17.05.1976
Neðri deild: 112. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4488 í B-deild Alþingistíðinda. (3957)

233. mál, norræn vitnaskylda

Frsm. (Ellert B. Schram):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um norræna vitnaskyldu sem lagt var fram í Ed. og hefur fengið þar afgreiðslu og var samþykkt eins og það var upphaflega lagt fram. Frv. þetta er efnislega shlj. þegar settum lögum eða fram lögðum frv. á þjóðþingum annarra Norðurlanda og fjallar um gagnkvæma vitnaskyldu þegna þessara ríkja.

Allshn. hefur skoðað þetta frv. og mælir eindregið með samþykkt þess og það sama gildir um fylgifrv., 234. mál, sem er frv. til l. um breyt. á l. um meðferð einkamála í héraði. Það er aðeins lagfæring á lögum með hliðsjón af hinu fyrrnefnda frv. Allshn. mælir með samþykkt þessara beggja frv.