftir 1970 sem þó hafa ekki náð fram að ganga af ýmsum ástæðum.
Frv. þetta var lagt fyrir hv. Ed. og afgreitt þaðan. Ég hygg að allir þm. hafi kynnt sér það að nokkru. Okkur var að sjálfsögðu ljóst að það er ekki vist að allir séu ánægðir með frv. Þó hafa aðeins smávægilegar breytingar verið gerðar á því í Ed. En að öllu athuguðu og þar sem þetta frv. eða svipuð frv. hafa verið hér til meðferðar á undanförnum þingum, þá litu nm. í samgn. svo á að annaðhvort væri að afgreiða málið nú eða láta það liggja einu sinni enn. Þeir náðu allir samstöðu og leggja til að athuguðu máli að frv. verði samþ. að öllu leyti eins og Ed. afgreiddi það.