27.11.1975
Sameinað þing: 25. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í B-deild Alþingistíðinda. (505)
80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara
Forseti (Ásgeir Bjarnason) :
Umr. skiptist í tvær umferðir, þannig, að hver þingflokkur fær til umráða 15 mín. í hvorri eða 20 mín. í fyrri, en 10 í síðari. Röð flokkanna verður þessi: Í fyrri umferð Sjálfstfl., Alþfl., Framsfl., Alþb. og SF. Í síðari umferð Framsfl., Alþb., Sjálfstfl., Alþfl. og SF.
Ræðumenn verða þessir: Af hálfu Sjálfstfl. tala Geir Hallgrímsson forsrh. í fyrri umferð og Gunnar Thoroddsen iðnrh. í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. tala Benedikt Gröndal, 2. landsk. þm., í fyrri umferð og Sighvatur Björgvinsson 8. landsk. þm., í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. talar Einar Ágústsson utanrrh. í fyrri umferð og Þórarinn Þórarinsson, 4. þm. Reykv., í síðari umferð. Af hálfu Alþb. talar Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl., í fyrri umferð og Gils Guðmundsson, 3. þm. Reykn., í síðari umferð. Af hálfu SF talar Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm., í fyrri umferð og Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., í síðari umferð.