18.05.1976
Neðri deild: 117. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4536 í B-deild Alþingistíðinda. (4134)
257. mál, jarðalög
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Landbn, hefur rætt efni frv. á mörgum fundum. Á Alþ. 1973–1974 var frv. til jarðalaga til meðferðar í landbn. Nd. og hafði n. skilað áliti og brtt. og tryggt málinu meirihlutafylgi gegnum báðar deildir þegar þingið var rofið 1974.
Eins og kemur fram í grg, með frv. hefur n. þm. úr stjórnarflokkunum ásamt Sveinbirni Dagfinnssyni ráðuneytisstjóra og Árna Jónassyni erindreka unnið að því s.l. vetur að endursemja frv. um jarðalög og ábúðarlög. Niðurstaðan varð sú að um öll atriði náðist full samstaða, enda voru nm, sammála um það að ekki mætti dragast lengur að lögfesta þessi frv.
Við 1. umr, málsins lagði hæstv. landbrh. fram brtt. við 26. gr. og mælir n, með samþykkt hennar. Landbn. leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem hún leggur fram á sérstöku þskj, Við endanlega afgreiðslu málsins voru hv. þm. Benedikt Gröndal og Eðvarð Sigurðsson fjarstaddir.
Á þskj. 866 eru 4 brtt. frá landbn.
1. brtt. er við S. gr. og hún er um það að orðið „lóða“ falli niður. 3. gr. byrjar þannig: „Lög þessi taka til jarða, jarðarhluta, afréttarlanda, öræfa, lóða og landspildna“.
2. brtt. er við 10. gr., og það er til samræmingar við 21. gr. laga um náttúruvernd að bæta við 1. mgr.: „að fenginni umsögn náttúruverndarnefnda.“
Við 13. gr. er brtt. þar sem er bætt inn í: „ef hagsmunir sveitarfélags krefjast,“ þ.e.a.s. ráðh. er heimilt, ef hagsmunir sveitarfélags krefjast, að leyfa eiganda og ábúanda þeirrar jarðar, sem skipt var úr, að fengnum meðmælum jarðanefndar og landnámsnefndar, að leysa til sín hinn úrskipta jarðarhluta.
Við 14. gr. er alveg sams konar brtt.