20.11.1975
Sameinað þing: 19. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 628 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

39. mál, eignarráð á landinu

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Það er sagt um tímann að hann græði flest sár, og furðu lengi heldur hann áfram að göfga yfirbragð Alþfl. þó að tönn hans virðist einnig halda áfram að vinna á innrætinu. Ég stend hér upp til þess að segja frá því í tiltölulega stuttu máli hvers vegna ég er staðráðinn í því að greiða atkv. gegn þáltill. sem að orðanna hljóðan er þó ekki óskynsamleg að mínu áliti. Það er orðið nokkuð langi síðan vísir þessarar þáltill. var fyrst settur í mold innan veggja þessa virðulega hóps. Orðalagsbreytingar hafa orðið ýmsar á henni á tímabilinu. Hér hefur farið fram talsverð göfgun eins og oft er þegar lengi er unnið að máli. En orsökin að þessum þráflutningi, eins og frsm. orðaði þetta sjálfur, orsökin blasir enn þá við okkur. Uppruni þessarar þáltill. blasir enn við okkur.

Hin rætna árátta til þess að hefna þess á Alþ. sem hallaðist á í héraði hjá frumflm. þessarar till. blasir við okkur enn. Í lok 3. mgr. grg. sem segir: „Fráleitt er að landeiganda eða landeigendum, sem engin tök hafa á að nýta vatnsorku af eigin rammleik, skuli geta haldist uppi að varna íbúum heilla byggðarlaga, jafnvel landshluta, notkun fallvatna til orkuframleiðslu.“ Það eina, sem sleppt er í grg., er að játa þó það, sem satt er og blasir við, að þráflutningurinn á rætur í Laxárdeilunni illræmdu fyrir norðan.

Það situr ekki á mér að mæla gegn því að staðfest verði með löggjöf sameign íslendinga á öllu landinu frá ystu landgrunnsbrúnum með öllum gögnum og gæðum. Við skoðun á gildandi lögum og fornum lögum kemur í ljós að í vissum lagalegum skilningi er Ísland allt með gögnum og gæðum sameign allra landsmanna. Og eignarrétti einstaklinga á landi eru raunar þau takmörk sett, að heita má að einstakir eigendur lands, hvort heldur þar er um að ræða bújarðir eða smærri spildur, hafi þessi svæði nánast að léni. Svo mörg eru þau ákvæði sem í lögum eru og í lög hafa komið sem skerða yfirráðarétt þeirra yfir þessum spildum og yfir þessum jörðum. Hitt er svo annað mál, að sá andi hefur ríkt á þessu landi og þá einkum á velgengnisárunum eftir síðustu heimstyrjöld að völd einstaklinga yfir einkaeign hafa verið aukin umfram það sem lög raunverulega leyfa, eða a. m. k. umfram það sem andi laga virðist leyfa. Og afleiðingin hefur komið fram í ýmiss konar braski þar sem gengið hefur verið á rétt samfélagsins í heild til gæða þessa lands.

Ég get með engu móti tekið undir lofsöng hv. þm. Pálma Jónssonar um helgi eignarréttarins. Ég hef heyrt of marga menn syngja þennan lofsöng um helgi eignarréttarins skömmu eftir að auðgunarverki lauk. Ég er þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að endursmíða í mörgum greinum þá löggjöf, sem lýtur að eignarhaldi á landi, og tryggja rétt fólksins til þessa lands. Ég er þeirrar skoðunar að kveða beri á um það í lögum að hver einasti ferþumlungur Íslands skuli vera sameign þjóðarinnar og að réttindi einstakra þegna til lands skuli miðuð við nytjar þess. En það er býsna vandasamt verk og útheimtir mikla félagslega yfirsýn að semja þá löggjöf og tryggja framkvæmd hennar þann veg að til heilla horfi, og ég verð að segja eins og er, að ég tel æskilegt að það verði annars konar ríkisstj. en sú, sem nú situr á landi hér, sem forgöngu hafi um slíkt verk.

Það var fyrir löngu, eða skömmu fyrir seinni heimsstyrjöldina, að einn af helstu forustumönnum íslenskra bænda, Páll Zóphóníasson, hafði í aðalalriðum samið frv. um ríkiseign á öllu landi, þ. á m. á byggingarlóðum, í því skyni að hindra jarðabrask. Þar var svo ráð fyrir gert að réttur bænda yrði tryggður með erfðafestuákvæðum, þannig að þeir misstu einskis í við þessa lagasetningu nema réttarins til að selja land. Aðeins sá réttur var skertur. Þetta frv. var ekki lagt fram og því ollu ýmsar ástæður, m. a. heimsstyrjöldin. Ég er þeirrar skoðunar að þarna hafi verið stefnt í rétta átt og að æskilegt væri að þráðurinn yrði tekinn upp aftur þar sem frá var horfið þegar tóm gefst til og þeir menn eru til valda komnir sem við treystum til þess að fjalla um slíkt. En ég ítreka það, að ég er efins um að þeim aðilum, sem nú fara með völd, sé til þess trúandi að leiða þetta vandamál til lykta. Meðferð þeirra, sem nú sitja að völdum hér á sameign þjóðarinnar, og viðhorf þeirra til gæða þessa lands og auðlinda þess er ekki með þeim hætti að ég megi til þess hugsa að umboð til þess að ráðskast með eignarrétt á öllu Íslandi komist nú þegar á eina hendi. Ég má ekki til þess hugsa. Og þegar ég hugleiði nú hver afstaða flm. þessarar þáltill. hefur verið til þeirrar ráðsmennsku sem hefur átt sér stað á gögnum og gæðum þessa lands í tíð núv. ríkisstj., þegar ég hugsa til þess hver afstaða Alþfl. hefur verið í heild til þessarar ráðsmennsku, þá hrýs mér hugur við áhyggjum sem gerð er grein fyrir í grg. út af mengun lofts og lagar og spillingu lands, og mér hrýs hugur við þeim brjóstheilindum, að þessir sömu menn skuli leyfa sér að taka slíkt sér í munn hér á Alþ.

Ég er og uggandi um það, að umboð, sem núv. valdhafar mundu fá til þess að ráðskast með landið, yrði notað til þess að braska með Ísland allt í einu lagi, til þess að halda áfram að selja útlendum auðhringum orku fallvatnanna okkar, til þess að semja við erlenda kapítalista, ekki aðeins um nýtingu á landgrunninu okkar núna, heldur öllum gögnum og gæðum landsins, og uggandi um það, að jafnvel erlendum ferðaskrifstofum yrði í stundarörvinglan blankrar ríkisstj. heimilaður afnotaréttur af unaðsblettum þessa lands. M. ö. o.: ég má ekki til þess hugsa að ríkisstj. íhalds eða samstjórnar íhalds og krata, sem við þekktum fyrir skemmstu í 12 ár, fjalli um þjóðnýtt Ísland og hafi á hendi eignarrétt alls Íslands. Ég vil þá miklu heldur að við búum um sinn við það viðnám sem eignarhald einstakra bænda á þó allt að því 5000 bújörðum getur orðið gegn viðleitni braskara í háum embættum til þess að koma auðlindum þessa lands í verð fyrir peninga.

Ég tel sem sagt að lagasetning á borð við þá, sem hér um ræðir, sé ekki pólitískt tímabær. Ég tel að hyggilegt væri að undirbúa þessa lagasetningu með aðgerðum sem miðuðu að því að rýra völd þeirra aðila sem líklegir væru til þess að misnota eignarhald ríkisins á landinu. Það er meira aðkallandi að byrja þjóðnýtinguna annars staðar, sagði hv. þm. Helgi Seljan áðan, en á bújörðunum, og undir það tek ég. Það er sem sé á valdi Alþingis að tryggja þjóðina gegn annmörkum eignarréttarins á landi með öðrum aðgerðum í svipinn. Fyrir hv. Alþ. liggur lagafrv., sem á að tryggja þjóðina gegn braski með háhitaréttindi. Við getum fært það í lög að hlunnindi eyðijarða, hvort heldur í veiðiskap eða öðrum hlunnindum, falli til sveitarfélaganna. Raunar hef ég nú þegar undirbúið þess háttar frv. Við getum reist skorður við því með einfaldri lagasetningu að bújarðir í grennd við þéttbýli endi í lóðabraski. Og síðast en ekki síst höfum við býsna merkilega löggjöf, eins og hér hefur áður verið tekið fram, um eignarnám, sem á að geta tryggt það um sinn að okkur verði ekki bönnuð afnot af séreignarlandi ef þjóðarnauðsyn krefur, geta tryggt okkur það um sinn, án þess að við setjum allt landið með gögnum þess og gæðum og hlunnindum í hendur ríkisstj. á borð við þá, sem nú situr, til ráðstöfunar.

Ég ítreka það, að það er skoðun mín að Ísland allt, frá ystu mörkum efnahagslögsögunnar nýju um hálendið þvert, eigi að vera eign þjóðarinnar með gögnum og gæðum. En ég er þeirrar skoðunar að þingmál það, sem hér er borið fram, sé ekki tímahært og leyfi mér að draga dálítið í efa heilindin sem að baki búa hjá flm.