18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4583 í B-deild Alþingistíðinda. (4191)

278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976

Frsm. minni hl. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Við fyrri umr. um það mál, sem hér er verið að ræða, gerði ég nokkra grein fyrir því hvernig þáltill. um vegáætlun, sem lögð var fram fyrir rúmri viku, kom mér fyrir sjónir og hvað í henni fælist að mínum dómi. Hv. formaður fjvn. hefur nú gert grein fyrir afgreiðslu n. eða meiri hl. hennar á þessari till. Í öllum þeim önnum, sem verið hafa á Alþ., hefur að sjálfsögðu gefist lítill tími til að vinna að afgreiðslu þessa mikilvæga máls á þann veg sem þyrfti, og ekki gefst heldur tími til að gera vegáætlun þau skil sem vert væri nú við síðari umr.

Fyrir skömmu hefur verið útbýtt nál. minni hl. fjvn., en að því standa fulltrúar Alþb., Alþfl. og SF. Fæstum hv. þm. hefur gefist tími til þess að lesa það nál. og mun ég því koma því til skila við þessa umr. um málið.

Í till. til þál. um vegáætlun fyrir árið 1976–1979 er gert ráð fyrir 25% niðurskurði framkvæmda á þessu ári miðað við áætlaðar framkvæmdir samkv. núgildandi vegáætlun. Þessi niðurskurður kemur til viðbótar jafnmiklum niðurskurði á árinu 1975. Framkvæmdir í ár eru því samkv. þáltill. einungis um 56% af framkvæmdamagni á vegáætlun 1974.

Í þáltill. um vegáætlun var þessi niðurstaða um óbreytta krónutölu framkvæmdafjár til nýrra hraðbrauta, þjóðbrauta og landsbrauta og um niðurskurð vegaframkvæmda um fjórðung fengin með því að auka lántökur um 52% á árinu 1976, eða úr 1050 millj. kr. í 1600 millj. Í þáltill. er gert ráð fyrir að 75% allra framkvæmda við nýja þjóðvegi byggist á lántökum, þ. á m. bráðabirgðalánum til eins eða tveggja ára, en greiðsla þeirra lána kemur til frádráttar framkvæmdafé þegar á árunum 1977 og 1978.

Hinn 16. maí 1975 voru samþ. á Alþ. lög sem gerðu skylt að tekið yrði 2000 millj. kr. lán til framkvæmda við Norður- og Austurveg á næstu 4 árum eða 500 millj. kr. til jafnaðar á ári, í fyrsta sinn 1976. Var því slegið föstu að fjárhæðir þessar kæmu til viðbótar almennu framkvæmdafé á þessum árum.

Þrátt fyrir samþykkt þessara laga um sérstakar framkvæmdir við Norður- og Austurveg var í þáltill. um vegaframkvæmdir á árunum 1976–1979 gert ráð fyrir að þessi fjáröflun, sem innifalin var í tekjuhlið áætlunarinnar, rynni til almennra vegaframkvæmda. Einungis með þessum hætti hafði ríkisstj: flokkunum tekist að halda óbreyttri krónutölu framkvæmdafjár til nýrra þjóðvega, en það jafngildir í reynd 25% niðurskurði.

Eftir að þm. gerðu sér grein fyrir að hverju var stefnt með þessari uppbyggingu vegáætlunar, varð l.jóst að ríkisstj. var ókleift að afgreiða vegáætlun með venjulegum og Lögboðnum hætti.

Stjórnarflokkarnir hafa því orðið að horfast í augu við þá staðreynd að þeir hafa komið málum Vegasjóðs í algert þrot á tveggja ára stjórnartíma sínum og eru ekki færir um að afgreiða vegaáætlun eins og lög standa til. Hefur því verið gripið til þess ráðs að áætla tekjur á pappírnum 100 millj. kr. hærri en gert var í þáltill. sem lögð var fram fyrir 10 dögum. Á þessari hækkun áætlaðra tekna af innflutningsgjaldi og þungaskatti hafa engar skýringar fengist eða frekari sundurliðanir. Jafnframt hefur verið ákveðið að skera niður áætluð framlög til verkfræðilegs undirbúnings um 20 millj. kr. eða um 16% og til vatnaskemmda og ófyrirséðs kostnaðar, um 30 millj. eða um 41%.

Till. þessar eru algerlega óraunhæfar. Aukning framkvæmdafjár með þessum hætti er fullkomlega jafngildi þess að fóðra hund með bita af eigin rófu.

Með þessum hætti er lagt til að framlög til nýrra þjóðvega hækki um 150 millj. kr. og á að verja þeirri hækkun til framkvæmda við Norður- og Austurveg, en framlög til annarra framkvæmda verða óbreytt og skerðast að raungildi um fjórðung frá árinu 1975.

Enn skortir þá 350 millj. kr. til þess að staðið sé við lagaákvæðið um að 500 millj. kr. lánsfjáröflun til Norður- og Austurvegar á þessu ári verði raunverulega varið til þessara vega. Þess í stað er nú við það miðað að óbreytt fjárveiting að krónutölu til almennra vegaframkvæmda. sé m.a. byggð á 354 millj. kr. láni frá Norður- og Austurvegi og eigi að endurgreiðast á næsta ári eða árum, þannig að almennar framkvæmdir skerðist þá sem því nemur frá því sem ella yrði til þeirra varið.

Þegar þessi óskapnaður allur lá fyrir varðandi vegáætlun fyrir árið 1976 og algert getuleysi blasti við varðandi næstu 3 ár, sem skylt er að gera áætlun um samkv. vegal., var uppgjöfin staðfest með flutningi frv. ríkisstj. um breytingu á vegal., þess efnis, að engin vegáætlun verði afgreidd eins og gildandi lög gera ráð fyrir, heldur verði tekjur og gjöld Vegasjóðs á þessu ári einungis samþykkt með bráðabirgðavegáætlun.

Alþ. hefur einungis haft þáltill. um vegáætlun til meðferðar í rúma viku samtímis því að ríkt hafa á Alþ. meiri annir vegna fyrirhugaðra þingslita en áður hefur þekkst. Er því ljóst að ekkert svigrúm er til að ráða fram úr vandamálum Vegasjóðs á þessum fáu dögum.

Afgreiðsla vegáætlunar er eitt hinna mikilsverðustu mála þingsins. Verður því mjög að átelja hvernig hæstv. ríkisstj. hefur staðið að afgreiðslu þessa máls eftir að stefna hennar í efnahagsmálum hefur komið Vegasjóði í algert þrot.

Eftir tveggja ára stjórnarsetu hægri stjórnar undir forustu Sjálfstfl. blasir við í vegamálum æðiólík mynd en sú sem Sjálfstfl. gaf fyrirheit um áður en hann tók við stjórnarforustunni. Þá töldu forustumenn flokksins sjálfsagt að stórauka framlag ríkissjóðs til vegamála af þeim tekjum sem hann hefur af umferðinni í landinu. Slík úrræði til að efla hag Vegasjóðs heyrast ekki úr þeim herbúðum nú, enda hafa stjórnarflokkarnir ekki síður komið ríkissjóði í þrot en Vegasjóði þrátt fyrir síhækkandi tekjur ríkissjóðs af umferðinni.

Þess má geta, að samtímis því, að ríkissjóður greiðir 1556 millj. kr. á árinu 1976 í afborganir, vexti og beint framlag vegna Vegasjóðs, nema tekjur í ríkissjóð af tollum og söluskatti af bifreiðum og bensíni 4200 millj. kr.

Söluskattstekjur ríkissjóðs af bensíni og bifreiðum eru áætlaðar 1900 millj. kr. í ár og nema nærri jafnhárri upphæð og varið er til allra nýrra vegaframkvæmda. Hafa söluskattstekjur ríkissjóðs af bensíni og bifreiðum þá hækkað um nær 500 millj. kr. frá árinn 1975 á sama tíma og raungildi vegaframkvæmda lækkar um fjórðung.

Eftir tveggja ára forustu Sjálfstfl. íríkisfjármálum er hag ríkissjóðs hins vegar svo komið þrátt fyrir síaukna skattheimtu að þaðan er engrar aðstoðar að vænta fyrir Vegasjóð. Má í því sambandi geta þess að samkv. nýjustu opinberum upplýsingum um skuldir ríkissjóðs og ríkisstofnana við Seðlabankann hafa þær enn aukist í marsmánuði s.l. um 1218 millj. kr.

Vegna þess, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur leikið Vegasjóð og ríkissjóð, verður ekki á svo örskömmum tíma, sem gefinn er til afgreiðslu vegáætlunar, spornað við því að stjórnarflokkarnir afgreiði málefni Vegasjóðs með þeim einstæða hætti sem þeir stefna að.

Til þessa hefur jafnan við afgreiðslu vegáætlunar tekist að ná samstöðu þm. stjórnar og stjórnarandstöðu og heildarafgreiðslu málsins. Minni hl. fjvn. telur hins vegar að vegna þess hversu seint þáltill. um vegáætlun er komin fram að þessu sinni og hvernig að undirbúningi og afgreiðslu hefur verið staðið sé honum ókleift að afgreiða vegáætlunina á þann hátt sem meiri hl. fjvn. hefur nú ákveðið.