18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4593 í B-deild Alþingistíðinda. (4195)

278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég skal vera mjög stuttorð. Ég ætla mér ekki að gera vegáætlun að umtalsefni hér í einstökum atriðum. Ég vil aðeins taka undir þau meginsjónarmið, að ég tel þessa þróun um hið síaukna hlutfall hraðbrauta í okkar ráðstöfunarfé til vegamála mjög varhugaverða. Ekki þar fyrir, að hraðbrautir og góðir varanlegir vegir eru auðvitað góður og æskilegir í sjálfu sér. En það er staðreynd að þetta óhæfilega mikla fjármagn til hraðbrautanna verður til þess að öðrum vegum, þjóðbrautum og landsbrautum, er haldið í algeru svelti. Það liggur í augum uppi og þarf ekki að fjölyrða frekar um það. Vonandi er að ný vegalög muni breyta stefnunni í þessum efnum. Ég verð því miður að segja að það litla, sem ég hef heyrt af störfum þeirrar n. sem hefur unnið að gerð nýrra vegalaga, bað finnst mér ekki gefa ástæðu til bjartsýni. Það liggur og í augum uppi að fjármögnun Vegasjóðs verður að taka til endurskoðunar þannig að hann sé að einhverju leyti hlutverki sínu vaxinn og þurfi ekki að vera svo átakanlega háður lánsfé eins og hann er í dag.

Ég hef leyft mér að bera fram smá brtt. sem er til komin í tilefni af brtt. á þsk3. 935 frá hv. þm. Ragnhildi Helgadóttur sem hljóðar á þá leið, að Vesturlandsvegur um Borgarfjörð, sá liður skuli felldur niður. Ef svo kynni nú að fara að þessi fjárfúlga liggi á lausu og það væri ekkert sérstakt brúk fyrir hana neins staðar annars staðar, þá langar mig til þess að gera till. um í brtt. þeirri, sem ég er með, að brtt. á þskj. 935 orðist þannig að í stað orðanna „Liðurinn fellur niður“ komi: Texti liðarins orðist svo: Djúpvegur. — Þetta er stórt og mikið verkefni, þörfin er brýn, ótvíræð og okkur Vestfjarðaþm. finnst 25 millj. kr. framlagið til Djúpvegar í rýrasta lagi. Ég leyfi mér að leggja þessa brtt. fram hér til góðfúslegrar athugunar.