18.05.1976
Neðri deild: 115. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4507 í B-deild Alþingistíðinda. (4049)

287. mál, vegalög

Frsm. meiri hl. (Friðjón Þórðarson):

Virðulegi forseti. Samgn. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breyt. á vegalögum, nr. 66 frá 14. júlí 1975. Væntanlega er öllum hv. alþm. kunnugt efni þessa frv., en bað er einungis það að aftan við vegalög nr. 66 frá 14. júlí 1975 komi ákvæði til bráðabirgða, svo hljóðandi:

„Þrátt fyrir ákvæði 10.–11. gr. laga þessara skal bráðabirgðavegáætlun samþykkt einungis fyrir árið 1976 að þessu sinni.“

N. hefur athugað þetta frv., en ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Fjórir nm. leggja til að frv. verði samþ. óbreytt.