20.11.1975
Sameinað þing: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (414)
31. mál, endurskoðun fyrningarákvæða
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Hér hafa orðið nokkrar umr. um það hvort og þá hvernig bókhaldsaðferðir eða bókhaldsbrellur, eftir því hvaða orðalag menn vilja nota, geta skapað fjármagn.
Að sjálfsögðu er það alveg rétt að bókhald getur aldrei skapað neitt fjármagn hvaða aðferðir sem viðhafðar eru. Bókhald er fyrst og fremst skýrsla um það sem gerst hefur og getur einnig verið ákvörðun um það hvernig á að ráðstafa fjármagni sem þegar hefur verið skapað. Fyrningarreglur geta því ekki átt þátt í að skapa fjármagn, heldur kveða þær á um hvernig fjármagni, sem þegar hefur skapast, sé ráðstafað. Þetta er hins vegar alls ekkert aðalatriði og það langt í frá í sambandi við það mál sem hér er flutt.
Það hefur líka verið á það bent að sum fyrirtæki í upptalningu hv. flm. í fylgiskjali með þessari þáltill. muni ekki sýna tap eingöngu vegna flýtifyrningarreglna, og einnig hefur verið á það bent að það sé ef til vill ekki eðlilegt að nefna sum fyrirtækin í þessum upptalningarhópi. En ég tek það fram og legg á það mjög þunga áherslu að þetta er einnig algert aukaatriði í sambandi við það mál sem hér er flutt. Aðalatriði málsins er það, að hér er um að ræða nokkuð á fimmta hundrað stærstu fyrirtækja á Íslandi sem velta samtals 20 þús. millj. kr. og borga ekki grænan eyri í tekjuskatt til ríkisins. Þetta er aðalatriðið í málinu. Hitt er aukaatriði, algert aukaatriði, hvort eitthvert eitt eða tvö fyrirtæki eigi ekki heima í þessari upptalningu eða hvort eitthvað annað en flýtifyrningarreglurnar geti valdið því að þau geti gert reikninga sína upp með tapi.
Aðalatriðið er að sjálfsögðu hvernig það geti gerst að fyrirtæki, sem veita 20 þús. millj. kr. á ársgrundvelli, skuli algerlega sleppa við að greiða skatt til ríkissjóðs. Hvaða afleiðingar hefur þetta? Þetta hefur að sjálfsögðu þær afleiðingar að ríkissjóður verður að sækja það fé, sem hann þarf, til einstaklinganna í þjóðfélaginu. Og þá spyr ég: Telja menn það eðlilegra og sjálfsagðara að hinn venjulegi launamaður í þjóðfélaginu eigi að bera aukinn hluta byrðarinnar út á það að fyrirtæki, eins og hér hefur verið tekið fram, sem velta 20 þús. millj. kr. á einu ári, geta ekki lagt til sameiginlegra þarfa landsmanna í formi tekjuskattsgreiðslu svo mikið sem grænan eyri?
Það er þetta sem er mergurinn málsins, en ekki hitt hvort bókhaldsaðferðir skapi fjármagn eða ekki. Um það þarf ekki að deila og ekki heldur hitt, hvort það sé óeðlilegt að sum fyrirtæki séu höfð með í þessari upptalningu eða ekki.
Hins vegar held ég að umr. um þetta mál hljóti að hafa sýnt mönnum fram á að tekjuskattskerfi eins og við höfum búið við nú um langt skeið sé löngu gengið sér til húðar. Það hafa verið gerðar margar tilraunir, ítrekaðar tilraunir, af öllum stjórnmálaflokkum og öllum ríkisstjórnum um langt úrabil til þess að leiðrétta reglur um álagningu tekjuskatts til þess að fylla upp í holur sem orðið hafa á kerfinu. Og það hefur ekki gengið betur til en svo að það er vart að upp í eina holuna hafi verið fyllt fyrr en önnur dettur á, og spurningin er þá orðin sú: Erum við ekki hérna raunverulega að vinna vonlaust verk, — verk sem aldrei verður lokið? Er ekki þetta skattlagningarkerfi raunverulega orðið svo óréttlátt að tími sé kominn til að íhuga algerar grundvallarbreytingar á skattlagningu bæði einstaklinga í landinu og fyrirtækja?
Á Alþ. í fyrra flutti þingflokkur Alþfl. till. til þál. um einmitt þetta mál þar sem farið var út á nýjar brautir í sambandi við skattlagningarmál. Ég ætla ekki að ræða efni þeirrar þáltill. vegna þess að ég tel enga ástæðu til þess að gera það nú. En niðurstaða af mínu máli verður sem sé sú, að ég held að það sé löngu orðið tímabært hreinlega að gera það upp við sig, komast að þeirri niðurstöðu, að hversu vel sem reynt er að vanda þá löggjöf um tekjuskatt, sem við höfum búið við um nokkuð langt skeið, þá sé orðið augljóst að þetta skattakerfi sé gengið sér til húðar, við munum aldrei ná eðlilegu réttlæti, eðlilegu jafnrétti milli þegnanna í þjóðfélaginu á meðan við búum við kerfi af þessu tagi og þess vegna sé fyllilega tímabært að endurskoða og breyta kerfinu í heild í stað þess að vera sífellt og stöðugt að reyna að lappa upp á það, bæta götin og það í svo miklum mæli að það má segja sem svo að það standi ekki lengur steinn yfir steini af þeim tekjuskattslögum sem sett voru í upphafi. Ég held að það fari ekki á milli mála að menn séu orðnir sammála um að annar mikilvægasti þáttur tekjuskattslaga, þ. e. a. s. sá þátturinn sem snýr að því að það eigi að vera hlutverk tekjuskatts að jafna aðstöðu þjóðfélagsþegnanna, því markmiði sé alls ekki náð og hafi raunar ekki verið náð með tekjuskattslögum um alllanga hríð.