18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4600 í B-deild Alþingistíðinda. (4201)

278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs fyrst og fremst til að þakka hæstv. samgrh. fyrir skýlausa yfirlýsingu hans um, að fjármagn það, sem nú er boðið út vegna Norður- og Austurvegar. verði geymt til næsta árs eða e.t.v. næstu ára að einhverju leyti, umfram það sem nú hefur orðið samkomulag um að varið verði til þessara vegaframkvæmda á þessu ári, þ.e.a.s. 150 millj. Þar af eru 100 millj. í Norðurveg og 50 millj. í Austurveg. Fyrir viku, þegar ég kom aftur til þingstarfa utanlands frá, þá sýndist mér þessi mál ekki horfa nógu vel, en ljóst var að mikill fjárskortur var hjá Vegasjóði, og þess vegna var það mál okkar, sem að þessu frv. stóðum fyrir ári, að við værum reiðubúnir til þess að fallast á að lánað yrði eitthvað af fjármagninu til að herða ekki um of að öðrum vegaframkvæmdum í landinu, en þó auðvitað með því skilyrði að þetta fé yrði ekki tekið endanlega í hinn almenna Vegasjóð, heldur yrði það greitt á næsta ári til framkvæmda við þá vegi sem því var ætlað að vera notað til. Og yfirlýsing ráðh. er sem sagt alveg skýlaus í þessu efni og fagna ég því.

Það er að vísu svo, að sjálfsagt verður þetta fjármagn minna virði á næsta ári en það hefði orðið í ár. En við búum nú öll við erfitt fjárhagsástand og sjálfsagt að fallast á að hafa þennan hátt á málum. Við gleðjumst sérstaklega yfir því að samkomulag hefur orðið um að af því fjármagni, sem fer í Norðurveg, verði 75 millj. varið til þess að byggja upp veginn á Holtavörðuheiði sem er meginfarartálmi milli Norðurlands og Suðurlands og 25 millj. fari til að bæta veg á Öxnadalsheiði sem er annar helsti farartálminn á leiðinni milli hinna tveggja höfuðborga Norðurlands og Suðurlands.

En að því er aftur varðar deilurnar sem hafa orðið um skiptingu fjármagns milli hraðbrauta, landsbrauta og þjóðbrauta, þá skal ég ekki blanda mér í þær að öðru leyti en því að benda á að menn verða að hafa það hugfast að mjög mikið af aðalvegum landsins er nú þegar í hraðbrautatölu og sumir af þeim vegum eru beinlínis nánast ónýtir. Vegamálastjóri fræddi mig á því áðan að vegurinn t.d. á Hrútafjarðarhálsi hefði í morgun verið gersamlega ófær. Hann er hraðbraut. Og hann er inni í þessum áætlunum sem nú er unnið að gerð vega eftir. Ég minnist þessa að síðustu vor mörg hver hafa vegir í Vestur-Húnavatnssýslu einkum verið með þeim hætti að þó að maður hafi ekið þar á jeppa, þá hefur varla verið hægt að komast áfram og oft hefur orðið að fara utan vegar. Nú er þessi vegur aðalbrautin á milli Reykjavíkur og Akureyrar ófær, gersamlega. Og þess vegna er auðvitað ekki hægt að segja að ekki megi verja fjármagni til uppbyggingar hraðbrauta ef bær eru enn þá verri heldur en þjóðbrautir og landsbrautir, eins og er í þessu tilfelli, að vísu kannske ekki allt árið, en á vissum árstímum. Þarna er um framkvæmd að ræða á milli Hrútafjarðar og Miðfjarðar sem kostar um 200 millj. kr. Við höfum getað látið í þessa framkvæmd af Norðurlandsfé og hraðbrautarfé samtals nú 1/5 hluta af þessu eða 40 millj. kr. Þetta er vegarkafli sem alger nauðsyn er, ekki bara fyrir það kjördæmi sem ég starfa fyrir, heldur fyrir landið allt, að verði byggður upp þannig að hann verði fær a.m.k. nokkurn veginn allt árið og eyðileggist ekki um leið og þungatakmörkunum er létt af, eða bara þær eru minnkaðar þó þeim sé ekki að fullu aflétt, eins og nú hefur verið gert.

Hitt er allt annað mál, og það skal ég fúslega fallast á, að í erfiðu efnahagsástandi eins og nú er, þá er ekki til fjármagn til þess að leggja bundið slitlag svo að neinu nemi á hraðbrautirnar, hvorki hér sunnanlands né annars staðar. En ég fellst ekki á það sjónarmið að aldrei megi leggja bundið slitlag á neinn vegarspotta nema byrjað sé út frá Reykjavík. Það eru til spottar annars staðar á landinu þar sem meiri umferð er en hér í nánasta nágrenni, eins og t.d. í gegnum Blönduós, svo að dæmi sé nefnt, og út frá Akureyri, nánasta nágrenni Akureyrar, og auðvitað má alveg eins byrja á þeim vegarköflum eins og hér t.d. uppi í Hvalfirði.

En ég skal ekki tefja þessar umr. Ég vildi aðeins undirstrika að það hefur verið samkomulag frá okkar hálfu, sem stóðum að frv.-flutningi hér í fyrra og fengum samþykkt lög um Norðurveg og Austurveg, — samkomulag við samgrh. og gott samstarf við hann um að hafa þann hátt á sem raunin hefur orðið, að nota einungis 150 millj. í ár af þeim 500 millj. sem út verða boðnar, en geyma 350 millj. Við teljum að við leggjum okkur þar fram um það að sýna að við viljum taka ábyrga afstöðu í erfiðu fjárhagsástandi, og ég vona að allir geti á þetta sæst.