18.05.1976
Efri deild: 127. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4579 í B-deild Alþingistíðinda. (4180)
251. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Í 5. gr. þessa frv. segir að ráðh. sé heimilt að skipta veiðisvæðum milli veiðarfæra og takmarka þannig veiðiheimildir þær, sem veittar eru í lögum þessum, með því að banna notkun ákveðinna gerða af veiðarfærum á tilteknum veiðisvæðum í takmarkaðan tíma. Í Nd. kom fram till. um frekara bann við veiðum með botnvörpu og flotvörpu á Breiðafjarðarsvæðinu og ég tók fram þar við umr. að ég mundi beita mér fyrir því að yfir hávertíðina verði neta- og línusvæða gætt líkt og verið hefur í Víkurál og öðru svæði út af sunnanverðum Vestfjörðum. Það hefur reynst vel í framkvæmd báðar þessar vertíðir og einkum í vetur, og ég vænti þess að það muni einnig reynast vel fyrir snæfellinga ekki siður en vestfirðinga.
Í sambandi við það, sem form. sjútvn. sagði áðan, mun ég gefa aðra yfirlýsingu, að ég mun með reglugerð loka svæðinu réttvísandi suður af Hvalnesi og að línu sem hugsast dregin að vestan að 15° 45' innan 6 sjómílna frá landi á tímabilinu 1. maí til 1. okt. Slíkri reglugerð verði beitt þar til eftirlit er komið í það horf að skyndilokunum megi beita á svæðinu vegna göngu smáfisks á fyrrgreindu tímabili.
Ég vona svo að þessu stóra og mikla máli sé nú að ljúka og hér náist að lokum góð samstaða um afgreiðslu málsins og vil þá nota þetta tækifæri til þess að þakka sjútvn. og þm. og öllum þeim mörgu sem unnið hafa að undirbúningi þessa erfiða og umdeilda máls. Ég tel það til sóma fyrir Alþ. að afgr. þetta mál. Það hefði verið afar leitt til þess að vita, ef þetta mál hefði dagað uppi og orðið okkur til minnkunar bæði inn á við og þá ekki síður út á við.