17.05.1976
Efri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4468 í B-deild Alþingistíðinda. (3882)

115. mál, íslensk stafsetning

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Án þess að ég ætli að blanda mér inn í efnislegar umr. um gildi úrskurða í hv. Nd., þá vil ég láta það koma hér fram að forseti Nd. hefur endanlegt úrskurðarvald um málsmeðferð í Nd. svo sem forseti Ed. hefur endanlegt úrskurðarvald um málsmeðferð í Ed.