18.05.1976
Sameinað þing: 92. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4523 í B-deild Alþingistíðinda. (4094)
117. mál, könnun á vissum þáttum heilbrigðisþjónustunnar
Jón Skaftason:
Herra forseti. Allshn. Sþ. hefur haft til athugunar þáltill. um könnun á vissum þáttum heilbrigðisþjónustunnar, en till. þessi er 117. mál þessa þings og flutt af þeim læknunum Sverri Bergmann og Oddi Ólafssyni. N. varð sammála um að efni þessarar till. væri á margan hátt afar athyglisvert og varð sammála um að mæla með því — og hafði þá áður haft samráð við flm. — að þáltill. þessari yrði vísað til ríkisstj. til rækilegrar meðferðar og athugunar á því efni sem hún fjallar um.