17.05.1976
Efri deild: 119. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4480 í B-deild Alþingistíðinda. (3898)
23. mál, umferðarlög
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég skrifa undir þetta nál., eins og hv. frsm. tók fram, en ég er ekki í hópi þeirra sem óska eftir því að endurflutt verði frv. með ákvæðum þeim sem Nd. afmáði úr frv. um skráningu ökutækja. Ég er kannske það íhaldssamur að ég vil halda þessu — ja, kannske séríslenska fyrirbrigði sem verið hefur í þessu efni til þessa — vil halda því áfram og hef ekki sannfærst um þann mikla fjárhagslega sparnað sem af öðru mundi leiða, enda var að mínu viti ákaflega fátt um svör hvað sparaðist raunverulega við breytinguna þegar tillit væri tekið til alls og alls. Það upplýstist hins vegar að höfundar frv., sem kallaðir voru á fund hv. n. í Ed., gátu ekki gefið svör við þeim spurningum öðrum sem þeir voru spurðir um, m.a. um það hvernig ætti að fara með veðsetningu bifreiða, og þó að n. hafi beðið nokkra daga eftir frekari skýringu á því, þá liggja ekki enn fyrir svör frá neinum höfundi frv. um þetta efni. Hér er kannske líka um séríslenskt fyrirbrigði að ræða, og ég er einnig í því efni nokkuð íhaldssamur. Svo mikið er víst, að það opinbera sjálft setur kvaðir á varðandi veðsetningu eða veðtöku í bifreiðum, eins og raunar kemur fram í þessu plaggi sem Ólafur Walter Stefánsson skrifstofustjóri í dómsmrn. sendir, það er varðandi leigubifreiðar, sendibifreiðar og öryrkjabifreiðar, þannig að í dag er það ekki aðeins — og það er kannske ekki það mesta í þessu — að tekið sé veð í bifreið vegna þess að hún gengur kaupum og sölum manna á meðal, heldur tekur hið opinbera veð í þeim bifreiðum sem það gefur eftir aðflutningsgjöld af. Ef viðhalda á veðsetningu bifreiða eins og verið hefur til þessa og setja upp eina allsherjar skrifstofu eða stofnun til þess að viðhalda því, þá hygg ég að það yrði nú nokkuð umfangsmikið, fyrirhafnarsamt og kostnaðarsamt, enda segir í niðurlagi bréfsins frá Ólafi Walter Stefánssyni að hvor þeirra leiða, sem hann hefur áður vikið að, en ég tímans vegna, herra forseti, ætla ekki að fara nánar út í, muni kalla á lagabreytingar og muni einnig leiða af sér nokkra pappírsvinnu ef viðhalda á veðsetningu í því formi sem verið hefur. En varðandi númerabreytinguna, þá endurtek ég, herra forseti, ég hef ekki fengið fram nein þau rök fyrir því að þar sé um þann geysilega fjárhagslega sparnað að ræða sem ýmsir láta liggja að. Þó svo það gæti verið um einhvern sparnað að ræða, þá endurtek ég það, ég er það íhaldssamur á bifreiðanúmer að ég vil að mönnum gefist kostur á að halda þeim ef það er mögulegt þó að þeir skipti um ökutæki, en greiði þá jafnvel hærra umskráningargjald. Þess vegna er ég ekki í hópi þeirra sem óska eftir endurflutningi á frv. með þeim ákvæðum.