26.11.1975
Sameinað þing: 23. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (478)
80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara
Svava Jakobsdóttir:
Herra forseti. Það bar til tíðinda á einum og sama deginum að herskip breta réðust inn í íslenska landhelgi og ríkisstjórn Íslands lagði fram þáltill. um fiskveiðiheimildir til handa vestur-þjóðverjum. Daginn áður skrifaði formaður utanrmn. Alþ., hv. þm. Þórarinn Þórarinsson, undarlega forustugrein sem birtist á þriðjudagsmorgun í blaði hans. Hann skrifaði eins og herskipin bresku væru þegar komin á Íslandsmið og fullyrðir í þessari forustugrein að nauðsynlegt sé að semja við vestur-þjóðverja vegna þorskastríðs við breta. „Nýtt þorskastríð er þegar hafið,“ sagði hv. þm. og sitthvað fleira í þeim dúr, t. d.: „Öll okkar orka verður að beinast gegn þessum aðalandstæðingi.“
Þegar þessi forustugrein var skrifuð voru öllu meiri líkur á að bretar sendu ekki herskip en hitt. Landhelgisgæslan var raunar búin að hrekja bresku togarana af miðunum. Þeir voru svo til hættir veiðum, en látnir bíða í allt að tvo sólarhringa af því að breska ríkisstj. var tvístígandi í málinu. Þrátt fyrir digurbarkalegar hótanir Hattersleys og fleiri var auðfundið hik á að láta til skarar skríða. Við þessar aðstæður skrifaði hv. þm. Þórarinn Þórarinsson stríðsleiðara sem hann endar á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta: „Þess vegna getur samkomulag við vestur-þjóðverja ekki aðeins verið réttlætanlegt, heldur nauðsynlegt, ef í alvöru á að reyna að sigra breta.“
Nú skal látið liggja milli hluta hvernig á því stóð að hv. þm., formaður utanrmn. Alþ., virtist vera alveg viss um komu bresku herskipanna áður en breska ríkisstj. var búin að taka formlega ákvörðun. Ef til vill er hann gæddur ófreskigáfum umfram aðra menn. En nú er þessi málflutningur og þessar röksemdir bornar á borð fyrir okkur af hálfu hæstv. ríkisstj. og Morgunblaðsins, með þeirri breytingu þó að úr því að herskipin bresku séu komin sé nauðsynlegt fyrir okkur að semja við vesturþjóðverja. Þetta kemur fram í blaðaviðtali við hæstv. ráðh. Ólaf Jóhannesson í dag, og þetta höfum við heyrt í málflutningi manna hér á Alþ.
Kjarni þessa málflutnings er sá, að það er verið að nota bresku innrásina sem þungvæg og mér liggur við að segja allt að því kærkomin rök fyrir því að vestur-þjóðverjum verði afhent 120 þús. tonn næstu tvö árin.
Röksemdir af þessu tagi þjóna eingöngu hagsmunum vestur-þjóðverja. Það hlýtur þá að vera þeirra hagur að breska innrásin var gerð, ef hún á að ýta undir samninga við þá og vera raunar ein meginforsendan fyrir því að þeir samningar séu gerðir, ef með þeim á að slá öll vopn úr höndum okkar íslendinga. Samkv. þessum málflutningi hlýtur það að vera ákaflega farsæl lausn fyrir vestur-þjóðverja, þessi einkennilega tilviljun að breska innrásin skyldi gerð einmitt um þær mundir er ríkisstj. leggur fram þáltill. um fiskveiðisamning við vestur-þjóðverja. Það er þá ekki lengur hægt að neita því að breski flotinn er að vernda hagsmuni beggja, ekki bara sína eigin, heldur vestur-þjóðverja líka.
Þannig hefur ríkisstj. haldið á málum. Hún hefur undirstrikað það, kannske óviljandi þó, að samningarnir við vestur-þjóðverja eru ekki einangrað mál. Vestur-þjóðverjar og bretar, þessir bandamenn í NATO, eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta. Þetta vissum við raunar í síðasta þorskastríði þegar það atvik kom upp á miðunum fyrir Austurlandi, að bresku herskipin komu vesturþýsku togurunum til hjálpar á miðunum gegn íslensku varðskipunum. En þessir sameiginlegu hagsmunir þessara tveggja NATO-þjóða eru sannarlega ekki hagsmunir íslensku þjóðarinnar. Það er því forkastanlegra en orð ná yfir að íslenska ríkisstj. skuli taka þátt í þeim ljóta leik sem þarna er á ferðinni, að hræða íslensku þjóðina til fylgis við samninga við vestur-þjóðverja með bresku herskipunum.
Það gengur ekki hnífurinn milli NATO-sinna í þessu máli. Ríkisstj. notar bresku herskipainnrásina sér til framdráttar til þess að réttlæta og knýja fram þá samninga sem hér eru til umr.
Hún telur sig vera að kljúfa fjandafylkingu, reka fleyg milli þessara þjóða. En hér er sannarlega annað á ferðinni. Hér er verið að láta vestur-þjóðverja ryðja brautina til samninga í skjóli breskra herskipa.
Það er sannarlega ekki vanþörf á að vekja athygli á því, að íslenska ríkisstj. skuli nota sér innrás breta, komu bresku herskipanna, með þessum hætti. Einstakir ráðherrar hafa hert sig upp og haft uppi alvarleg ummæli um þetta atferli breta, en ráðstafanir hafa ekki verið gerðar svo nokkru nemi. Það hefur verið látið duga að koma á framfæri venjulegum formlegum mótmælum fyrir milligöngu sendiherra landanna, og sú sjálfsagða ráðstöfun hefur verið gerð að meina njósnaflugvélum um fyrirgreiðslu hér á landi. En ríkisstj. hefur ekki viljað taka ákvörðun um að kalla heim sendiherra Íslands í London. Ráðh. hafa ekki viljað taka afstöðu til stjórnmálaslita við Bretland. En hvort tveggja hefði auðvitað átt að gera strax og láta allar samningagerðir og samningaviðræður við útlendinga yfir höfuð bíða.
Nú sjáum við munstrið. Þróunin er þegar byrjuð. Framkvæmdastjóri NATO er kominn af stað eins og fyrri daginn, og það verður því, spái ég, ekki langt að bíða þess að ríkisstj. muni nota þau rök við þjóðina að vegna bresku herskipanna sé nauðsynlegt að semja við breta líka.
Það hefur verið rætt í þessum umr. um þá leynd sem íslenska ríkisstj. hefur notað í sambandi við þessa samningagerð alla, og sannarlega er þessi leynd uggvænleg. Hliðstæðu er varla unnt að finna, nema þá þegar þau leyniráð voru brugguð að innlima Ísland í NATO. Þá var öllu haldið leyndu, öllum haldið utan við, sem þáv. ríkisstj. vissi að voru ósammála henni um málið. Sams konar leynd hefur ríkt í meðferð þessa máls. Fréttir af gangi samningaviðræðna hafa komið utan frá. Og nú á líka að sjá til þess að andstæðingar samninga í landhelgismálinu fái ekki að láta til sín heyra á eðlilegan hátt. Ríkisútvarpið hefur bannað að verkalýðshreyfingin í landinu fái að skora á félaga sína að leggja niður vinnu til þess að mótmæla öllum landhelgissamningum og herskipainnrás breta. Þessi afgreiðsla mála er vitaskuld gerræði eins og ástundað er í einræðisríkjum. Tilgangurinn er að hindra frjálsa skoðanamyndun í landinu. Það fengum við staðfest í ræðu í dag, þegar hv. 5. þm. Reykv., Ragnhildur Helgadóttir, lýsti því yfir að landhelgismálið væri verkalýðshreyfingunni óviðkomandi, hún ætti ekki að hafa skoðun á því. En þegar þau ósköp gerast nú samt að verkalýðshreyfingin hefur skoðun á þessu máli, þá er gripið til gerræðisráðstafana og henni meinaður aðgangur að ríkisfjölmiðlum.
Ég hef undir höndum auglýsingu eða tilkynningu sem samstarfsnefnd um verndun landhelginnar kom á framfæri við auglýsingaskrifstofu Ríkisútvarpsins, en var hafnað á síðustu stundu eftir að lögfræðingur Ríkisútvarpsins hafði komist í málið. Ég ætla að lesa hérna klausu sem bönnuð var: „Samstarfsnefnd um verndun landhelginnar, en aðilar að henni eru Alþýðusamband Íslands, Sjómannasamband Íslands, Verkamannasamband Íslands, Farmanna-og fiskimannasamband Íslands og Félag áhugamanna um sjávarútvegsmál ásamt fulltrúum frá þingflokkum Alþb., Alþfl. og Samtakanna, beinir þeim eindregnu tilmælum og áskorun til landsmanna allra á sjó og landi að þeir taki sér frí frá störfum næstkomandi fimmtudag og leggi með því áherslu á andstöðu sína gegn hvers konar samningum við erlendar þjóðir um stórfelldar veiðiheimildir innan fiskveiðilandhelginnar.“
Þessi klausa var bannfærð. Ekkert mátti standa eftir nema fundarboðendur, sem máttu raunar boða til útifundar á Lækjartorgi í Reykjavík. En tilgang fundarins mátti ekki nefna. Sú ákvörðun var raunar tekin rétt fyrir kl. 12, þegar sýnt var að samstaða ætlaði að nást hjá öllum samtökum launafólks um þessar aðgerðir. Þegar sú samstaða var orðin ljós, þá var sú ákvörðun tekin að engar auglýsingar eða tilkynningar mættu birtast sem fælu í sér mótmæli gegn herskipainnrás breta, mótmæli gegn samningum við útlendinga í fiskveiðilandhelgi eða áskorun til félagsmanna um að taka sér frí frá störfum. Hver trúir því að útvarpið hefði verið lokað fyrir þessum aðilum ef ætlunin hefði verið að styðja ríkisstj., en ekki mótmæla aðgerðum hennar? Trúi því hver sem vill.
Ríkisstj. veit að þjóðin í heild er andvíg samningum við útlendinga. Þetta veit hún og þess vegna þarf að grípa til gerræðislegra aðferða, þess vegna leggja ráðherrar blessun sína yfir slíkar aðgerðir, eins og hæstv. menntmrh. gerði hér í dag.
Þá hafa þau rök verið höfð uppi að með samningum við útlendinga næðist stjórnun fiskveiða. Í máli hæstv. ríkisstj. og stjórnarsinna hafa þessi rök þó dottið dauð niður vegna þess að þar vantar inn í mikilvægasta inntakið. Það er imprað á því, en réttar ályktanir aldrei dregnar, því að enn er alvarlegustu spurningunni ósvarað: Hvernig á að stjórna þeim fiskveiðum, þeim 250 þús. tonnum sem eftir eru handa íslendingum sjálfum, ef farið er að ráðum fiskifræðinga, þegar útlendingar eru búnir að fá sitt? Hvernig á að stjórna þeim fiskveiðum? Ég tel það vítavert að ríkisstj. skuli þegja um þetta mikilvæga atriði. Hefur hún ekki myndað sér skoðun á því? Og ég tel það ábyrgðarhluta og óverjandi fyrir hvern einasta þm. að greiða þessum samningi atkv. meðan þessu er ósvarað.