17.05.1976
Efri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4452 í B-deild Alþingistíðinda. (3869)
270. mál, ábúðarlög
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Hér er um allmikinn lagabálk að ræða, og ég hlýt að harma það hve hraði þessa máls er mikill hér í þessari hv. d. Vísaði frsm., hv. þm. Steinþór Gestsson, áðan í framsögu ráðh. fyrir þessu máli. Þessi framsaga fór algerlega fram hjá mér vegna tiltölulega stutts símtals sem ég átti, svo að ekki hefur framsagan verið mjög ítarleg.
Við í landbn. höfum í raun aldrei fjallað um þetta frv. sem slíkt. Varðandi jarðalögin, sem eru bálkur sem er náskyldur þessu og lagabálkur sem þarf að taka samhliða, þá komu þó nefndir beggja d. saman á einum fundi fyrir frumkvæði formanns og frsm. landbn., en fyrir því hafði ekki hv. landbn. Nd. að hafa hið minnsta samráð við okkur í Ed. við þá umfjöllun sem þeir höfðu um frv.
Ég hef hlaupið yfir þetta frv. og skal játa að ég hef alls ekki gert mér grein fyrir þeim breytingum sérstaklega sem eru í þessu frv. frá því frv. til ábúðarlaga sem var hér til meðferðar í þinginu fyrir tveimur árum eða svo. Það, sem ég sé í frv. og aths. þess, tel ég þó að nokkru til bóta og hef þess vegna á það fallist að skrifa undir nál.
Ég sé ekki ástæðu til þess að flytja neinar brtt. við þetta frv. Til þess hefur ekki unnist tími og væntanlega gefst glöggum mönnum síðar færi á því að flytja brtt. við ábúðarlögin í heild ef þarna koma einhver þau ákvæði í ljós sem ekki eru nógu góð. Þó rak ég mig á eitt atriði fyrir tilviljun þegar ég var að lesa þetta yfir og veit ég ekki hvort það er gamalt eða nýtt. Það er varðandi úttekt á jörð sem hingað til hefur verið miðuð við fardaga, en nú sýnist mér miðuð við 20. júní. Það kann að vera að þetta sé þarft, en þó held ég að það hafi verið skemmtilegra að miða við hina gömlu fardaga. Við megum ekki alveg gleyma þeim merku tímamótum.
Í Nd. skilaði fulltrúi Alþfl. séráliti. Ég er nú ekki vanur að taka mjög undir það sem þeir hv. alþfl.- menn segja, og er ekki samþykkur því álíti sem þar kemur fram, enda er það um frávísun á málinu í heild, á máli sem í meginatriðum er gott og til bóta. En ég get þó ekki stillt mig um að taka undir rökstuðninginn fyrir þessari frávísun í tveim atriðum, þ.e.a.s. í lið 1 og 4. Þar er lagt til að frv. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess að hún láti semja nýtt frv. er byggist á eftirfarandi meginatriðum:
1. Að landeigendur, sem ekki búa sjálfir á jörðum sinum, skuli ekki leigja þær, heldur selja ef hæfir kaupendur fást sem vilja búa á þeim og nýta þær. Finnist slíkir kaupendur ekki skulu sveitarfélög eða ríki kaupa jarðirnar.
Þetta atriði í hinni rökst. dagskrá Benedikts Gröndals, hv. þm., get ég sem sagt fúslega tekið undir. Við vitum allt of mörg dæmi um jarðir t.d., sem ekki eru setnar af ýmsum duttlungum manna hreinum, og það er vissulega ástæða til þess að herða á ákvæðum þar um. Við lestur á þessu ábúðarlagafrv. sé ég ekki að það sé nægilega tryggt að menn geti ekki eftir sem áður skilið eftir góðar bújarðir í eyði og ekki nýtt þær.
Og svo er 4. liðurinn sem ég er út af fyrir sig algerlega sammála, þ.e.a.s. varðandi hugtök. Það er vist fullkomin ástæða til þess að huga eins að hugtökum og orðum í íslensku máli eins og einstökum bókstöfum, eins og nú eru hér mest á dagskrá. Það segir í 4. líð aths. hv. þm., Benedikts Gröndals:
„Hugtök og orð eins og landsdrottinn og Íeiguliði verði ekki notuð í íslenskri löggjöf í framtíðinni.“
Ég vil alveg sérstaklega taka undir þetta tvennt. Þetta eru hvimleið og ástæðulaus orð og gefa til kynna annað en þau í raun merkja, a.m.k. að mínu mati. Ég held að það hefði verið mikil bót að því að fella niður þessi orð: landsdrottinn og leiguliði. Það hlýtur að hafa verið hægt að finna þarna betri orð. En sem sagt, ég vil aðeins harma það að við skulum ekki hafa fengið tækifæri til að fjalla um þennan mikla lagabálk á sama hátt og við þó fjölluðum um jarðalögin. Þetta frv. var lagt allt of seint fram á þessu þingi, og ég er engan veginn að ásaka hv. formann landbn. vegna þess að þetta var með samkomulagi við okkur gert til þess einfaldlega að málið næði hér fram að ganga. En ég átel vinnubrögð hæstv. ráðh. að leggja viðamikinn lagabálk eins og þennan fram á síðustu dögum þingsins og ætlast til að hann sé þá afgreiddur án þess að menn í raun og veru geti kynnt sér hann nægilega.