18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4509 í B-deild Alþingistíðinda. (4060)
133. mál, Menningarsjóður Norðurlanda
Frsm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Utanrmn. hefur rætt þetta mál og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess. Ástæðan til þess að breyta varð samþykktinni um Menningarsjóð Norðurlanda var sú að vorið 1976 voru gerðar breytingar á stofnskrá Menningarsjóðsins í kjölfar þess að breytingar höfðu verið gerðar á sáttmálanum um menningarsamstarf Norðurlanda. Breytingarnar voru fyrst og fremst formlegs eðlis, en ein breyting var efnislegs eðlis, og hún var sú að verksvið stjórnar Menningarsjóðsins var víkkað þannig að heimildir hennar til þess að styrkja menningarsamstarf Norðurlanda voru auknar þannig að t.d. getur nú stjórn sjóðsins veitt fé til samstarfs á sviði íþróttamála og raunar nokkurra efna annarra. Að öðru leyti felast ekki efnisbreytingar í þessum nýja samningi sem utanrmn. var einróma um að mæla með að yrði samþykktur.