27.11.1975
Sameinað þing: 24. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 821 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Það er örstutt aths. varðandi mikilvægt atriði sem snertir landhelgismálið. Ég leyfði mér að beina þeirri fsp. í gærkvöld til hæstv. utanrrh. hvort það væri ekki rétt að þjóðverjar hefðu skuldbundið sig til þess að vinna að því fyrir sitt leyti að bókun 6, sem var fskj. með samningnum við Efnahagsbandalagið, tæki gildi. Hæstv. ráðh. sagði að svo væri. Ég hef leyft mér að benda á að slík skuldbinding er okkur meira virði skrifleg en munnleg. Þess vegna hef ég leyft mér að beiðast þess að bréf um þetta verði sent frá ríkisstj. Íslands til ríkisstj. Þýskalands. Á þann hátt getum við gert okkar til þess að þessari skuldbindingu verði framfylgt. Ég leyfi mér að fara þess á leit við hæstv. utanrrh. að hann lesi fyrir okkur texta þess bréfs, sem hæstv. ráðh. sagði í gærkvöld eða nótt að samið hefði verið og hafi bréfið verið sent til Þýskalands, þá leyfi ég mér að æskja þess að það verði prentað og því dreift sem fskj. nr. VIII með því þingmáli sem við erum nú að ræða um.