18.05.1976
Efri deild: 127. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4580 í B-deild Alþingistíðinda. (4183)
Starfslok efri deildar
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Fyrir hönd okkar þdm. óska ég hæstv. forseta og fjölskyldu hans alls hins besta nú við þessi tímamót. Jafnframt vil ég leyfa mér að segja fyrir okkar hönd að hann hefur með frábærri sanngirni stjórnað hér fundum í góðri samvinnu við okkur deildarmennina, Ég tel það ekki ofmælt þó ég segi frábær, því ég veit ekki til að ágreiningsefni hafi orðið á milli okkar og hans í hans vandasama starfi. Ég óska þess að víð megum sjá hann á komandi hausti, þegar þing kemur saman á ný, heilan og hressan og bið hv. þdm. að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]