18.05.1976
Neðri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4562 í B-deild Alþingistíðinda. (4160)

251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ekki get ég tekið undir þá frómu ósk sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, heldur óska ég eftir því að mikill meiri hl. þessarar hv. d. verði á móti þessari till. því að með samþykkt hennar er að vísu verið, eins og margt hefur skeð í sambandi við þennan frumvarpsflutning, verið að veita ákveðið einkaleyfi til ákveðinna staða sem hafa um langt árabil vanist við og notað ákveðin veiðarfæri, það er veríð að gefa þeim einkaleyfi meðan lokað er fyrir aðra. Og það kom fram á fundi sem ég var á fyrir nokkru, það sem stjórnar t.d. þessu furðulega tiltæki, að geta ekki verið með fiskifræðingum og hagfræðingum þegar það passar þeim ekki sjálfum, en verið alltaf með þeim ef það passar þeim eða þeirra heimabyggð, eins og kemur fram í sambandi við dragnótina í sunnanverðum Faxaflóa og innanverðum um leið. Ég álít að þeir menn, sem eru bundnir þessu óskaplega kvalræði, að vera ofsatrúarmenn gagnvart ákveðnum veiðarfærum, þeir ættu frekar að hugsa um fiskinn sjálfan. Við skulum ekki gleyma því að á þessu svæði, þótt lokað verði fyrir botnvörpu og dragnót, þá er hægt að drepa þar smáan fisk líka, nákvæmlega sama smáa fiskinn og Akurnesingar hafa drepið undan Snæfellsnesi á uppeldissvæðunum þar á undanförnum árum og komið með hingað til borgarinnar til þess að selja. Sá fiskur er talinn veiddur á færi. En hver segir það og hverjum dettur það í hug, sem til þekkir, að það megi ekki drepa smáfisk á linu og færi?

Við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að við þurfum að minnka ásókn okkar í þorskstofn um kannske nokkuð á annað hundrað þús.tonn. Hvað á að koma á móti? Ég spyr. Ætli það það verði kolmunninn? Ég efa að það verði á þessu ári. En skyldi það vera það sem fiskifræðingar segja, að það sem við veiðum of mikið af sé skarkoli? Ég veit að við fáum framan í okkur gagnrök frá þeim sem hafa nokkuð til síns máls, og ég skal viðurkenna fúslega að þegar leyft var síðast að veiða með dragnót í Faxaflóa, þá var of langt gengið, þá voru of mörg skip og það var of mikill afli veiddur og um leið var möskvinn of smár í dragnótinni. En nú er búið að stækka hann — ég víl leyfa mér að segja samkv. því sem fram kom í þessu frv. — um nær þriðjung, sem þýðir að það er ekki nema stærsti göngufiskur hér í Faxaflóa sem mundi ásamt stærri skarkola festast í þessu neti. Og ég vil undirstrika það sem ég sagði: göngufiskur hér í flóanum. Látið ykkur ekki detta í hug að ekki sé göngufiskur á ferðinni í Faxaflóa. Það hefur verið frá því að byggð hófst hér á Íslandi, þá gengur fiskur hér á milli ála, inn allan Faxaflóa og inn á innstu firði. Eigum við að standa frammi fyrir því hér við innanverðan Faxaflóa, eins og ég kem þá að aftur, að einn af forvígismönnum þeirra skagamanna sem veiða á sportveiðitæki, hafði í mín eyru fyrir ekki allmörgum dögum þau orð að hér væri ekki nema um smáan fisk að ræða? En þetta er að sjálfsögðu alrangt. Hann hafði það sem aðalröksemd að Faxaflóinn fæði alla ströndina, hann fæði allan hringinn. Fiskurinn fer úr Faxaflóanum og gengur vestur og norður með landi, sem hárrétt er, austur með og suður með aftur og kemur svo í flóann aftur, þá kemur hann bara sem fullvaxinn fiskur. En þetta eigum við allt í einu að viðurkenna sem sjálfsagða staðreynd fyrir þá skagamenn og aðra sem veiða á sportveiðarfæri meðan við þurfum að reka hin stærri fiskiðnfyrirtæki sem þjóðin lifir á. Við höfum viðurkennt og ég fúslega og manna helst þegar t.d. vestmanneyingar eiga í hlut og reyndar aðrir sem þurfa að fara á ákveðin mið til ákveðinna veiða, eins og þegar hefur verið hafist handa um fyrir nokkrum árum, að úthluta sem einkarétti til ákveðinna hópa eða ákveðinna byggðarlaga ekki aðeins ákveðnu veiðimagni, heldur og ákveðnum veiðisvæðum. Af okkur reykvíkingum er hins vegar tekinn þessi hluti, hann afhentur, vegna þess að hann þarf að vera til staðar fyrir aðra aðila, og þá tala ég líka um þá í þeim byggðum sem hafa vanist við og verið með önnur veiðarfæri heldur en við hér í Reykjavík sem þróum mjög fljótt okkar fiskimenn í það að nota fullkomnustu tækni sem hægt er að nota. Og þá var ekki aðeins um litlu bátana að ræða, heldur líka hin stærri skip sem sóttu á fjarlægari mið, og á ég þar við togarana. En það má segja að allir fái nokkuð í sambandi við þetta frv. nema við í Reykjavík. A.m.k. veit ég að þeir á Akranesi hafa fengið sitt því að þeir hafa bryggjupláss til þess að binda togara sína við, og þá er ekki annað eftir fyrir þá heldur en að fylla þá með brotajárni og sigla svo öllu í næsta járnbræðsluofn sem mun vera í Englandi.

Ég minnist þess þegar það furðulega frv. sem bannaði dragnótaveiðar í Faxaflóa, sem hafði þó, eins og ég hef tekið fram, nokkuð til síns máls, — þegar það var samþykkt, þá var hér fjöldi báta af þeirri stærð sem þessar veiðar stunduðu. Ekki einn einasti þeirra fékk skaðabætur fyrir það að vera sviptur þessari atvinnu sinni. Og það er staðreynd að þeim, sem fluttust til annarra verstöðva hér, bæði við Reykjanesið og Suðurlandið og þar á ég við Þorlákshöfn, — þeim var meinuð hafnaraðstaða þar og lá við stórslysum í tveim tilfellum sem mér er kunnugt um, því að þeim var bannað að koma þar að landi og urðu að fara fyrir Reykjanes með sinn afla til þess að landa í Reykjavík. Á þetta hefur ekki verið minnst og er þó um að ræða landshöfn og hafnir sem albjóð hefur lagt til stórfé. Auk þessa endurtek ég aftur þetta sem ég sagði, að þeim var meinuð hafnaraðstaða á þessum stöðum og er ljótt til þess að segja á Íslandi í dag.

Það er eins og kom fram hjá hv. frsm. og ég vil benda á, að ég skrifa ekki, þótt ég sé formaður í virðulegri sjútvn. þessarar d., þá skrifa ég ekki undir nál. vegna þess að ég hef aðrar skoðanir en meiri hl. þm. á því hvernig okkar veiðimálum á að skipa. Ég er hins vegar samþykkur þeim brtt., sem meðnm. mínir hafa lagt fram, og mun styðja þær. Það var verið að reyna að ná samkomulagi til þess að við sýndum ekki sömu skömmina og Ed. hv. Alþ. að gera það á síðustu stundu að henda frá sér þessu máli með stórkostlegum breytingum, jafnvel án þess að tala við nm. úr sjútvn., a.m.k. ekki flm. frv., og um leið að gera það að verkum að við hefðum getað staðið frammi fyrir því nú á síðasta degi þingsins, eftir að hafa fært út fiskveiðilögsöguna í 200 mílur, að við hefðum enga löggjöf um þetta mál. Við það er ég ekki sáttur. Og það er þess vegna sem ég dreg til baka þá ætlun mína að flytja brtt. við frv. eins og það er og mun í heild styðja að það nái fram að ganga, vegna þess að ég tel að það sé ekki sæmandi fyrir okkur að láta þetta frá okkur fara, allra síst kannske vegna þess sem fram undan er í viðskiptum okkar við aðrar þjóðir og reyndar enda þótt svo hefði ekki verið. En þetta virtist ekki vera uppi hjá þeim félögum okkar í hv. Ed., heldur var þeim alveg sama um það þótt þetta frv. hefði rekið á sker á síðustu dögum, enda geri ég fastlega ráð fyrir því að það mundi ekki skaða neitt þótt við vísuðum þessu frv. til ríkisstj. til frekari athugunar, því að það virðist vera ákaflega mikill ágreiningur enn um það hvað eigi að gera við ákveðin veiðisvæði landsins, þannig að ef slík till. kæmi fram, þá gæti ég fúslega stutt hana. Við mundum þá bara í þeirri rökvísun með slíkri till. til rökst. dagskrár óska eftir því, að hæstv. sjútvrh. stjórnaði í anda þeirra laga sem ekki voru samþykkt, og ég skyldi fúslega treysta honum til þess og mundi ekki verða verra en láta þá ráða sem nú hafa tekið ráðin og telja sig allt vita og allt geta bara vegna þess að þeir eru með grá hár á sínum kolli, sem er mikill misskilningur.

En eins og ég segi, ég mun ekki flytja neinar brtt. sjálfur við frv., en ég áskil mér allan rétt til þess að fylgja þeim ef fram koma.