18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4602 í B-deild Alþingistíðinda. (4203)
278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er nú lágmarkskurteisi við jafngrandvaran og háttvísan þm. eins og hv. þm. Ólafur G. Einarsson er að svara þeim spurningum sem hann bar hér fram áðan. Þessi hv. þm. er nú vikinn af fundi og sefur væntanlega svefni hinna réttlátu. (Menntmrh.: Það borgar sig ekki að svara honum.) Það mun vera rétt hjá hæstv. ráðh., hann þekkir það, en hann gæti þó kannske lesið það ef hann gæfi sér tíma til þess þótt síðar verði.
Hann spurði í fyrsta lagi af hvaða vegi við, sem stöndum að brtt. um veggjald, hygðumst taka upp slíka skattlagningu. Því er fljótsvarað. Það eru þeir vegir sem nú eru með þeim hætti að það er talið eðlilegt, þ.e.a.s. Reykjanesbrautin og Suðurlandsvegur, og væntanlega, ef fram heldur sem horfir, líða ekki mörg ár þar til fleiri slíkir bætast í hóp gjaldtökunnar ef áfram verður haldið hraðbrautaframkvæmdum hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu eins og nú er gert ráð fyrir.
Þá spurði hann í öðru lagi um upphæð gjaldsins. Ég greindi frá því, og það hélt ég að hv. þm. Ólafur G. Einarsson vissi, að hér væri um að ræða uppfært í kostnaði annars vegar gjaldið sjálft og hins vegar launakostnaðinn frá því sem þetta var þegar Vegagerðin gerði sína áætlun. Ég vil minna þennan hv. þm. á að það mun hafa verið 1965 sem vegskattur var fyrst á lagður og þá á Reykjanesbraut. Þessi vegskattur var að vísu misjafn eftir stærðum bifreiða, en hann stóð óbreyttur allt til ársins 1973, að ég held, að hann hafi verið afnuminn, 1972 eða 1973, ég þori ekki að full,yrða um hvort árið það var, en hann stóð óbreyttur allt til þess tíma. Og þá sjá menn hversu mikil blóðtaka þetta hefur verið þeim sem þessa leið óku á þessu árabili. Hafi gjaldtakan verið réttlát þegar hv. 1. þm. Suðurl. var samgrh., á þeim tíma sem gjaldið var á sett, 1965, þá er það gjald sem hér er reiknað með, sem gæti verið um 150 kr. til viðmiðunar við 50 kr. áður, ekki of í lagt í kostnaði í samanburði við það sem þeir spara sem eiga þess kost að aka þessa vegi.
Hann beindi þeirri leiðbeiningu til mín að ég reyndi ekki aftur, ef mistækist nú að fá þetta mál samþykkt, þennan fíflaskap, sagði hann. Ég er efins í því að það sé nú hljómgrunnur fyrir slíku tali um þetta mál nema þá kannske innan hins þrönga hrings sem þessi hv. þm. starfar fyrst og fremst á, þ.e.a.s. Garðabæjar hins nýja og svæðisins hér í kring. En hvað um það, það má vel vera að í augum þessa hv. þm. sé hér um fíflskaparmál að ræða og að hann telji sig þess umkominn að geta talið dreifbýlisfólki trú um að hér sé um rangláta skattheimtu að ræða. Ég vil aðeins í þessu sambandi minna þennan hv. þm. á það — og þm. almennt, hverju hann hélt fram í sambandi við þá breytingu sem gerð var á 10% sjóðnum fyrir ári þegar það var hækkað upp í 25%. Þá stóð hann hér streittur við í ræðustól á Alþ. að reyna að telja þeim þm., sem börðust fyrir þessari hækkun á sjóðnum, trú um það að þeir væru einungis með þessari hækkun að rýra þann hlut sem kæmi til þessara dreifðu byggða, með því að hækka þennan sjóð úr 10% í 25%. Allir sjá nú hvert samræmi er í þeim málflutningi. Og eins mun fara fyrir þessum hv. þm. hversu mikið sem hann reynir á sig til þess að telja a.m.k. dreifbýlisfólki trú um það að það sé ranglátt að setja þennan skatt á aftur.
Ég þarf í raun og veru ekki að eyða fleiri orðum að því sem þessi hv. þm. sagði. En mig langaði til þess að spyrja hæstv. samgrh. einnar spurningar, og ég vænti þess að hann geti svarað henni. Að vísu beindi hann orðum sínum til hv. 2, þm. Vestf., en hv. þm. Steingrímur Hermannsson ræddi hér um Norðurlandsáætlun, og eins og hér hefur komið fram hefur a.m.k. að nafninu til hluti Vestfjarða verið talinn tilheyra þeirri áætlun. En hæstv. samgrh. sagði af þessu tilefni að það væri lágmark að hann fengi áætlunina til þess að geta staðfest hana. mig langar að þessu gefna tilefni að spyrja hæstv. samgrh. um það, hvort hann hafi ekki staðfest framkvæmdir vegna Norðurlandsáætlunar á árinu 1975. Hver var það, sem staðfesti þá áætlun? Var það ekki hæstv. ráðh.? Ég vænti þess að svar við þessari spurningu fáist frá hæstv. ráðh.
Þá gat hæstv. ráðh. þess að hann vildi helst fá till. þessa efnis fyrr þannig að hún gæti verið til umfjöllunar á svipuðum tíma og vegáætlun er í undirbúningi. Ég fellst á þessa skoðun hæstv. ráðh. og hugsa gott til glóðarinnar, fari svo að till. þessi verði felld nú, að koma henni það tímanlega á framfæri við hæstv: ráðh. áður en næsta vegáætlun verður lögð fram hér á Alþ. að honum gefist tækifæri til þess að þjóna þessu sínu gamla hugðarmáli sem hann var baráttumaður fyrir á sínum tíma, en virðist nú hafa að einhverju leyti — ég segi ekki miklu, einhverju leyti breyst nú hin síðari ár.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð hér um. Ég vil þó aðeins segja út af því sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson sagði áðan um að hraðbrautarleiðin á Hrútafjarðarhálsi væri nú ófær, að það er nú því miður svo að það geta fleiri vegir orðið ófærir heldur en hraðbrautir. Það ætti þessi hv. þm. að kannast við. Það eru bæði þjóðbrautir og landsbrautir sem geta verið og eru ófærar, og það er ástæða til þess að sinna þeim þættinum í sambandi við vegaframkvæmdir ekki síður.
Ég vil svo að síðustu taka undir það, sem hér hefur komið fram og ég hef raunar látið í ljós áður, að ég tel að sú skipting sem nú er í sambandi við framkvæmdir í vegamálum þegar nær helmingur alls framkvæmdafjárins í sambandi við nýbyggingar vega fer til hraðbrauta á þessu takmarkaða svæði, eins og staðreynd er, þá er óeðlilegt og því verður ekki unað öllu lengur, hvað sem þeir talsmenn hraðbrautarlínanna segja, þá er það augljóst mál að hér er um að ræða svo mikið óréttlæti gagnvart landsbyggðinni að því verður ekki unað öllu lengur. Og það má raunar furðu gegna hversu dreifbýlisþm. í þeim kjördæmum, sem lítið sem ekkert fá af þessu fé, hversu lengi þeir hafa látið sér lynda þessar framkvæmdir og þessa skiptingu í sambandi við vegaféð. En það er alveg öruggt mál, að það hlýtur að koma að því fyrr en seinna að þess verður krafist að hér verði gerð breyting á og réttlátari skipting tekin upp í sambandi við framkvæmdirnar í vegamálum.