17.05.1976
Efri deild: 119. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4479 í B-deild Alþingistíðinda. (3897)

23. mál, umferðarlög

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. Ed. hefur á nokkrum fundum fjallað um frv. til l. um breytingar á umferðarlögum. Eins og hv. dm. er kunnugt, þá voru allmiklar breytingar gerðar á þessu frv. í Nd. og var þar veigamest að felld voru niður ákvæði um að tekin yrði upp ný skráning ökutækja. Önnur ákvæði í frv. voru einkum bundin við hækkaða ábyrgðartryggingu og nokkra breytingu á skráningu vélsleða.

Allshn. Ed. kallaði á fund sinn nokkra af þeim mönnum, sem höfðu unnið að samningu frv., og forstöðumann Bifreiðaeftirlits ríkisins, og enn fremur fékk n. skriflega álit Ólafs Walters Stefánssonar um veðsetningar bifreiða og um það á hvern hátt mætti breyta fyrirkomulagi á veðsetningum ef lögfest yrði sú upphaflega till. frv. um skráningu ökutækja sem áður var nefnd. Eftir þessar umr, ákvað n. að leggja til að frv. yrði samþ. óbreytt, en sú skoðun kom fram í n. hjá sumum nm. að fyllsta ástæða væri til að athuga betur en enn hefur verið gert hvort ekki sé rétt að taka upp þá breytingu á skráningu bifreiða sem ráð var fyrir gert í frv. upphaflega. Þykir rétt að það komi fram að nm. töldu sumir að að þessu bæri að vinna sem fyrst með það fyrir augum að athuga enn betur hvort ekki væri þarna þörf breytingar. Að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál, en undir nál. skrifuðu allir hv. nm. allshn. Ed.