26.11.1975
Sameinað þing: 23. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í B-deild Alþingistíðinda. (473)
80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Á s. l. ári rifjuðu ræðumenn mjög upp sögu vora og arfleifð og kynstofn og komust sumir að því, þ. á m. fyrrv. hv. alþm., að við mættum rekja ættir okkar mjög til höfðingja og konunga og hefðum fengið nokkuð í arfleifð frelsi í huga og áræði og baráttu til að standast erfið lífskjör um áraraðir. Margir ræðumenn komust að raun um að enn væri þetta fyrir hendi hjá íslendingum. Nú skal ég ekki leggja neinn dóm á það, hvaða mat menn höfðu í huga, rétt eða rangt. En það mun nú senn á það reyna hvort við höfum þann sóknarhug og þá einurð til að bera á þessu herrans ári, að við þorum að takast á við þann vanda sem fram undan er til þess að tryggja sjálfstæði þessarar þjóðar, því að það fer saman að sækja út á hafið og tryggja okkar yfirráðarétt og halda sjálfstæði sínu óskertu.
Það hefur komið fram, að hér er við erfiðleika að etja. Þess vegna hefur Alþ. nú í fyrsta sinn skipst í tvær fylkingar varðandi sókn og afstöðu til þeirrar baráttu sem hefur farið saman við að sækja út á hafið, eins og landhelgismálið allt hefur sýnt. Sú samstaða hefur verið órofa hingað til, þó að smáagnúar hafi komið fram um framgang málsins, en þegar til Alþ. hefur komið hér og lokaatkvgr., lokaafstöðu, hafa menn séð sóma sinn í því að standa saman vegna eðlis málsins. En hvað er að ske nú? Nú er það augljóst mál, að bæði hér inni á Alþ. og utan dyra er miklu meiri andstaða gegn því, sem hér hefur verið lagt fram, en nokkru sinni áður. Hvað hefur skeð á þessu tímabili?
Jú, það hefur skeð að hin miskunnarlausa tækni í veiðum, sem eirir engu, hefur fært okkur sanninn heim um það, að ef við gáum ekki að okkur í dag og förum varlega, þá er voðinn vís. Og þær þjóðir, sem enn vilja halda í gamla nýlendustefnu og vilja sækja á okkar mið og sem næst fjöruborði, verða að sætta sig við það að vegna aukinnar tækni er ekki lengur neitt orðið til skipta. Ég býst við því að allir hefðu verið glaðir, ef stofninn hefði verið það stór að það væri mikið til skipta. En það er staðreynd, að það er aðeins árgangurinn frá 1973, aðeins einn árgangur í stofni okkar sem við byggjum tilveru okkar á næstu árin, — aðeins einn árgangur, ég bið hv. þm. að veita því athygli. Við fengum seinast þar áður sterkan árgang, 1964. Það eru 9 ár á milli, og það er margþekkt staðreynd, að ef við berum ekki gæfu til að tryggja að viðkoma þessa stofns verði eðlileg og hann tímgist og þroskist frá 1973 og áfram, þá er voðinn vís fram undan. Og það er á þessari staðreynd, sem ég byggi afstöðu mína, á því, að við verðum að heyja þá baráttu sem fram undan er. Hún er upp á líf og dauða bókstaflega talað. Það er ekkert lengur til skiptanna, og þær þjóðir, sem við eigum í deilu við núna, hafa haft svo langan tíma til að aðlagast þessum staðreyndum að það er engin afsökun að láta undan. Það hefur sýnt sig og hefur verið tíundað hér áður og mun verða gert aftur og margsinnis, að við getum varið landhelgina betur nú en nokkru sinni áður, og kem ég að því síðar, miklu betur, og tryggt það að minnkandi sókn útlendinga verði staðreynd.
Við gerðum skyssu í síldveiðunum. Við höfum ekki efni á því að gera það sama í þorskveiðunum, vegna þess að það tekur þorskinn 10–20 ár a. m. k. að ná sér aftur ef við gerum skyssuna. Og það er ekki hægt að bæta fyrir það samkv. eðli málsins, ef við förum of langt, — það er ekki hægt. Ef stofninn verður ofveiddur, verður aðeins að biða um óákveðinn tíma. Fiskifræðingar hafa margsýnt okkur fram á það, ásamt skipstjórum, sjómönnum, öllum sem til þekkja, að við erum komnir á ystu nöf, því miður. Við erum komnir miklu lengra en nokkurn mann óraði fyrir fyrir 2 eða 4 árum. Og það er ekki réttlætanlegt undir neinum kringumstæðum að taka þessa áhættu, því að hún er þannig í eðli sínu að það er ekki hægt að snúa við ef ólánið hefur skeð. Það er ekki hægt að bæta það. Og það er grundvallaratriði að við getum ekki tekið áhættuna, við erum neyddir til að fara varlega. Það getur sem sagt ekkert skeð, þó að við förum varlega næstu 2–3 árin, annað en það að við tryggjum sterkari og betri efnahagsafkomu í framtíðinni, það er allt og sumt. En förum við ógætilega og tryggjum við ekki viðkomu þessa stofns, þessa eina árgangs af stofninum sem við höfum möguleika á að sjá afrakstur af, hvað er þá fram undan? Hvað ætla hv. alþm. að gera þá? Hvernig á að bregðast við? Fá olíupeninga frá Noregi, þessum stóra bróður? Ég ætla að fjalla um hann sérstaklega, og ég get komið að því strax, af því að það liggur í láginni að það á að semja við Noreg. En það er kominn tími til að ræða um það opinberlega hvernig hann kemur aftan að okkur á erlendum markaði.
Hvað er hann að gera í Nígeríu? Þar undirbýður hann okkur svo að nemur stórfé, — stórfé á þeim markaði. Hvað er hann að gera í Portúgal? Þar gáfu þeir nú nýlegt rannsóknarskip. Síðan lækkuðu þeir verðið stórlega fyrir okkur á saltfiskinum, þannig að allar sölur stöðvuðust frá Íslandi og hafa verið lengi stöðvaðar undanfarið. Hvað eru þeir að gera í Brasillu? Þar lækkuðu þeir verðið um fjórðung, sem nemur mörg hundruð millj. kr., á þeirri einu athöfn sem þeir frömdu þar. Samt á að semja —- semja um þorsk sem er ekki til skiptanna — við þennan ágæta nágranna. Þegar olíugróðinn er orðinn svo mikill að þeir vita ekki, hvað þeir eiga að gera við hann, þá er honum beitt á móti okkur á mörkuðum núna, fiskmarkaðnum á skreið og saltfiski sem nemur mörg hundruð milljóna tjóni fyrir íslendinga. Og það er kominn tími til að segja við þessa vini okkar: hingað og ekki lengra, því að hæstv. ríkisstj. verður að fjalla um þessi mál fyrr eða síðar. Það fer enginn saltfiskur frá landinu núna vikum saman og mun ekki fara á næstu vikum ef ekki verður breytt um, nema með einhverju smánarverði, — fyrst og fremst áhrif frá Noregi. Þeir voru svo djarfir í Brasillu að brasilíumenn fóru fram á 180 daga greiðslufrest, en norðmenn buðu árið, þeir höfðu nóga peninga. Þar var sendinefnd á annan tug manna með toppembættismenn og ég held ráðh., 8 manna sendinefnd frá Noregi hefur verið í Portúgal og boðið gull og græna skóga til að semja við þá, semja um það sem ekki er til skiptanna.
Við höfum þegar aukið flota okkar svo mikið á tveimur s. l. árum, og enn eiga eftir að koma 13 eða 15 skuttogarar, að sókn okkar flota er meiri en nóg. Það er að mati allra manna að nú þurfi að fara varlega af okkur sjálfum, og það er komið fram álit hjá mönnum í forustusveit sjávarútvegsins að það verði að leggja hluta okkar flota, sem við eigum og skuldum ekkert í erlendis og skapar þannig þjóðarbúinu hrein verðmæti, — það á að leggja honum til þess að þóknast samningavilja ákveðinna aðila, til þess að tryggja að sóknin verði ekki of mikil í stofninn. Hvað er að ske? Síðan kemur hugmyndin líka að úthluta ákveðnum landssvæðum visst aflamagn, segjum frá Hornafirði til Vestfjarða fyrri hluta ársins og svo Norðurlandinu síðari hluta ársins. Það er furðulegt að heyra slíkar hugmyndir. Og það er alveg furðulegt að á sama tíma og við erum komnir á ystu nöf eru menn líka að fjalla um að gefa næstum annan hvern fisk í heildaraflamagni landsins, því að með þessu skrefi er opnaður möguleiki á að semja við aðrar þjóðir. Ég get staðfest það hér, að ég var hlynntur því að ná samkomulagi við þjóðverja fyrir rúmlega tveimur árum til þess að gefa þeim ákveðið svigrúm þá utan við 50 mílur, fyrst og fremst til þess að aðlaga sig breyttum aðstæðum gagnvart Íslandi, því að þeir hafa ekkert gert og ekkert aðhafst til þess að aðlaga sig þessum breyttu aðstæðum, ekki nokkurn skapaðan hlut. Þó að hér sé fjallað um lítils háttar minna aflamagn, þá hefur þróunin verið sú í okkar fiskstofnum, að það er ekki hægt að ræða um samninga, það er liðinn tími — einfaldlega liðinn tími.
Það hefur verið talað um sögulegan rétt í þessu sambandi, við vissar þjóðir sérstaklega. Sá sögulegi réttur hefur byggst á því að 1903, ef ég man rétt, fengu bretar veiði að þremur mílum hér. Þá vorum við ekki sjálfstæð þjóð og það var samið við aðra þjóð o. s. frv. og þarf ekki að rekja þá sögu meira. Síðan koma tvær heimsstyrjaldir og þeirra sögulega hefð rofnar. Þessi rök um sögulegan rétt og sögulega hefð eru alveg út í hött, því að bretar veiddu yfirleitt innan við 12 mílur. Þeirra skip sóttu ekki frá landi, þau sóttu að landi. Síðan hrekjum við þá út fyrir 12 mílur, og við verðum að halda áfram og hrekja þá alveg burtu. Það er ekkert val um annað, eins og ástandið er orðið.
Varðandi þjóðverja, að það sé svo mikið spursmál fyrir þá að fá að veiða þessi 60 þús. tonn, hvort það verða 40, 60 eða 70 þús. tonn, er alger fjarstæða. Í fyrsta lagi er það svo rík þjóð að þeir hafa verið í vandræðum hingað til að eyða sínu mikla fjármagni. Í öðru lagi: Á togurum þeirra eru ekki einhliða þjóðverjar, það er blönduð skipshöfn eða hefur verið hingað til, svo að það þarf ekki að óttast að við séum að skapa þeim sjálfum svo mikla möguleika til að bjarga sér frá atvinnuleysi. En við erum að gera annað með því að semja við þá. Við erum að skapa okkar fólki hugsanlegt atvinnuleysi og er ekki á það bætandi, eins og óvissan er í dag hjá okkur í efnahagsmálum. Svo er það alvarlegt mál, sem snertir alla okkar rannsóknarstarfsemi, að ef við eigum að taka okkar vísindamenn alvarlega, þá er ekki hægt að semja, því að við getum ekki haft trú á þeim mönnum, sem hafa í mörg undanfarin ár leitast við að finna hvað við mættum gera varðandi sókn í fiskstofnana, ef við samþykkjum það uppkast sem fyrir liggur nú. Þá er þeirra starfsemi og þeirra áliti og þeirra niðurstöðum raunverulega kastað í ruslakörfuna, því að þeir leggjast ákveðið gegn þessu.
Ég ætla ekki að fara að rekja bréfaskriftir nákvæmar, það hefur þegar verið gert. En það er sýnilegt, að það er aðeins einn maður sem ber ábyrgð á því óskaplaggi sem kom núna og á að vera haldreipi hæstv. ríkisstj. til stuðnings því að semja. Það er bara einn maður sem ber ábyrgð á því. Orðalagið meira að segja er svo klaufalegt að furðu sætir að senda það frá sér. Það er furðulegt, svo að ég segi ekki meira. Síðan kemur svo viðleitni hæstv. sjútvrh., sem því miður er nú ekki viðstaddur hér, hefði þó verið gaman að rifja upp ýmislegt úr fyrri umr. varðandi þátt hans í þessu máli og vilja til samninga, en hann hefur skipað n., fyrst fagmanna og síðan alþm., til þess að reyna að komast að niðurstöðu um hvernig heppilegast væri að hagnýta okkar fiskveiðilögsögu. Þar leggur hann mikla áherslu á að nýtt ákvæði komi inn sem sé fljótvirkara en núv. ákvæði í 5. gr. laganna, en þar er fjallað um — með leyfi forseta — það er örstutt:
„Nú á sér stað á tilteknu veiðisvæði seiða- og smáfiskadráp í þeim mæli að varhugavert eða hættulegt getur talist, og skal þá sjútvrn. að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar gera nauðsynlega ráðstöfun til að sporna við því.“
Ég þarf ekki að lesa meira. Þetta ákvæði, sem vinstri stjórnin setti, hefur reynst allt of þungt í vöfum. Samningsdrögin, sem hér er fjallað um, bæta ekki úr þessu. Það hefði verið ákjósanlegt í. þessum samningsdrögum, að nóg hefði verið að tilkynna þetta til íslensks eftirlitsskips og stöðva veiði þjóðverjanna strax, þegar í stað, alveg eins og þarf að gera fyrir íslendinga, en ekki vera með alls konar skeytasendingar fram og aftur og gefa þeim tækifæri, þegar búið er að reka íslendinga af veiðisvæðinu, til að fiska í 2–4 daga í viðbót. Þeir með sína flotvörpu, eins og mér virðist að þeir muni hafa heimild til að gera, verða búnir að hreinsa allt svæðið, á sama tíma og íslendingar eru reknir burt. Það er stóralvarlegt mál, að þjóðverjum skuli vera gefið tækifæri til að nota flotvörpuna. Það var þó skömminni til skárra að binda þetta eingöngu við botnvörpuna. Það væri mikil bót í því.
Það er ýmislegt fleira í þessum samningadrögum sem gerir það að verkum að þau eru ekki aðgengileg, jafnvel geta ekki verið aðgengileg fyrir þá sem neyðast til að standa að þeim. T. d. í 8. lið segir svo: „Ef ástæða er til að ætla að brot hafi verið framið“ — hugsið ykkur svona orðalag. Því ekki að segja: „Íslensku landhelgisgæslunni er frjálst og heimilt, hvenær sem hún vill eða telur sig þurfa, að fara um borð og skoða hvernig samsetning aflans er og hvað verður af honum? Því ekki að hafa þetta á hreinu, ef við ætlum að semja og ef við ætlum að hafa góðan anda, þann sem boðaður hefur verið af þeim talsmönnum sem túlka þessi mál? Því ekki að hafa þetta á hreinu? Það er alveg furðulegt að svona orðalag skuli koma inn í plagg sem við erum beðnir um að mæla með, — það er alveg furðulegt. Og eins er með botnvörpuna, því að við eigum að gera þeim allt eins erfitt og hægt er. Það er ekki hægt annað.
Svo er ákvæðið um möskva, um það er alveg undarleg afstaða forstöðumanns Hafrannsóknastofnunarinnar. Hann lýsir ánægju sinni. Þeir lýsa yfir að þeir ætli að stækka möskva eins og við, en í fyrsta lagi eftir ár, svo að ef við stækkum aftur möskvann, þá ætla þjóðverjar að gera það aftur eftir ár. Þá hafa þeir haft samninginn í tvö ár og þurfa ekkert að fara eftir því sem við gerum. Hér stöndum við ekki jafnfætis, það hlýtur hver einasti maður að sjá. Það er verið að mismuna íslendingum, það er verið að hrekja þá lengra, ef við getum talað svo, minnka veiðimöguleika þeirra, en leyfa þjóðverjum að halda sínu. Þetta er ekki boðlegt. Það er ekki boðlegt fyrir þá aðila, sem stóðu að samningnum, að sýna mönnum slíkt.
Síðan eru auðvitað veiðisvæðin, hversu þau eru viðkvæm. Veiðisvæðið fyrir Suðausturlandi er forkastanlegt, því að það er öllum mönnum kunnugt hvað þar er viðkvæmur fiskur, og jafnvel væri lífsnauðsynlegt fyrir íslendinga sjálfa að færa þar mun lengra út og takmarka þar togveiðar. Það er mál allra manna er til þekkja, og deila íslendingar ekki um það. Samt sem áður eiga þeir að hafa möguleika og það frjálst allt árið að fara inn að 23 mílum. Það er eitt alviðkvæmasta svæðið á Íslandi. Þjóðverjar með flotvörpu geta hirt þar ufsagöngur og fleira að eigin vild með þessu ákvæði, — geta hirt þær. Og þá mundu nú þrengjast aflamöguleikar vestur með ströndinni hjá einhverjum hérna, þegar kæmi að Vestmannaeyjum og vestar og eins undan Reykjanesi. Flotvarpan í þeirra höndum getur ráðið úrslitum fyrir sum pláss og suma gerð skipa, — hreinlega ráðið úrslitum. Það væri allt annað ef hér væri um botnvörpu að ræða.
Síðan man ég eftir því, að Jakob Magnússon fiskifræðingur varaði mjög við of mikilli ásókn í karfann og taldi smákarfa þegar orðinn of mikinn í afla okkar fyrir tveimur árum. Þetta hefur verið enn ítrekað. Og það hefur komið fyrir að það hefur orðið að henda afla íslenskra togara eða banna að vinna hann, hann hefur verið of smár og verið settur beint í gúanó. Og það eru allir fiskifræðingar sammála um að það verði að gefa karfanum sérstakt griðland, ef maður getur orðað það svo, til þess að hagnýta hann að fullu að nýju, bókstaflega friða stór svæði, því að þannig er nú ástatt með karfann að það er vont að hafa of stóran möskva, því að karfinn vill annars ánetjast svo í vörpunni að vart eru möguleikar fyrir sjómenn að ná honum úr og mjög erfið vinna, ef ekki er réttur möskvi, varðandi það að losa poka og fleira sem ég vil ekki fara nánar út í. En hér er þjóðverjum beint inn á ákveðin mið aðalkarfamiðin, og hvergi nærri nóg aðgæsla viðhöfð í því efni að mínu mati. Þetta er enn eitt atriði sem gerir það að verkum að ómögulegt er að fylgja þessum samningi. Þó að heildaraflamagnið sé réttlætt af talsmönnum þeirra er vilja að þessi samningsdrög nái fram, þá er framkvæmd málsins þannig að það er ekki hægt fyrir menn sem vilja sýna eðlilega varúð og taka ekki þá áhættu sem ég vil undirstrika hér að er svo mikil að það er ekki réttlætanlegt að leggja þetta fram til samþykktar, — það er ekki réttlætanlegt.
Það hefur verið vitnað í það, að þjóðverjar höfðu mun meiri afla hér áður fyrr og þetta sé eina leiðin til að tryggja að afli þeirra minnki eða fari í ákveðið hámark með því að komast að samkomulagi við þá. Það hefur nú sýnt sig og er óumdeilanlegt að mati þeirra manna, er starfa í landhelgisgæslunni, og margra annarra, að með meiri einbeitni og með meiri hörku, — en því fylgir áhætta og það er plús við samningana að það dregur úr áhættu, ég skal ekki vefengja það, það dregur virkilega úr áhættu fyrir sjómenn okkar, — þá er hægt að verja landhelgina meira en gert hefur verið, án þess að ég sé að hallmæla einum eða neinum. Það er hægt, það hafa starfsmenn landhelgisgæslunnar sagt og fara ekkert dult með það. Það hafa sagt mér menn, sem hafa verið um borð í skipunum, að þeir gætu gert betur ef það væri til þess ætlast að þeir færu af meiri hörku í málin. En það hefur verið metið svo að við ættum að sýna vissa aðgæslu, og ég skal ekki deila á það atriði sérstaklega fyrir liðinn tíma. En það er óhjákvæmilegt gagnvart framtíðinni að sýna meiri einbeitni, það er ekki hægt annað. Og það hefur einnig verið staðhæft, að ef við tökum 4–6 togara í gæsluna í viðbót, — og það er vafalaust ekkert vandamál að manna þá togara, — þá getum við varið landhelgina að mestu eða öllu leyti. Því er engin nauðsyn að tryggja visst aflamagn hjá útlendingum í gegnum samninga. Við heftum aflamagn útlendinga með því að verja landhelgina með meiri einbeitni en áður hefur verið. Þetta segja sjómenn sjálfir, þetta segja forsvarsmenn í starfi hjá landhelgisgæslunni og fara ekkert dult með þessa skoðun sina. Það er því alveg óþarfi að vera að hugsa um veiðisamninga við aðrar þjóðir.
Hæstv. iðnrh. kom inn á það áðan, að það væri allt annað mál að verja 200 mílurnar en 50 mílurnar. Hér gætir alvarlegs misskilnings og er nauðsynlegt að leiðrétta það, ekki aðeins fyrir hv. þm., heldur að það komist víðar og hefur þegar verið leiðrétt af sumum mönnum, en þessi misskilningur nær þó hér inn í Alþ., að útlendingar veiða yst á þessu svæði, sem við höfum helgað okkur, yfirleitt sáralítið og ekki neitt. Það gefst því gott tóm til að fylgja togurunum eftir og vera vel tilbúinn þegar þeir koma að þeim veiðisvæðum er þeir ætla sér að hagnýta. Það er því alveg út í hött að segja að við ráðum ekkert við þetta veiðisvæði, það sé svo stórt nú, — það er alveg út í hött. Við höfum þegar tekið ákvörðun um að auka flugvélakost okkar til þess að spara yfirferð og það var rétt skref. Þó að menn deili um hvaða gerð flugvéla hafi átt að kaupa, þá var nauðsynlegt að auka flugflota okkar. Það er því ákveðið svigrúm fyrir skipin að standa vel að verki og vera við því búin, þegar útlendingar, sem vilja stelast inn í landhelgi okkar, ætla að koma til veiða. Það er ekkert samhengi þar á milli að færa út í 50 mílur og í 200 mílur varðandi erfiðleika á að verja svæðið, — það er ekkert samhengi þar á milli.
Það, sem skiptir mestu máli fyrir okkur, eins og ástandið er núna, er að geta stjórnað veiðunum sjálfir, sýnt einurð í því að setja nýjar reglur um veiðiflota okkar, hagnýtingu fiskveiðilandhelginnar. Það hefur dregist úr hömlu og allar líkur eru á því að það takist ekki fyrir áramót, og harma ég mjög að svo skuli vera. Það hefði verið mikill sómi að því fyrir okkur að hafa löggjöfina tilbúna nú og vera búnir að afgreiða hana. Í gildandi lögum stendur að endurskoðun skuli hafa farið fram fyrir komandi áramót, en það mun vart takast, þannig hefur verið staðið að þeim málum. Það er mjög slæmt. Ekki saka ég hæstv. sjútvrh. í því efni, heldur má segja að togstreita okkar íslendinga sjálfra sé það mikil um hagsmunasvæði að seint gangi fyrir þá sök. Það er grundvallaratriði hvernig við skipuleggjum okkar veiðar, skipuleggjum hagnýtinguna á þeim mikla flota sem við eigum. Mér skilst á hæstv. forsrh. að hann hafi þegar látið í ljós að nú sé nóg komið af skipum og það verði að doka við og gæta að því að endurnýja mjög gætilega okkar flota. Þegar hæstv. forsrh. segir þetta á opinberum vettvangi, þá undrar mann á því að menn skuli telja nauðsynlegt að taka upp samninga um aflamagn í heild sem nemur sennilega mikið á annað hundrað þús. tonn. Persónulega tel ég, ef samið verður við 5–6 þjóðir, að það nálgist 200 þús. tonn. Með því móti höfum við afhent annan hvorn fisk sem fiskifræðingar okkar telja réttmætt að taka næstu 3–5 árin af hafsvæði okkar. Það er hvorki meira né minna. Og ef við trúum ekki á þessa menn, a. m. k. förum varlega næstu 2–4 árin, þá stefnum við okkar efnahagslífi og fiskstofnunum í slíka áhættu eins og ég sagði áðan. Það er ekki réttlætanlegt að taka þessa áhættu, ekki með nokkru móti, því að ef skaðinn skeður, þá verður hann ekki bættur aftur.
Ég vil biðja hv. þm. að athuga það afar vel, áður en þeir taka ákvörðun um að fylgja þessum samningsdrögum sem eru meingölluð að ýmsu leyti, hvaða áhættu þeir leiða yfir þjóðina með því að fallast á þessa samninga. Ástandið s. l. 2–4 ár hefur gjörbreyst svo ótrúlega í þá átt að fiskstofnar okkar þola ekki meiri sókn, við verðum að fara varlega. Enn ein skýrslan hefur staðfest þetta, það sem hlutlausir vísindamenn hafa rannsakað undanfarna mánuði, en það var vegna forgöngu Rannsóknaráðs ríkisins að sérstakir menn voru fengnir til að rannsaka þróun í okkar sjávarútvegi. Leggja þeir þar eindregið til að næstu 3–5 árin sé farið eins varlega og nokkur minnsti möguleiki er til og halda þó uppi sæmilegu atvinnulífi og sæmilegri sókn á flota okkar til öryggis vegna framtíðarinnar, því að eins og þeir undirstrika, ef við tökum ekki þessa afstöðu nú í dag fer fyrir þorskstofninum eins og síldinni. En sá er munur á, að ef við göngum of nálægt þorskstofninum, þá getur það tekið 10–20 ár að fá upp nægilegan stofn, svo að hann gefi okkur 250–300 þús. tonn af þorski, það er svo langt í land. Á hverju á íslenska þjóðin að lifa á meðan? Hún slær ekki endalaust olíulán, það er ekki hægt, jafnvel ekki frá norðmönnum.
Þess vegna er ekki hægt að fallast á neina samninga við útlendinga. Þeir verða að skilja það að tilvera okkar efnahagslega og sjálfstæði þessarar litlu þjóðar byggist á því að við getum haft full og óskoruð yfirráð yfir því hafsvæði sem við sækjum undirstöðu að efnahagslífi okkar í. Það er ekkert val um annað en að gefa okkur þetta tækifæri. Það er ekkert val um það úr því sem komið er. Svo gjörsamlega er ástandið allt annað en var fyrir 2–4 árum, og þrátt fyrir útfærslu landhelginnar og þrátt fyrir viðleitni okkar að tryggja heilbrigða endurnýjun á fiskstofninum hefur þetta ekki tekist betur en raun ber vitni um. Það er því miður ótrúlegt, ég segi: það er ótrúlegt ef stór meiri hl. er til hér á Alþ. fyrir að taka þessa áhættu, því að eðli hennar samkv., eins og ég hef margundirstrikað, er áhættan þannig að það er ekki hægt að bæta úr ef skaðinn skeður. Með því móti að taka þessa afstöðu, að samþykkja veiðar til handa útlendingum, ekki aðeins þjóðverjum, það fylgir auðvitað fleira með, þá stofnum við okkar efnahagslífi, atvinnulífi og öllu í slíka hættu að það er óverjandi með öllu.
Einn þáttur í þessum samningum eða samningsuppkasti fjallar um svonefnda bókun 6. Ef ég man rétt hefur hæstv. núv. sjútvrh. sagt að það væri forsenda fyrir samkomulagi að þessi bókun tæki gildi. En það á að gefa 5 mánaða svigrúm í samningunum, sennilega svo að áhrif frá þjóðverjum eða einhverjum öðrum verki þannig að þessi bókun komist í gagnið og við höfum hag af því tollalega séð að selja vissar afurðir okkar til Þýskalands. Fari svo, að þetta takist ekki, höfum við rétt á því að samningarnir nái ekki fram að ganga. Nú vil ég biðja hæstv. utanrrh. að lýsa því afdráttarlaust yfir, að takist þetta ekki á þessum 5 mánuðum, — og er þá gengið út frá því að þetta verði lamið í gegn, eins og mér heyrist að sé mál manna hér á göngum að hafi tekist, þó vildi ég vona að svo væri ekki, — að lýsa því yfir að samningurinn verði ekki lengri, hann verði 5 mánaða tímabil að hámarki. Þá væri hugsanlegt að það væri hægt að fá breiðari undirstöðu og reyna ekkert meira, semja ekki við neina aðra þjóð en þjóðverja, taka það skref og breyta andrúmsloftinu hér á Alþ. og meðal þjóðarinnar í þá átt að semja ekki við neina aðra þjóð en þjóðverja og gera það til næsta vors og síðan verjum við okkar landhelgi eins og við höfum mátt til, og við beitum öllum rökum okkar vísindamanna og einbeittri og ákveðinni þjóð að því, að það er ekki hægt að skipta neinu lengur, það er ekki til, ef við eigum að halda okkar sjálfstæði, ef við eigum að geta lifað í þessu landi sem sjálfstæð þjóð um óákveðinn tíma. Fari svo, að þetta takist ekki, er litið annað að gera en segja — ja, biðja fyrir þeim næstum því og segja: Þeir víta ekki hvað þeir gjöra, er mæla með þessu.