17.05.1976
Efri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4443 í B-deild Alþingistíðinda. (3859)
254. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Í sjútvn. varð ekki samstaða um þetta mál þótt við vildum ekki halda því þar.
M.a. vil ég geta þess að það er ákaflega mikil óánægja hjá ýmsum þm. um meðferð þessa máls. Það hefur ekki unnist tími til þess, hvorki í Nd. né Ed., að leita umsagnar nokkurs staðar um málið. Okkur er sagt að þetta sé undirbúið í samráði við fulltrúa atvinnuveganna og sé jafnvel loforð sem hafi verið gefið í sambandi við sjóðaumsköpunina sem farið hefur fram, En ég tel að það sé ekki þingræðisleg meðferð á slíku máli að gera ekki n. þingsins kleift að leita umsagna, eins og hún telur nauðsynlegt, og það tel ég í þessu tilfelli. Ég gæti nefnt ýmsa aðila sem ég hefði viljað fá umsagnir frá um þetta mál.
Ég vil jafnframt geta þess, að ég fyrir mitt leyti og fleiri í n. erum ekki ásáttir með 6. gr. frv. þar sem gert er ráð fyrir hreytingu á stjórn Fiskveiðasjóðs. Nú sitja í Fiskveiðasjóðsstjórninni 5 bankastjórar, en gert er ráð fyrir því að þeir verði hér eftir að vísu aðeins 3, einn stjórnarmaður verði skipaður af ráðh. án tilnefningar, en við bætist síðan þrír sem eru tilnefndir af aðilum atvinnuvegarins. Ég segi fyrir mitt leyti að ég tel rangt að bankastjórar sitji í sjóðsstjórnum. Þeir eiga að stjórna sínum bönkum með tilliti til þess sem réttast er með hagsmuni bankans í huga, en þeir eiga ekki að ákveða stefnu og störf sjóða sem starfa utan bankanna.
Ég vildi einnig gjarnan fá svar við því að nú stendur í lögum að bankastjóra Seðlabankans er ekki heimilt að taka sæti í nefndum eða stjórnum eða yfirleitt taka að sér nein önnur störf utan Seðlabankans nema með leyfi ráðh. Ég vil gjarnan fá upplýst t.d. hvort núv. viðskrh. er reiðubúinn að veita bankastjóra Seðlabankans leyfi til að setjast í stjórn Fiskveiðasjóðs. Ef hann er það ekki, þá er náttúrlega tilgangslaust að vera að setja hann þarna í stjórn. Ég álít, að bankastjórar Seðlabankans eigi að stjórna fjármálum síns banka og raunar þjóðarinnar án tillits til annarra stofnana og eigi því ekki að sitja í stjórnum annarra stofnana. Það er alltaf mannlegt, og það er ekki óeðlilegt, að taka í sinum ákvörðunum tillit til þeirra hagsmuna sem þeir þar með kunna að fara með í slíkum sjóðsstjórnum.
Ég vil upplýsa það hér að ég hef rætt þetta mál í þingflokki Framsfl. og þar hafa ráðh. óskað eftir því að fá að athuga málið nánar áður en ég legg fram brtt. sem ég hef tilbúna. Ég ætla því ekki að leggja brtt. fram nú, en ég áskil mér rétt til að flytja þessa brtt. við 3. umr, um málið. Hins vegar er það von mín að forseti fresti þessu máli og veiti ríkisstj. tækifæri til að skoða það betur.