17.05.1976
Efri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4460 í B-deild Alþingistíðinda. (3880)
115. mál, íslensk stafsetning
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Við þm. höfum fengið undanfarna daga, sérstaklega 3 eða 4 síðustu daga, margar áskoranir með og á móti umræddu frv., og svo virðist sem þessir ágætu kennarar, sem flestir eru sem hafa sent okkur þessi mótmæli, hafi skyndilega vaknað, svo undarlegt sem það er, þessir menn sem eiga að vera vakandi yfir íslensku máli, bæði gerð þess og stafsetningu. Þeir hafa ekki fylgst betur með en svo að þeir allt í einu nú á síðustu dögum þingsins, vegna þess að sagt er frá undarlegu fundarhaldi á Alþ., þá vakna þeir og svo fljótt og skjótt vakna sumir að ég verð að segja það að still á bréfum þeirra til alþm. er varla frá sér sendandi þótt mörg góð nöfn séu undir. Mér virðist að sumir þeirra hefðu mátt æfa sig í venjulegum stíl og venjulegu málfari áður en þeir sendu slíkt frá sér til Alþ., og vegur þeirra er lítt meiri á eftir. Þetta á ekki við um, alla, en þetta á við um suma.
Vegna eðlis málsins verð ég að fá hæstv. menntmrh. hér inn í d. því að ég ætla að beina fsp. til hans í sambandi við þetta mál. Það er ekki hægt að komast hjá því að fá hann inn í d. til að svara hvers vegna hann hafi ekki gert neitt samkv. ályktun sem var gerð hér í júní í sumar. Verð ég að mælast til þess, herra forseti, ef ráðh. er ekki því meira vant við látinn við þingstörf, að hann gefi sér tíma til að fjalla um þetta mál. (Forseti: Ég vil taka það fram við hv. þm. að ég hef þegar gert ráðstafanir til að finna ráðh. í þinghúsinu.) Þá doka ég eilítið við þó að litt sé til setunnar boðið. — Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir að gefa sér tíma til að hlýða á mál mitt hér nokkra stund í Ed. Ég vil þá aðeins fara eilítið aftur á bak í tímaröð í sambandi við þetta z-mál.
Það hefur komið fram hjá mörgum ræðumönnum að þeir töldu breytinguna á sínum tíma, 1973, ekki æskilega, en segja sem svo: Úr því að hún einu sinni hefur átt sér stað, þá er ekki rétt að vera að bæta gráu ofan á svart og skipta aftur yfir. — Hvað sem því líður, þá skeði það hér 1973–74, á þinginu þá, að 121. mál á þskj. 148 er till. til þál. um z í ritmáli. Þar eru 4 flm. og þessi till. til þál. er samþ. 29. apríl 1974:
„Alþingi ályktar að hrundið skuli þeirri ályktun að fella z niður í íslensku máli.“
Svo líða tímar fram og lítið gerist í málinu af hálfu yfirvalda er til þess hafa völd og getu að breyta samkv. þessari ályktun. Af hverju ekki er sinnt ályktun Alþ. vil ég ekki neitt um dæma á einn eða annan veg. En á síðasta sumri koma saman kennarar og gera ályktun, en það eru skólastjórar gagnfræða-, héraðs- og miðskóla, þeir halda ráðstefnu 30. júní til 1. júlí 1975 að Reykholti í Borgarfirði. Þar er ályktun gerð, herra forseti, mjög stutt, sem mér leyfist að lesa upp:
„Fundurinn æskir þess að menntmrh. hlutist til um það að kallaður verði saman fyrir haustið fundur eða fundir íslenskukennara: a) á skyldunámsstigi, b) á héraðs-, mið- og gagnfræðaskólastigi, c) á fjölbrauta- og menntaskólastigi, til þess að ræða breytingar, sem gerðar hafa verið á íslenskri stafsetningu og greinarmerkjasetningu, með tilliti til viljayfirlýsingar alþm. s.l. vor.“
Því miður hefur ekkert gerst í þessu máli, og það var þess vegna sem ég óskaði eftir nærveru hæstv. menntmrh., að hann greindi þingi frá því hvers vegna væri ekki hægt að verða við þessari áskorun og taka málið upp í tæka tíð og reyna að finna heppilega lausn á þessu viðkvæma máli. Ég tel að það hefði verið rétt. Ég er enginn sérstakur fylgismaður þess að taka upp z-una aftur úr því að hún var einu sinni felld burt, en ég vil samt sem áður að bæði Alþ. og forvígismenn íslenskrar tungu geti komið sér saman um það að finna íslenskri stafsetningu ákveðna fótfestu og sé ekki jafnan ruglingur eða skyndileg breyting til í því efni. Hæstv. menntmrh. sagði í ræðu sinni áðan að það væri erfitt að brjóta málið til mergjar efnislega á þeim tíma sem nú er. Ég hugsa að hann hafi átt við tímann á Alþ. Og hann bætti við: „Þetta gæti beðið til haustsins,“ ef ég hef tekið rétt eftir. Það má vel vera að þetta mál geti beðið til haustsins. Engu að síður geri ég þó ráð fyrir að einhver prentun á íslenskum bókum eigi sér stað í sumar og það verður kostnaðarauki að seinka þessu máli. Ég tel því æskilegt, hvernig sem málið fer, að fá um það hreinar línur, ef hægt er að fá það hér á Alþ. nú, hver vilji löggjafarvaldsins er í þessu efni.
Sumir segja að það sé fikt eitt af löggjafanum að vera að ákveða lög um ritmál, en ég er ekki á þeirri skoðun. Tungan hefur verið okkar haldreipi gegnum aldirnar og á að vera það áfram, og ég sé ekkert því til fyrirstöðu að hv. Alþ. setji um það meginlínur hvernig rita á íslenska tungu. Nokkrir þm, kunna að muna eftir því að
Í Noregi urðu harðar deilur eftir stríð um ritmál norskrar tungu, og ég man eftir skeleggum greinum sem ég las þá eftir eitt skáld norðmanna Arnulf Överland, þar sem hann sagði í einni greininni: „Hversu oft skulum við skipta um móðurmál vort og rithátt?“ Og í Noregi gildir því miður ekki einn ritháttur, — ég segi: því miður. Kannski eigum við ekki að vera að dæma um hvernig aðrar þjóðir skrifa sitt mál, en ég hef þó verið það mikið í Noregi mörg undanfarin ár að mér er vél kunnugt um að um þetta standa harðar deilur og ef þeir hefðu borið gæfu til þess á sínum tíma, fyrir nokkrum áratugum, að ritfesta málið, jafnvel með löggjöf, held ég að betur hefði farið miðað við það sem ég hef heyrt. Nú getur vel verið að þeir hafi gert slíkt og ég sé hér að tala of langt aftur í tímann. Þá verð ég leiðréttur í því efni. En ég varð var við þetta á árunum 1958–1965, er ég var alloft í Noregi, að um þetta voru miklar deilur eftir héruðum og raunar aldri manna líka. Ég tel að við eigum að forðast slíkar deilur á Íslandi og setja um okkar mál ákveðinn rithátt og ákveðnar reglur, þó það einfaldar að ekki sé ofviða venjulegum heilbrigðum manni með eðlilega greind. Sumir segja, að z-an sé meira konstrúeruð, stærðfræðilega sett í málið á sínum tíma, heldur en vera eðlileg. Það getur vel verið og um það skal ég ekki dæma. Hitt er á að líta, að z-an er ekki það flókin, finnst mér, að hún geti ekki haldið gildi sínu. Flóknara er að rita suma aðra stafi eins og mismuninn á í og y, og þarf meiri kunnáttu til að tryggja að það sé jafnan gert rétt samkv. uppruna orða. En út í þá sálma vil ég ekki fara.
Fyrir mér vakir það mest að málið komist í höfn nú, að því sé ekki slegið á frest og upphefjist aftur deilur um rithátt á íslenskri tungu sem hefur verið bitbein hér á hv. Alþ. æ ofan í æ. Ég tel það illa farið. Það verður hreinlega að reyna á það hver vilji meiri hl. er hér á Alþ., og þá verðum við að sæta því. Ég vil ekki að Alþ. álykti hér oft um ákveðna þætti og yfirvöld sinni því alls ekki, hvort sem um er að ræða z í ritmáli eða ekki. Alþ. ályktaði á sínum tíma, 29. apríl 1974, að fella bæri niður z í íslensku máli. Síðan hefur ekkert gerst í því efni. Skólamenn hafa komið saman og ályktað um að rétt væri að kalla saman fundi í þessu efni til að ræða málið.
Frv., sem við erum að deila um nú, var lagt fram hér á hv. Alþ. fyrir mörgum mánuðum. Þá steinsváfu skólamenn hver um annan þveran um þetta mál. En skyndilega fer einhver „agitator“ af stað og ýtir við sumum þessara manna og nú flæða yfir okkur, eins og ég sagði áðan, alls konar ályktanir með og á móti, allmiklu fleiri munu vera á móti, sumar heldur klaufalega og hvatvíslega orðaðar. Þetta spáir ekki góðu.
Ég vil hafa meiri festu í íslenskum rithætti heldur en það að nokkrir menn geti breytt honum eftir geðþótta eða duttlungum, hvort sem þeir eru ráðh, eða einhverjir aðrir. Þess vegna vil ég mælast til þess að málið fái afgreiðslu á þessu þingi og reyni á það hverja stefnu Alþ. vill að þetta mál taki. Ég tel það mikilvægt þó að sumir telji þetta ekki skipta miklu máli.