18.05.1976
Neðri deild: 118. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4571 í B-deild Alþingistíðinda. (4164)
251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Frsm. (Sverrir Hermannsson):
Virðulegi forseti. Enda þótt það hafi komið fram í máli tveggja hv. þm. að þeir eru ekki sammála þeim niðurstöðum sem sjútvn. komst að, þá er það nú ekki í svo veigamiklum atriðum að það út af fyrir sig geri mikinn mun eða komi á óvart. En ég þakka fyrir ábendingar hv. 2. þm. Austurl. sem eru réttar. Þarna eru villur sem ekki eru auðvitað af neinum ásetningi gerðar. Og ég sé að hv. Ed. hefur orðið hið sama á þegar hún bætti inn í B 3, að hún miðar við 6 sjómílur réttvísandi norðaustur frá Langanesi svo sem hafði verið gert óvart og staðið löngum í B-liðnum um Austurland.
Ég vil leyfa mér að flytja hér skrifl. brtt. við 3. gr., B-liðinn og C 6 og C 7. Ástæðan fyrir því, að ekki var numinn brott Ingólfshöfðinn sem viðmiðun og 18° v. lg. sett í staðinn, var sú, að ég þráaðist alllengi við að fallast á þessa breytingu og á ystu nöf. Þegar ég gekk til þess leiks, þá var það mikið umleikis að ekki gafst tóm til þess að gaumgæfa þetta atriði. En ég vil biðja hæstv. forseta um að leita afbrigða fyrir þessari till. minni, en hún er við 3. gr.
Í fyrsta lagi við B 1, að upphaf gr. orðist svo: „Frá línu réttvísandi í austur frá Langanesi.“ Í öðru lagi við C 6: Í stað „Frá línu réttvísandi suður frá Ingólfshöfða“ komi: Frá 18° v. lg. Brott falli það sem innan sviga stendur: (vms 22).
Og í þriðja lagi við C 7: Í stað „Frá línu réttvísandi austur frá Ingólfshöfða“, sem var auðvitað kórvilla, komi: Frá 18° v. Ig. og brott falli það sem segir í svigunum um viðmiðunarstað 22.
Hér hefur svo aðallega verið rætt um svæðið á milli Fonts og Glettinganess. Ég kom að því í minni framsögu fyrir brtt. að mér er mjög umhendis að fallast á þessa breytingu ekki vegna þess að ég skilji ekki vel nauðsyn þessara skipa á svæðinu, 5 skipa, sem ég hygg að sé rétt hjá hv. þm. Ingvari Gíslasyni að eigi hlut að máli, heldur vegna þess sem fram kom í viðræðum okkar við fiskifræðinga sem héldu því fram, eins og ég sagði raunar fyrr í ræðu minni, að allt svæðið réttvísandi norður frá Hraunhafnartanga og allar götur í austur réttvísandi frá Glettinganesi væri sama eðlis með tilliti til uppvaxtarstöðva þorskins. Ég vil þó taka fram að ég er þeirrar skoðunar að það megi ekki lengi rígskorða þetta svæði sem mikið verndarsvæði. Það þarf að stórauka rannsóknir á því og fylgjast með fiskigöngum, því að tíðum, segja sjómennirnir, gengur þarna yfir fullvaxta fiskur sem að öðru jöfnu má sækja í. Auðvitað er fyrir Norðurlandi öllu og Austurlandi, um verulegar skerðingar að tefla, ekki er því að neita, þetta hafsvæði milli 9 og 12 mílna línanna frá Horni og að Langanesi, fyrir utan stóraukin verndarsvæði í kringum eyjarnar Kolbeinsey og Grímsey. Það er auðvitað mjög mikil skerðing, einkum og sér í lagi fyrir þessa millistærð skipa sem áður höfðu veiðiréttindi á þessu svæði. Og þannig er það nú, að langmesta skerðingin, sem verður, er hjá bátastærðinni sem áður var frá 105 tonnum upp í . 350 tonn. Þetta á alveg sérstaklega við um Selvogsbankasvæðið og Suðvesturland. En við frágang laganna frá 1973 er ekki fyrir það að synja að þessum bátastærðum, í hverjum eru mörg gífurlega öflug togskip, voru veittar ótrúlega miklar togveiðiheimildir, t.a.m. eins og á Selvogsbanka, að því er mig minnir frá 16. maí og til áramóta, öllum Selvogsbankanum að heita má eins og hann lagði sig. Á ekki dýpra vatni toga þessi skip að sjálfsögðu með næstum því jafnmiklu afli og árangri og áníðslu, ef svo má segja, eins og sérsmíðuð skuttogskip. Vélarafl þessara skipa sumra hverra slagar upp í það sem er hjá minnstu gerð togara.
Vitanlega felur þetta frv. í sér gífurlega aukna friðun. En þar fyrir utan hefur hæstv. sjútvrh. tekið margar ákvarðanir í kjölfar ýmissa ábendinga og samþykkta fiskveiðilaganefndarinnar og þar fyrir utan auðvitað af sjálfsdáðum um stóraukna verndun og friðun allt í kringum landið. Þetta er einn snarasti þátturinn og raunar upphafsþátturinn í því verkefni sem vinna verður nú að vernda fiskistofnana, sér í lagi þorskstofninn. Og það er alveg útilokað að setja þessi lög án þess að við einhvern komi og hagur hans þrengist. Víða þrengist stórlega, sérstaklega á þeim svæðum sem fiskifræðingar tjáðu n. og hafa raunar skrifað um skýrslur og víða birt, — sér í lagi á þeim svæðum þar sem eru uppeldisstöðvar ungfisksins fyrir Norðvestur-, Norður- og Norðausturlandi. Það er skoðun mín sem hefur áður komið fram að aðalmálið sé að hindra dráp á ungfiski og einnig hrygningarfiski. Ef þetta heppnast okkur, þá mun e.t.v. langstærsta skrefið vera stigið í þá átt að ná því sem við verðum að ná, að þeir vaxi aftur, fiskstofnarnir við strendur landsins. Hins vegar vil ég láta þess getið, að ég vil gjarnan, ef hæstv. forseta sýnast tök á því, ræða við hv. sjútvn. um þau tilmæli sem fram hafa verið sett hér um þetta svæði, að hverfa að þeirri breytingu sem hv. Ed. gerði við liðinn B, um Austurland, þ.e. svæðið frá Fonti að Glettinganesi (Grípið fram í: Frá 15 mínútum.) Nei, frá Fonti að Glettinganesi. (Gripið fram í.) Já, það hygg ég að mundi nægja, því að þetta er ekki svo stórvægilegt eða skiptir neinum þeim sköpum að ástæða sé til að hafna því með öllu að líta á þetta vinsamlega. — [Fundarhlé.]
Virðulegi forseti. Sjútvn. hefur orðið sammála um að draga til baka till. við 3. gr., a-liðinn. Til baka er dregin till. um B 3, sem samþ. var að bæta við B-liðinn, Austurland, í hv. Ed., að sá liður falli brott, sem þýðir að fallist er á af n. hálfu að sú breyting verði gerð á frv., eins og það var upphaflega, að skipum 39 metrar að lengd eða minni er heimilt að veiða allt árið með botnvörpu og flotvörpu utan línu sem dregin er úr punkti 6 sjómílur réttvísandi austur, — en ekki norðaustur eins og segir í samþykkt hv. Ed., — austur frá Langanesi (vms 10) í punkt 6 sjómílur réttvísandi austur frá Glettinganesi (vms 13).
Ég vil geta þess, hæstv. forseti, að ég hafði lagt hér fram skrifl. brtt. sem að vísu fjallaði einvörðungu um stafsetningu, ef svo má segja, en starfsmaður þingsins greip hana úr höndum mér til frekari meðferðar í vélritun, þannig að mér er umhendis að leggja þá skriflegu brtt. fram og mundi vilja fara fram á andartakshlé á meðan ég leitaði uppí gögn mín þannig að ég fengi þann veginn náð vopnum mínum.