25.11.1975
Sameinað þing: 21. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 655 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

63. mál, umferðarmál

Jóhannes Árnason:

Herra forseti. Sú till., til þál., sem hér liggur fyrir á þskj. 67, um umferðarmál. er vissulega tímabær. Það er alkunna hvernig ástandið hefur verið í þessum efnum nú að undanförnu. Það er alkunna að það hefur gengið yfir slysaalda í ríkari mæli og meiri en verið hafa dæmi um um langt árabil, vil ég leyfa mér að segja.

Ég held að ég geti tekið undir flest af því sem fram kemur í grg. fyrir þessari þáltill. Það er eins og hæstv. frsm. gat um, hún er flutt til þess að vekja máls á þessum hlutum og stuðla að því að úrbætur verði gerðar, og vissulega er þörf á því. Nú er það auðvitað svo, að löggæslan í landinu og dómstólar eru sífellt að vinna að þessum málum, umferðarráð er stöðugt að vinna að bættri umferðarmenningu í landinu og fleiri aðila mætti nefna. Störf þessara aðila má alls ekki vanmeta. En ég held að virkasta tækið til þess að stuðla að betra ástandi í umferðarmálum og bættri umferðarmenningu í landinu sé að skapa sterkt almenningsálit í umferðarmálum. Það þarf breyttan hugsunarhátt hjá fólki. Ökutæki í landinu eru orðin mörg, og það verður að leggja á það áherslu að sá, sem fær rétt til að stjórna vélknúnu ökutæki, fær mikinn rétt, og það verður að gera miklar kröfur til þess aðila þegar í upphafi. Í sambandi við umferðarfræðsluna þarf að byrja á byrjuninni, og það þarf að halda uppi öflugri umferðarfræðslu, fyrst og fremst í skólunum, og til að ná sem best til almennings með umferðarfræðslu þarf að nota fjölmiðlana í miklu ríkari mæli en nú er gert og þá ekki hvað síst sjónvarpið.

Þá vil ég aðeins víkja að viðurlögum við umferðarbrotum. Mín reynsla er sú að algengustu slysavaldarnir í umferðinni séu ölvun við akstur og of harður akstur. Ég veit ekki hvort allir hv. þm. hafa gert sér grein fyrir því hvað brot á áfengis- og umferðarlögum vegna ölvunar við akstur eru orðin mörg á ári. Það eru ískyggilegar tölur og þær fara hækkandi. Það er því augljóst mál að hér þarf að huga að breytingu á löggjöf með stórlega hertum viðurlögum, bæði að því er varðar refsingu og ökuleyfissviptingar. Þetta á einnig við um hraðan akstur. Of hraður akstur er mikill slysavaldur. Í nútímaþjóðfélagi virðast menn alltaf þurfa að vera að hraða sér, hvort sem þeir eru að aka innanbæjar eða að fara á milli landshluta. Menn eru alltaf í kapphlaupi við tímann, og þá fer það út í það að bensínið er stigið í botn og hraðinn aukinn. Og svo gerast slysin.

Þá vil ég einnig benda á að það er nauðsynlegt, a. m. k. í sumum hlutum landsins, ekki hvað síst þeim afskekktari, að gera verulegt átak í vegamerkingum. Þeim er því miður allvíða ábótavant. Úti á landi leynast víða hættur á vegunum, þar eru hæðir, hólar, og blindbeygjur. Það er einmitt á þessum stöðum sem hætturnar leynast, ég tala nú ekki um þegar aksturinn er í hraðara lagi. Vegagerðin þarf að taka þetta mál upp. Hún er veghaldari þjóðvega í landinu og á að sjá um vegmerkingarnar. Þessir hættulegu staðir, sem ég var að nefna, það er oft og tíðum þannig að ekki þarf nema sáralítið, að því er manni virðist, að aðhafast með jarðýtu eða hefli eða slíku tæki til að þarna verði ráðin bót á. Ég þekki það úr mínu umdæmi að í einum firði þar, í Austur-Barðastrandasýslu, hefur ástand lengi verið á þennan veg, enda þótt nokkuð hafi verið bætt úr nú nýverið. Það komst upp í, ef ég man rétt, milli 5 og 10 árekstra á einu sumri, — það er ekki opið þarna nema yfir sumartímann.

Ég vildi aðeins árétta þessi atriði, sem ég hef minnst hér á, og tek að öðru leyti undir það sem fram kemur í þessari till.