26.11.1975
Sameinað þing: 23. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (487)

80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara

Utanrrh. (Einar Ágústsson) :

Herra forseti. Það væri sjálfsagt ástæða fyrir mig til þess að tala hér alllangt mál út af ýmsum þeim ræðum, sem haldnar hafa verið, og ýmsum þeim kveðjum, sem, mér hafa verið sendar hér í ræðum. Ég fullvissa þá hv. ræðumenn, sem þessar kveðjur hafa sent, að ég skal muna þær, en gleyma ekki, þó að ég ætli ekki að fara að eyða tíma hv. alþm. til þess að svara þeim núna um þetta leyti nætur. Sumt af því tel ég tæplega samboðið alþm. að láta sér um munn fara. En þingtíðindin geyma þetta og þar verður kannske síðar tækifæri til að rifja það upp.

En út af þeim ábendingum, sem komið hafa fram í tveim síðustu ræðum, vil ég segja það, að þau drög, sem við í samninganefndinni komum með heim frá Þýskalandi, eru alveg óskuldbindandi, þannig að það er Alþ., það eru þeir, sem hér sitja, sem ráða því hvort samningur verður gerður eða ekki. Við höfum auðvitað fullan rétt á því að gera þær aths. sem okkur þykja þess virði að gera.

Ég vil taka það fram um ábendingar, sem komu fram frá hv. 4. þm. Norðurl. v. um að viðurkenningin sé ekki einungis de facto, þ. e. í verki heldur megi einnig skoða hana lagalega, — þeim ábendingum mun ég koma áleiðis til þjóðverja. Ég er ekki viss um að þeir fallist á það, en það er sjálfsagt að láta þá vita af því að slík skoðun hafi komið hér fram. Enn fremur mun ég láta þá vita að við skiljum samninginn á þann veg að eftir 5 mánuði eigi þeir aðeins að vera búnir að fiska 5/12 af umsömdu aflamagni.

Í þriðja lagi, út af því sem hv. 5. þm. Reykv. minntist á, þá er það rétt að þjóðverjar töluðu um það og við töluðum um það í samningaviðræðunum að þeir mundu beita þeim áhrifum, sem þeir kunna að hafa í Efnahagsbandalaginu, til þess að fá bókun 6 í gildi eins fljótt og verða má. Og ég get upplýst að þegar hefur verið samið bréf, sem sent verður á morgun, sem áréttar þennan skilning.