18.05.1976
Sameinað þing: 93. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4605 í B-deild Alþingistíðinda. (4208)
114. mál, sjónvarp á sveitabæi
Frsm. (Steinþór Gestsson):
Herra forseti. Á þskj. 139 er að finna till. til bál. um sjónvarp á sveitabæi með aðstoð Byggðasjóðs. Till. þessari var vísað til fjvn, og hún sendi till. til umsagnar til Ríkisútvarpsins og til Byggðasjóðs. Umsagnir frá þessum aðilum bárust mjög seint, komu ekki til n. fyrr ca. 11. og 13. maí, svo að það mátti segja að það væri ekki langur tími sem gafst fyrir fjvn. að meta þær umsagnir, sem bárust, og gera sér að því loknu grein fyrir með hverjum hætti skyldi stutt að eða leyst úr þeirri þörf sem er bent á í tillgr.
Það kom nokkuð á óvart með umsögn útvarpsstjóra, að það virðist svo sem Ríkisútvarpið hafi ekki haft í hyggju að reyna að koma til móts við staka sveitabæi til þess að gera þeim kleift að fylgjast með sjónvarpi. Segir svo í umsögn útvarpsráðs að enn þá eru í landinu nokkrir byggðakjarnar sem njóta ekki sjónvarps. Lengi hefur það verið hugmynd Ríkisútvarpsins að reyna að leysa vanda þeirra staða þar sem fyrir væru 7 notendur eða fleiri, en sökum þess fjárskorts, sem vel er lýst í grg. með till., hefur ekki reynst unnt að hrinda þessu í framkvæmd. Hins vegar hefur jafnan verið talið ókleift fyrir Ríkisútvarpið að sinna þörfum einstakra sveitabæja.
Umsögn Byggðasjóðs er jákvæð að því leyti, að framkvæmdastjórar Framkvæmdastofnunarinnar láta í ljós það álit sitt að þetta mál muni verða metið af Byggðasjóði í hverju tilviki þegar til hans verði leitað.
Sökum þess, hversu umsagnir bárust seint, þá sýndist fjvn. að það væri eðlilegust afgreiðsla á þessu mikilvæga máli að því yrði vísað til ríkisstj. svo að tóm gæfist til að finna leiðir til þess að leysa úr brýnni þörf. Fjvn. er ljóst mikilvægi málsins og hún metur það svo að þeir, sem búa á afskekktum stöðum og í mestu fásinni, hafi í raun mestu þörfina fyrir að geta notið sjónvarpsins. Það má að vísu, eina og segir í nál. n., segja sömu sögu um sjómenn á fiskimiðum umhverfis landíð. En með skírskotun til þess, sem ég hef rakið hér um umsagnir um málið og hug fjvn. til þess, þá sýndist n. að það væri líklegasta úrræðið í þessu efni og líklegasta lausnin að svo stöddu að vísa málinu til ríkisstj., og voru nm. allir sammála um það sem á fundi voru þegar málið var tekið fyrir.