18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4519 í B-deild Alþingistíðinda. (4078)

150. mál, heyverkunaraðferðir

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Atvmn. hafði til athugunar till. á þskj. 312, 150. mál Sþ., og mælir hún með samþykkt till. með svofelldri breytingu, að tillgr. orðist svo sem hér segir:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að hún hlutist til um að Rannsóknastofnun landbúnaðarins efni til frekari rannsókna á heyverkunaraðferðum með það fyrir augum að finna með hverjum hætti hagkvæmast verði staðið að heyskap, enda verði fjármagn veitt til verkefnisins á fjárlögum.“

Þrír þm. voru fjarstaddir afgreiðslu málsins, en undir þetta skrifa Páll Pétursson, Jón G. Sólnes, Sverrir Hermannsson og Steingrímur Hermannsson.