18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4601 í B-deild Alþingistíðinda. (4202)

278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Það var raunar aðeins lítil aths. sem ég ætlaði að gera og ekki lengja umr. um áætlunina. En mér sýndist að hv. 5. þm. Reykv þyrfti enn að fara í smiðju til þess að laga sina till., því að ég sé ekki annað en það séu á henni formgallar enn þá ef ég hef heyrt rétt hvernig till. var lesin upp. Mér sýnist að það þurfi að breyta einu í viðbót. Það er till. um breyt. á almennri lánsfjáröflun, liður 1.2, í, undirliður. Síðan er farið yfir í sundurliðunina beint ef ég heyrði rétt: Vesturlandsvegur um Borgarfjörð. Liðurinn falli niður. En þá sé ég ekki annað en það þurfi líka að fara í gjaldalið 2.3.1. og lækka þann lið líka til þess að áætlunin sé rétt, en það er ekki till. um að breyta þeirri tölu líka. Ég vildi vinsamlega benda á að enn þá sýnist mér að þurfi að breyta till. til þess að hún standist miðað við áætlunina sjálfa.

En úr því að ég er nú kominn hér í ræðustól, þá vil ég taka undir það að enda þótt ég skrifi án fyrirvara undir álit meiri hl. fjvn., þá er víðs fjarri að ég sé að öllu leyti ánægður með þá niðurstöðu sem hefur orðið hjá okkur. Og af því að hv. 2. þm. Austurl. kvaddi sér hljóðs áðan og talaði um hlut þess landshluta, þá verð ég þó að benda honum á að enda þótt ekki sé um hraðbrautir þar að ræða, þá gerir það ansi mikinn mun að það er þó í gangi Austfjarðaáætlun sem breytir þessum hlut og gerir hlut Austfjarðanna tiltölulega góðan miðað við Vestfirðina a.m.k. (LJós: Vestfjarðaáætlunin var búin.) Já, það er rétt, Vestfjarðaáætlunin er 10 ára gömul áætlun, og það tjóar ekki að tala um það endalaust að það hafi einu sinni verið framkvæmd Vestfjarðaáætlun og það séu til góðir vegir þar á heiðum þegar allt er ógert í flestum byggðum sem ekki er hægt að komast um. Einhvern tíma hl.ýtur að koma að því að það verði hætt að tala um það. En þetta er atriði sem klingir sífellt í eyrum.

Ég ætla ekki að ræða mikið um þetta, en ég vil aðeins taka undir það, að ég lýsi sérstökum vonbrigðum mínum með það að við umr. um Norðurlandsáætlun skyldi ekki hægt að koma til móts við okkur um neina umþóttun. Og nú er á einu svæði, sem var metið í upphafi áætlunarinnar til jafns við Strandabyggð, nær fjórfalt fjármagn á við þar. Um þetta geri ég ekki brtt., en ég vildi lýsa því að ég er hreint ekki ánægður með þá niðurstöðu. Ég hygg að hér hafi komið fram í umr, að frá þessari áætlun hafi ekki verið gengið á þann hátt sem ætlast er til, og ég vænti þess að það takist viðtækara samstarf um þá áætlun næst þegar upp verður staðið.