19.05.1976
Sameinað þing: 94. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 4608 í B-deild Alþingistíðinda. (4219)
278. mál, bráðabirgðavegáætlun 1976
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Herra forseti. Það er skoðun mín að áhæfilega háu hlutfalli af okkar takmarkaða vegafé sé enn sem fyrr skv. þessari vegáætlun varið til hraðbrauta á meðan fjöldi byggðarlaga úti um land býr við hina frumstæðustu gerð vega í tölu þjóðbrauta og landsbrauta. Þetta lélega ástand vega veldur því m.a. að viðkomandi byggðarlög einangrist á vetrum lengri eða skemmri tíma vegna snjóalaga. Í samræmi við þessa skoðun mína og sem andsvar og nauðvörn gegn ríkjandi hraðbrautapólitík þá segi ég hér já.