20.11.1975
Sameinað þing: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 605 í B-deild Alþingistíðinda. (412)

31. mál, endurskoðun fyrningarákvæða

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseli. Ég sé ástæðu til þess að fara nokkrum orðum um þá þáltill. sem hv. þm. Ragnar Arnalds hefur flutt. Þáltill. þessi er nokkuð svipuð og þáltill. sem hann flutti á síðasta þingi, en hann hefur endurbætt hana nokkuð og fellt niður atriði úr fyrri þáltill., svo sem um skatt á verðbólgugróða.

Ég vil segja það strax í upphafi að ég tel vart hægt að afgreiða þessa till. óbreytta, enda er að mínum dómi ekki gerð nægilega mikil tilraun til að gera úttekt á þessum málum. Það er ekki ráðist nægilega að atriðum sem skipta grundvallarmáli, og mun ég víkja að því síðar.

Það kemur fram í grg. með þáltill. að ein aðalástæða lágra gjalda félaga séu flýtifyrningar og verðhækkunarstuðull fyrninga. Það er alveg rétt hjá hv. flm. Mörg fyrirtæki njóta óeðlilegra fyrninga. En hins vegar geta verið margar aðrar ástæður fyrir taprekstri. Það er t. d. alveg ljóst að í hópi þeirra fyrirtækja, sem hér er listi yfir, eru mörg fyrirtæki sem mér þykir ólíklegt að hafi mikla möguleika til þess að fyrna eignir sínar. Svo er t. d. með mörg fyrirtæki sem stunda verslunarrekstur án þess að vera í eigin húsnæði, þar sem fjárfesting og fjárfestingarkostnaður í eignum er mjög lítill hlut í af rekstrarkostnaði. En hvað um það, svo má vera og er mjög líklega í mörgum tilfellum að háar fyrningar eru ástæða taprekstrar eða lítils hagnaðar.

Þróunin í fyrningarmálum síðustu ára hefur verið sú að fyrir 1971 var ákveðin prósenta sem var leyfilegt að fyrna eignir með. Það var föst prósenta sem mátti ekki hreyfa. Þessi prósenta var í allflestum tilfellum nokkuð há, en það mátti ekki breyta henni milli ára. Síðan gerðist það á árinu 1971 að fyrningarreglum er breytt. Almennum fyrningum var breytt. Það var ákveðin svonefnd hámarksfyrning og lágmarksfyrning og voru almennar afskriftir nokkuð lækkaðar í flestum tilfellum. Hins vegar kom til viðbótar flýtifyrning sem skattþegn hafði frjálst val um að nota og gat notað allt að 5% á ári hverju. Það má deila um þessa flýtifyrningu, en hitt er svo annað mál, að slík flýtifyrning getur hjálpað mjög til þegar í fjárfestingu er ráðist, létt undir með að komast yfir erfiðleika fyrstu áranna, þótt megi deila um hversu há slík fyrning skuli vera. En í þessum sömu lögum var ákveðin svokölluð verðstuðulsfyrning. Sú fyrning er að mínum dómi mjög röng og það virðist ekki liggja rétt hugsun á bak við verðstuðulsfyrningarnar. Þessi verðstuðulsfyrning er ákveðin prósenta af fyrningum ársins sem hefur það í för með sér að fyrirtæki, sem á tiltölulega nýjar eignir, fær mestu verðstuðulsfyrninguna. Hins vegar ef fyrirtæki á mjög gamlar eignir, sem eru löngu fyrndar, þá fær viðkomandi fyrirtæki engar fyrningar. Þessi fyrning er að mínum dómi — ja, mér liggur við að segja hrein hugsunarvilla og vitleysa, og ég held að ég geti verið algjörlega sammála hv. flm. um að þessa fyrningu beri að afnema. En hins vegar þarf að leiðrétta ýmsa aðra vankanta.

Þegar breytingin varð 1971 var ekki ráðist að grundvallaratriðunum. Grundvallaratriðin eru í dag og hafa alltaf verið þau, að söluhagnaður af fyrnanlegu lausafé og fyrnanlegum fasteignum er skattfrjáls í mörgum tilfellum. Ef fyrirtæki hefur átt lausafé í eigu sinni í fjögur ár, þá er söluhagnaður af slíkum eignum skattfrjáls, þannig að fyrirtæki hefur möguleika á að mynda ávallt nýjan og nýjan fyrningarstofn. Hins vegar ef þessi söluhagnaður væri skattskyldur eða kæmi til lækkunar á öðrum fyrningarstofnum, þá kæmu þessi mál allt öðruvísi út. Og sama er að segja um skattfrelsi fyrnanlegra fasteigna. Það er í þessum tveimur atriðum sem grundvallaratriðin liggja, ekki í fyrningunum sjálfum, þar eru ýmsar veilur og villur sem mætti laga, en söluhagnaðurinn og meðferð hans er það grundvallaratriði sem menn ættu fyrst og fremst að staðnæmast við.

Ég sé ástæðu til þess að fara nokkrum orðum um fyrningar almennt. Það hefur verið rætt mikið um fyrningar á undanförnum árum, og ég held að það sé nokkuð ljóst að í mörgum tilfellum komi fram rangt mat á því hvað fyrningar eru. T.d. segir hv. þm. Ragnar Arnalds í grein í Þjóðviljanum í fyrra, með leyfi hæstv. forseta, að hugsunin á bak við fyrningarreglur sé sú að „eigandinn geti lagt til hliðar á hverju ári nokkra upphæð, sem ekki sé skattlögð, og þannig safnist í sjóð andvirði eignarinnar á sama tíma og hún gengur úr sér og verður ónýt“. Þarna kemur fram nokkur misskilningur, vegna þess að fyrningar skapa aldrei fjármagn, og þessum orðum má kannske svara best með orðum kennimanns um þessi mál sem ég hef tekið hér upp úr tímariti um reikningshald og endurskoðun, en þessi ágæti kennimaður segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Sú sögusögn er á kreiki að afskriftir afli fjármagns til þess að endurnýja eignir. Ef afskriftir eru taldar afla fjármagns til þess ætti að lögsækja þær fyrir slæma fjáröflun því að það eru ekki til neinar sannanir fyrir því að þær afli fjármagns til nokkurs. Eina fjáröflunarleiðin er að selja viðskiptavinum vörur. Afskriftir veita aðeins skattskjöld, svo að minna af því fé, sem fékkst frá viðskiptavinum, þarf að greiða til hins opinbera. Til allrar óhamingju er ekki hægt að afla fjármagns með nokkrum færslum í bókhaldi, og þetta er grundvallaratriði: að menn skapa aldrei fjármagn með því að færa bókhald. Það væri ekki ónýtt ef hægt væri að afla fyrirtækjum fjármagns eingöngu með því að gera nokkrar færslur í bókhaldi, en því miður er eina leiðin til þess að afla fjármagns fyrir fyrirtæki sú að finna víðskiptavini, sem vilja kaupa vörur þess“.

Þetta er grundvallaratriði, og þótt við getum haft ýmislegt að athuga við fyrningarreglur, þá skulum við gera okkur grein fyrir því að þær skapa ekki fjármagn.

Í b-lið þáltill. er rætt um að setja hámark á vaxtafrádrátt. Um þetta hefur oft verið rætt áður, og um það vil ég segja að það er í sjálfu sér mjög gott að mínum dómi að reyna að fækka frádráttarreglum í íslenskum skattalögum. Við verðum hins vegar að gera okkur grein fyrir því að ef vextir verða afnumdir sem frádráttarliður að einhverju leyti eða öllu, þá skapast sú hætta að einmitt þeir, sem stunda atvinnurekstur, hafi tilhneigingu til að færa sem mest af skuldum sínum og vöxtum á atvinnureksturinn sjálfan. Þetta er það atriði sem hefur stöðvað t.d. nágrannaþjóðir okkar í því að afnema vaxtafrádráttinn. Á þetta vildi ég aðeins benda, án þess að draga á nokkurn hátt úr því að unnið verði að því að fækka frádráttarliðum í íslenskum skattalögum.

Í þriðja lagi er lagt til að einstaklingum, sem hafa tekjur sínar af eigin rekstri, verði framvegis áætlaðar ákveðnar lágmarkstekjur, hvort sem reksturinn skilar bókhaldslegum hagnaði eða ekki. Ég verð að segja það strax í upphafi að þetta er regla sem ég held að sé óframkvæmanleg og geti ekki endað nema með ósköpum, ef á að fara að áætla tekjur á ýmsan máta á ýmsa aðila í þjóðfélaginu án þess að hafa raunverulega viðmiðun um það fjármagn sem þeir hafa milli handa. Í hlutafélögum er það þannig að eigendur, sem hafa meiri hl. í hlutafélögum, geta að sjálfsögðu ákveðið eigin laun, en af þeim launum verða þeir að greiða skatt skv. eigin skattskýrsíu, þ. e. a. s. því fjármagni sem þeir hafa tekið út úr hlutafélaginu. Í einkarekstrinum er það hins vegar svo að hagnaður fyrirtækisins er lagður til grundvallar þegar skattur er á lagður, en ekki það fjármagn sem einstaklingurinn hefur tekið út úr fyrirtækinu. Það væri að mínum dómi mun skynsamlegra að setja ákvæði í lög þar sem væri ákvarðað að ef einkaúttekt einstaklings í ákveðnum einkarekstri er hærri en hagnaðurinn, þá sé þessi liður skattstofn, en ekki hagnaðurinn. Hins vegar hefði slík regla það í för með sér að ef einkaúttekt væri mun lægri en skattskyldur hagnaður, þá yrði að sjálfsögðu að heimila að draga frá fyrri mismun þessara tveggja stofna þegar sá hagnaður kæmi fram til þess að um tvísköttun yrði ekki að ræða. Slíkt ákvæði gæti einnig hjálpað til að ákvæði sem hefði í för með sér að vextir væru ekki frádráttarbærir væri framkvæmanlegt. Ef einkaúttekt er skattstofn, þá er hætt við að einstaklingur hefði tilhneigingu til að skrá sem mest af skuldum sínum á eigið nafn og lækka þannig einkaúttekt sína. Ef vextir væru hins vegar ekki frádráttarbærir mundu slík ákvæði verka sem mótvægi til þess að draga úr misnotkun á því ákvæði.

Ég vil að lokum segja það, að ég tel rétt að þessi mál verði tekin til athugunar, og það er nú svo að það var ákveðið strax á s. l. vetri að vinna að endurskoðun laga um tekjuskatt og eignarskatt, og n. hefur unnið að því nú að undanförnu. Ég vænti þess að sú n. komi með till. sem gætu verið grundvöllur til lagfæringar á því kerfi sem við búum við í dag, en hins vegar tel ég ekki vera ráðist nægilega að grundvallaratriðum í þessari þáltill., þannig að þar þurfi meira að koma til.