17.05.1976
Efri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4445 í B-deild Alþingistíðinda. (3862)

127. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Landbn. hefur haft til meðferðar á fundum sínum frv. til l. um breyt. á l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o.fl. Lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins hafa nú staðið í hartnær 30 ár og á þessum lögum hafa áður verið gerðar a.m.k. tvær allveigamiklar breytingar. Að þessu sinni eru nokkur veigamikil atriði tekin til endurskoðunar, en jafnframt er rétt að geta þess að heildarendurskoðun laganna stendur fyrir dyrum. Ég vil í örfáum orðum gera grein fyrir því í hverju þær breytingar eru fólgnar sem nú er ráðgert að gera á lögunum.

Fyrst er að fjölgað er í Framleiðsluráði landbúnaðarins um tvo menn, en það er gert samkv. ósk Stéttarsambands bænda vegna þess að fjölgað var í stjórn sambandsins og frá upphafi og þangað til fjölgað var í stjórninni voru allir stjórnarmenn Stéttarsambandsins í Framleiðsluráði, en auk þeirra skipa Framleiðsluráð 4 fulltrúar sem kjörnir eru af sölusamtökum landbúnaðarins.

Þá er rétt að geta þess að hér er gert ráð fyrir að leyfi þurfi til slátrunar stórgripa: nautgripa og hrossa, en fram að þessu hafa slátrunarleyfi verið bundin við sauðfé. Enn fremur er gert ráð fyrir að landbrh. geti gert það að skil.yrði fyrir slátrun svína og alifugla að sérstakt slátrunarleyfi þurfi til.

Þá er það að veruleg breyting er gerð á lögunum varðandi dreifingu mjólkur, og eins og hv. dm. er kunnugt er meginbreytingin sú að gert er ráð fyrir að nýmjólk verði verðlögð í heildsölu og dreifing nýmjólkur komist á fleiri hendur en verið hefur áður og einkaleyfi vinnsluaðilanna til mjólkursölu í smásölu verði niður fellt. Um þetta atriði hafa vissulega verið verulegar deilur á undanförnum árum og skiptar skoðanir. En ýmislegt í breyttum verslunarháttum veldur því að menn hafa hallast að því máli, að rétt væri að hafa þetta fyrirkomulag á. Það hlýtur að koma í ljós þegar lögin hafa verið reynd hvort þetta reynist spor í rétta átt eða ekki. En með þessu móti er gert ráð fyrir að allir þeir, sem uppfylla ákveðnar kröfur um búsnæði og heilbrigðisaðstöðu í verslunum sínum, geti fengið leyfi til að selja nýmjólk.

Þá vil ég geta þess að í þessu frv. eru ákvæði um verðjöfnun sem eru nokkru ákveðnari en verið hefur. Þar er gert ráð fyrir a.m.k. þrenns konar verðjöfnun. Í fyrsta lagi verðjöfnun sem stafar af því að sérlega kostnaðarsamt og erfitt geti verið að flytja mjólk til ákveðinna staða og dæmi um slíkt er á Vestfjörðum, en þangað hefur þurft að flytja mjólk með mjög miklum tilkostnaði yfir vetrarmánuðina þegar mjólkurframleiðsla hefur verið of lítil á svæðinu og ekki verið um að ræða að flytja mjólkina á bílum. Það þykir rétt og sjálfsagt að neytendur á Vestfjörðum greiði sama verð fyrir mjólkina og neytendur annars staðar, en þess vegna þarf að vera ákveðin heimild í lögum til þess að hægt sé að dreifa þessum kostnaði, og hér er gert ráð fyrir að þeim kostnaði sé dreift á neytendur. Að vísu vil ég gjarnan segja það hér að það geta verið fleiri aðferðir skynsamlegar í því efni, og raunar tel ég að það sé mál allra landsmanna að jafnaður sé aðstöðumunur eins og þessi, þannig að vel geti komið til greina að fé til þessara sérstöku flutninga, sem stafa af tímabundnum skorti á vörum á ákveðnum stöðum, kæmi annars staðar að heldur en af verði landbúnaðarvaranna sjálfra, en í þessu frv. er gert ráð fyrir því að þetta verði tekið af verði landbúnaðarvaranna.

Í öðru lagi er hér um að ræða verðjöfnun sem stafar af því að tilkostnaður mjólkurbúanna og annarra vinnslustöðva landbúnaðarins við móttöku, vinnslu og dreifingu varanna er mjög mismunandi. Það, sem einna ólíkast er eins og nú háttar, er fjármagnskostnaður, en geysilegur aðstöðumunur er hjá þeim búum, sem annars vegar búa við eldra húsnæði, en vel nýtanlegt, og hins vegar þeirra, sem búa við nýtt húsnæði og mjög dýrt í krónum talið. Hér er gert ráð fyrir að hægt sé að verðjafna á milli þessara staða að fullu, eins og raunar hefur verið gert að verulegu leyti í reynd, en ekki til fulls, og með því gert ráð fyrir hvoru tveggja, að neytendur fái vörurnar alls staðar á sama verði og bændur fái sambærilegt verð fyrir vöruna hvort sem þeir búa við nýtt eða eldra húsnæði eða annan óviðráðanlegan mismunandi kostnað við vinnslu og dreifingu varanna.

Loks er svo gert ráð fyrir því að ef ekki næst fullt verð fyrir útfluttar landbúnaðarvörur með aðstoð þeirra fjárhæða sem ríkið ver til þess, þá sé heimilt að jafna niður á bændur kostnaði af útflutningi þannig að þeir, sem verða fyrir því að þurfa að flytja út landbúnaðarvörur án þess að fá fullar verðbætur eða kunna að verða fyrir slíku, fái sams konar verð og aðrir, þ.e.a.s. verði verðjafnað á milli bændanna ef svo tekst til að þarf að flytja út vörur án þess að verðið verði greitt að fullu annars staðar að, annaðhvort af verði varanna eða með útflutningsuppbótum.

Ég held að það sé ekki ástæða til að ég flytji langt mál um þetta. Aðalefni þessarar breytingar er sem sagt tvenns konar, þar sem mestu máli skiptir annars vegar breyting á fyrirkomulagi á sölu mjólkur og hins vegar lögfesting á ákvæðum í sambandi við verðjöfnun sem þó að verulegu leyti hafa verið framkvæmd eins og hér er gert ráð fyrir í lögum, þó að það hafi ekki verið gert að fullu.