17.05.1976
Efri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4442 í B-deild Alþingistíðinda. (3858)

254. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Frv. þetta er samið af n., eins og fram kemur í aths. við frv., og er um Fiskveiðasjóð Íslands. Ég vil vísa til þess sem ég sagði hér við 1. umr. málsins um þær breytingar sem felast í þessu frv. varðandi stjórn Fiskveiðasjóðs, að ég tel að þar sé stigið spor í rétta átt og þeir aðilar sem málið varða, eins og ég gat um þá, útvegsmenn og sjómenn, geti sætt sig við þá aðstöðu sem þeim er sköpuð í sambandi við störf sjóðsstjórnarinnar.

Aðrar breytingar frá gildandi lögum eru t.d. að nú er gert ráð fyrir því að sjóðsstjórnin fái heimild til þess að veita lán út á notuð skip, en það hefur ekki verið áður. Það er enginn vafi á því að þessi þáttur í starfsemi Fiskveiðasjóðs er nauðsynlegur. Við vitum að það hefur stundum verið auðveldara fyrir þá, sem hafa viljað ráðast í útgerð, að byggja nýtt heldur en kaupa gamalt vegna þess að lánakjör hafa verið með þeim hætti.

Þá er annað, sem þetta frv. felur í sér, sem er nýr þáttur í störfum Fiskveiðasjóðs, en það er að taka upp tæknideild. Það segir sig sjálft að slík starfsemi getur verið stjórn sjóðsins nauðsynleg, að geta borið sig saman í sambandi við ýmsar ákvarðanir um lánveitingar við aðila sem ræður yfir tækniþekkingu í sambandi við skipabyggingar og aðra þá þætti í lánastarfseminni sem Fiskveiðasjóði er ætlað að fjármagna. Eru það m.a. fiskvinnslustöðvar fyrir utan skipabyggingar.

Að öðru leyti má segja um ýmislegt í þessu lagafrv., sem er um heildarlög fyrir Fiskveiðasjóð, að þar sé um tilfærslu að ræða frá gildandi lögum og millifærslu. Hæstv. sjútvrh. gerði allítarlega grein fyrir þessu frv. þegar það var hér til 1. umr., og vísa ég að öðru leyti til þess sem fram kom í ræðu ráðh.

Í n, var afgreiðsla málsins þannig að menn voru á einu máli um að mæla með samþykkt frv., en eins og fram kemur í nál. áskilja þeir sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma við afgreiðslu málsins. Ég vil því, herra forseti, leyfa mér að mæla með því að þetta frv. verði samþ. óbreytt og því síðan vísað til 3. umr. að umr. lokinni.