17.05.1976
Neðri deild: 111. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4426 í B-deild Alþingistíðinda. (3834)
192. mál, jafnrétti kvenna og karla
Svava Jakobsdóttir:
Herra forseti. Orðið jafnstaða er nýyrði og það er raunar enginn þess umkominn að skýra nákvæmlega hvað það þýðir. Það hefur verið túlkað svo á allra síðustu vikum og dögum að það þýddi jafnrétti í reynd, en orðið jafnrétti þýddi aðeins lagalegt jafnrétti. Ég tel að fyrir þessari túlkun séu ekki málrök, og ég tel mjög varasamt að útrýma orðinu jafnrétti úr þeirri mannréttindabaráttu sem kvenfrelsisbaráttan er. Orðið jafnrétti er skylt og leiðir hugann að orðum eins og réttur, réttindi, réttlæti og þessi tengsl víl ég ekki sjá hverfa úr þeirri baráttu, sem konur heyja fyrir rétti sínum.
Ég get bætt því við, herra forseti, að þegar ég heyri orðið jafnstaða, þá detta mér einhverra hluta vegna í hug íþróttir, helst hlauparar sem bíða viðbúnir eftir að skotið hlaupi af, og orðið réttlæti er þá víðs fjarri huga mínum. Mér finnst orðið jafnstaða ákaflega stressandi. Ég segi já.