18.05.1976
Efri deild: 123. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4529 í B-deild Alþingistíðinda. (4120)

192. mál, jafnrétti kvenna og karla

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil ekki fremur en hv. 2. þm. Norðurl. e. að þetta frv. til l. um jafnstöðu kvenna og karla renni hér eins og á færibandi í gegnum þessa hv. d. án þess að það komi fram einhver rödd sem mælir á móti. Ég fagna því að hv. 2. þm. Norðurl. e. skyldi gera það við 2. umr. um þetta frv. Ég ætla þá að vera honum samferða eins og svo oft áður í skoðunum um slæm mál sem hingað koma í þessa hv. deild.

Ég get ekki séð að í þessu frv. sé neitt sem heiti jafnrétti, nema síður sé. Hér er verið að stuðla að nokkurs konar lögregluríki, eins og hv. 2. þm. Norðurl. e. kom að. Í 3. gr. þessa frv. kemur fram að atvinnurekendum er óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kynferði. Eru einhver dæmi þess að atvinnurekendur hafi beinlínis mismunað fólki eftir kynferði? Ég hef aldrei nokkurn tíma heyrt þess getið og hefði gaman af eð fá hér dæmi nm það og gildi það m.a. hvað varðar ráðningu og skipun í starf, stöðuhækkun, stöðuheiti, uppsögn úr starfi, veitingu hvers konar hlunninda og almenn vinnuskilyrði. Ég veit ekki dæmi til þess ef góður maður eða góð kona er á annað borð í starfi hjá atvinnurekanda að þeim sé mismunað bara vegna þess að það er ekki kona sem á að vera í starfi að mati atvinnurekandans.

Síðan kemur í 4. gr. þessa furðulega frv. að starf, sem auglýst er laust til umsóknar, skal standa opið jafnt konum sem körlum. Það er alveg sama hvort atvinnurekandinn telur heppilegra fyrir sig að ráða konu eða karl, hann skal halda stöðunni opinni fyrir bæði kynin. Ef hann skyldi nú veita starfið konu, hvað segja þá þessi lög? Þau segja að karlmaðurinn, sem ekki fékk starfið, eða ef það er öfugt, konan, sem ekki fékk starfið, hún skuli eiga heimtingu á því að yfirheyra atvinnurekandann skriflega, og það er svo Jafnstöðuráð sem skal dæma um það hvort atvinnurekandinn má eða má ekki ráða þann starfskraft sem hann vill ráða. Það er alveg furðulegt að þetta skuli renna í gegnum Alþ. án aths. eða svo til.

Síðan kemur í 9. gr., svo að maður fari fljótt yfir sögu, að kostnaður við Jafnstöðuráð skal greiðast úr ríkissjóði. Það er ekkert nýtt. Það er alveg sama hvaða till. kemur um að greiða úr ríkissjóði, það er alltaf samþ. Það er talið svo sjálfsagt, hvaða vitleysa sem er, hún á að vera gerð á kostnað ríkissjóðs.

Verkefni þessa Jafnstöðuráðs er samkv. 10. gr. 6. lið að taka við ábendingum um brot á ákvæðum laga þessara og rannsaka málið af því tilefni og senda að rannsókn lokinni málsskjöl til þeirra aðila sem málið snertir. Þetta er alveg furðulegt. Þarna er, eins og hv. 2. þm. Norðurl. e. sagði, komið rannsóknaráð, einhvers konar ja, hvað á að segja? — njósnastarfsemi á kostnað ríkisins um það hvernig atvinnurekendur ráða sitt starfsfólk. Og ef aðilar eru ekki sammála, þá á að hefja rannsókn sem leiðir til þess að málshöfðun fylgir í kjölfarið. Og það stendur hér í 11. gr., 2, mgr.: „Fallist atvinnurekandi ekki á tilmæli ráðsins er ráðinu heimilt í samráði við hlutaðeigandi starfsmann að höfða mál í umboði hans til viðurkenningar á rétti hans“ — vegna þess að atvinnurekandinn hefur valið konu fremur en karl eða karl fremur en konu. Sá, sem ekki var ráðinn, getur kært til Jafnstöðuráðs og ef atvinnurekandinn beygir sig ekki undir ákvarðanir þessa ráðs, þá er höfðað mál samkv. þessari 11. gr.

Í 12. gr. segir svo að sá, sem af ásettu ráði eða gáleysi brýtur gegn lögum þessum, þ.e.a.s. leyfir sér að velja starfsmann á annan hátt eða annan starfsmann heldur en Jafnstöðuráð telur að hann hefði átt að gera, þá kemur hérna 12. gr.: „Sá, sem af ásettu ráði eða gáleysi brýtur gegn lögum þessum, er skaðabótaskyldur samkv. almennum reglum.“ Sem sagt, hann skal dæmast, hann skal dæmast í fébætur þarna líklega. (Gripið fram í.) Já, heldur áfram. Slíkt brot skal varða fésektum nema þyngri refsing liggi við að lögum, þá einhverjum öðrum lögum, Þá á að fangelsa hann fyrir að hafa ráðið sér þann starfsmann úr umsækjendahópi sem honum leist best á. Þetta er alveg furðulegt. Ég hef áður sagt úr þessum ræðustól eða spurt: Hvert er Sjálfstfl. að láta teyma sig í svona málum?

Ég vil vekja athygli á því, eins og hv. 2. þm. Norðurl. e., að þetta frv. er slæmt og að mínu viti rangt og skapar ekki réttlæti, það skapar ranglæti, og þess vegna vildi ég láta aðra rödd heyrast um þetta mál.