17.05.1976
Efri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4440 í B-deild Alþingistíðinda. (3854)
251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Jón Árnason:
Herra forseti. Frsm. sjútvn., hv. 2. þm. Vestf., hefur gert grein fyrir þeim till. sem n. fl.ytur sameiginlega á þskj. 848. Ég hef engu við það að bæta sem þar kemur fram. Hann hefur skýrt greinilega frá niðurstöðu n. varðandi afgreiðslu þessa máls. Á þessu þskj. eru, eins og ég sagði áðan, þær till. sem n. kom sér saman um að flytja sem breytingar við þessa umr.
Svo kemur aftur brtt. við frv. sem við hv. 1. þm. Vesturl. og hv. þm. Stefán Jónsson, 5. þm. Norðurl. e., höfum leyft okkur að flytja á sérstöku þskj., 852. Þar er um að ræða að færa frekar út línuna í verndarskyni fyrir botnvörpuveiðum út af Snæfellsnesi. Er þar um veiðisvæði að ræða sem kom samhljóða beiðni um frá stjórn Útvegsmannafélags Snæfellsness. Þetta er það eina sem þeir eru alveg sammála um og voru sammála um að fara fram á við okkur þm. Vesturl. að fl.ytja til breytingar við fiskveiðilagafrv. sem hér er til umr.
Þetta veiðisvæði, sem hér um ræðir og um getur á þskj. 852, er þvert út af Snæfellsjökli og á þessu veiðisvæði hafa netaveiðar og línuveiðar aðallega verið stundaðar. Nú var það svo síðast á þeirri vertíð, sem nú er nýlokið, að bátarnir voru, þegar kom fram um mánaðamótin apríl og maí, hraktir af þessu svæði vegna þess að þá var það opnað fyrir togveiðum, og urðu þeir að hrekjast burt með sín veiðarfæri og togararnir komu í staðinn. Nú sýnist það vera svo, þegar þannig er ástatt með okkar fiskstofna að það er sýnilegt að þar sem togarar hafa heimild til að veiða, þar getum við náð meira magni heldur en við þurfum á að halda, þá ættum við ekki að ásælast þessi mið sem eru svo nærri landi og vitað er að hafa verið fyrst og fremst hagnýtt af bátaflotanum. Nú er það svo með Breiðafjörðinn eða þær verstöðvar sem eru á Snæfellsnesi og stunda fiskveiðar í Breiðafirði og út af honum, að þar er aðallega um bátaveiðar að ræða með net og línu. Aðeins einn skuttogari hefur verið keyptur í þessar verstöðvar. Það segir sig því sjálft að það er mjög nauðsynlegt fyrir þessa útgerð að hún fái það rúma afstöðu í kringum sinar heimastöðvar að menn geti á nokkuð öruggan hátt veitt í þau veiðarfæri sem þeir ráða yfir.
Á umræddu þskj. höfum við leyft okkur að flytja tvær brtt. við 3. gr.:
Í fyrsta lagi með leyfi forseta:
„E 1 orðist svo: Utan línu, sem dregin er 5 sjómílur utan við Geirfugladrang úr punkti í 5 sjómílna fjarlægð réttvísandi suður frá Geirfugladrang í punkt í 10 sjómílna fjarlægð réttvísandi vestur frá Malarrifi (vms 39) er heimilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu.“ Í öðru lagi:
„F 1 orðist svo:
Utan línu, sem dregin er úr punkti í 18 sjómílna fjarlægð réttvísandi vestur af Malarrifi (vms 39) í punkt í 12 sjómílna fjarlægð réttvísandi vestur frá Bjargtöngum (vms 44) er heimilt að veiða með botnvörpu og flotvörpu allt árið.“
Því miður fylgir ekki þessu þskj., eins og hefði verið æskilegt til þess að gera mönnum fyllilega grein fyrir hvað hér væri um stórt veiðisvæði að ræða, kort sem sýndi þetta. En hér má segja að ekki sé um stórt veiðisvæði að ræða, en það er ákaflega þýðingarmikið — og það vil ég leggja áherslu á — fyrir verstöðvar við innanvert Snæfellsnes og Breiðafjörð að fá að halda þessu svæði til þess að hagnýta með netaveiði og línu.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess, herra forseti, að orðlengja frekar um þetta, en vænti þess að hv. d. vilji fallast á að samþykkja þessar brtt.