18.05.1976
Neðri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4568 í B-deild Alþingistíðinda. (4162)
251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Það er rétt, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, að þetta mál er hér seint á ferðinni. En ekki verð ég sakaður um það að hafa ekki í tæka tíð skipað n. til þess að undirbúa þetta mál og ræða það mjög ítarlega víðs vegar um landið. Jafnframt því að þar voru fulltrúar hagsmunaaðila sjávarútvegs, þá var þar bætt við n. 7 alþm. og ekki var slegið slöku við fundarhöld í þeirri n. En þetta mál er, eins og hann og fleiri ræðumenn hafa sagt, mjög erfitt mál og erfitt að koma saman þessu máli og ná samkomulagi um þessi viðamiklu og flóknu mál. Þau taka breytingum frá degi til dags í meðförum manna. En eitt er það sem er höfuðatriði, og það er að þetta mál nái fram að ganga, því að ég tel að það sé Alþ. til mikillar vansæmdar að ljúka svo störfum að þetta frv. verði ekki að lögum.
Það er eins með þetta frv. og öll önnur, það má setja út á ýmislegt í því. Það er margt í því sem má betur fara, og það er líka margt í þessu frv., eins og það var lagt fyrir þing og einnig þær breytingar sem það hefur tekið í meðförum þingsins, sem ég fyrir mitt leyti hefði viljað hafa á nokkuð annan veg. En það er þannig að það getur enginn einn ráðið gerð og afgreiðslu þessa máls. Hér verður að koma til mjög víðtækt samkomulag til þess að þetta mál fái endanlega afgreiðslu. Ég tel bæði rétt og skylt að hæstv. forseti gefi nokkurt hlé til þess að n. geti gert tilteknar leiðréttingar, þær sem hv. síðasti ræðumaður benti á, ákaflega lítilfjörleg atriði í sjálfu sér, en það er alveg hárrétt að hér verður að leiðrétta áttavitann í þremur tilfellum, og það finnst mér að n. geti vel gert á örfáum mínútum ef hlé er gert.
Ég ætla ekki að fara að ræða efnislega um frv., það hef ég áður gert. Ég tel að það sé mikill ágreiningur við afgreiðslu í Nd. og í Ed. og til þess að jafna þann ágreining verðum við að ná saman. Sjútvn. þessarar hv. d. hefur tekið tillit til allmargra breytinga sem hv. Ed. gerði á frv., og ég var samþykkur þeim brtt. öllum.
Ég vil út af orðum hv. frsm. sjútvn. og fleiri lýsa því yfir að ég mun með reglugerð loka svæðinu réttvísandi suður af Hvalnesi ok að línu sem hugsast dregin að vestan að 15° 45' og innan 6 sjómílna frá landi á tímabilinu 1. maí til 1. okt. Slíkri reglugerð verði beitt þar til eftirlit er komið í það horf að skyndilokunum megi beita á svæðinu vegna göngu smáfisks á fyrrgreindu tímabili. — Reglugerðinni verði beitt þangað til að við teljum að það sé komið í viðunandi horf.
Vegna till. um frekara bann við veiðum með botnvörpu og flotvörpu á Breiðafjarðarsvæði vil ég taka fram að ég er þeirri brtt. andvígur þó að hún gangi ekki eins langt og brtt. þær sem samþykktar voru í Ed. En það er ekki af fjandskap við snæfellinga, heldur er hér um að ræða lokun veiðisvæða fyrir togurum sem gerir það að verkum að togaraflotinn þyrpist meir og meir og í vaxandi mæli sérstaklega á tvö tiltekin svæði. Og það er rétt sem hv. síðasti ræðumaður gat um, það er á Suðausturlandi, en þó fyrst og fremst á Vestfjarðasvæðinu, og þess vegna er ég andvígur till. En verði þessi till. sjútvn. samþ., þá mun ég beita mér fyrir því að yfir hávertíðina verði neta- og línusvæða á Breiðafjarðarmiðum gætt líkt og verið hefur nú tvö undanfarin ár, fyrst í Víkurál og síðan á öðru svæði út af sunnanverðum Vestfjörðum. Ég held að það sé ekki allt fengið með reglugerðum. Það hefur hvort tveggja verið reynt og með misjöfnum árangri. En með því að beita sér fyrir því að ná samkomulagi við Landhelgisgæsluna og á þann hátt að virða línu- og netasvæði á viðkvæmasta tíma, þá tel ég að sé komið mjög til móts við óskir snæfellinga í þessum efnum, En í 5. gr. þessa frv. segir að ráðh. sé heimilt að skipta veiðisvæðum milli veiðarfæra og takmarka þannig veiðiheimildir þær, sem veittar eru í lögum þessum, með því að banna notkun ákveðinna gerða af veiðarfærum á tilteknum veiðisvæðum í takmarkaðan tíma. Sú tilraun, sem gerð var í hittiðfyrra og á síðustu vertíð tókst vel. Það urðu engir teljandi árekstrar á milli togveiðiskipa og línu- og netabáta og eiginlega engir árekstrar á síðustu vertíð. Ég hygg að ef þetta kæmi til, þá verði reynslan ekkert síðri á miðum snæfellinga heldur en á þessum miðum.
Ég sagði í upphafi að ég legði mikla áherslu á að þessi löggjöf næði fram að ganga. Jafnvel þó að hinn ágæti formaður sjútvn. Nd. telji að það megi alveg eins láta vísa þessu frv. til ríkisstj. og ég gæti þá stjórnað og sjútvrn. þessum málum í anda þess frv. sem ekki verður samþykkt, þá vona ég að slíkt komi ekki fyrir. Ég vek athygli hv. alþm. á því, sem ég raunar þarf ekki að gera, að ef þetta mál dagar hér uppi, þá verði lítið svo á að við íslendingar eða Alþingi íslendinga hafi ekki eftir að hafa fært fiskveiðilandhelgina út í 200 mílur haft samstöðu um að koma á skynsamlegri hagnýtingu fiskveiðilandhelginnar og ég mundi telja það frekar vatn á myllu andstæðinga okkar í þessu máli.