18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4519 í B-deild Alþingistíðinda. (4076)

206. mál, ráðstafanir til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búseturöskun í Norður-Þingeyjarsýslu

Frsm. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Atvmn. hefur haft til athugunar till. á þskj. 435 til þál. um ráðstafanir til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búseturöskun í Norður-Þingeyjarsýslu. Ég skal játa fyrir mína parta að ég hef ekki verið snokinn fyrir það yfirleitt að vísa málum til ríkisstj. Ég er frekar þeirrar skoðunar að Alþ. eigi sjálft að taka fullnaðarafstöðu til þeirra, en ekki hafa þennan hátt á, sem er afgreiðslumáti sem ég hef ekki yfirleitt fellt mig við. En hér á alveg sérstaklega við um þessa till.n. varð sammála um að vísa henni til ríkisstj. af því að innihald till. er allt á framkvæmdastigi. Heildstæð áætlun um atvinnuvegi Norður-Þingeyjarsýslu hefur verið unnin og hún hefur verið lögð fyrir ríkisstj. sem hefur ályktað um hana og einstakir þættir hennar eru nú eftir hendinni á framkvæmdastigi þannig að þessi till. er allt of seint fram komin og raunar með öllu óþörf. En til þess þó að hún hljóti afgreiðslu, þá er það einróma álit n. að leggja til að vísa henni til ríkisstj. Fjarstaddir afgreiðslu þessa máls voru þeir hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, Gils Guðmundsson og Karvel Pálmason.