27.11.1975
Sameinað þing: 25. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (508)

80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Till. sú, sem hér er til umr., fjallar um það að Alþ. veiti ríkisstj. heimild til að ganga frá samkomulagi við ríkisstj. Sambandslýðveldisins Þýskalands í samræmi við orðsendingu sem prentuð er með ályktun á þskj. 85.

Í ályktun Alþ. frá 15. febr. 1972 segir að haldið skuli áfram samkomulagstilraunum við ríkisstj. Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýskalands um þau vandamál sem skapast vegna útfærslu fiskveiðilandhelginnar. Viðræður við Sambandslýðveldið Þýskaland hafa farið fram undanfarin þrjú ár og fjölmargir viðræðufundir verið haldnir, bæði í Reykjavík og í Bonn. Strandaði lengi vel á því að þjóðverjar reyndust ófáanlegir til að falla frá því að nota frystitogara á Íslandsmiðum. Á þetta var ekki fallist af Íslands hálfu. Jafnframt var ágreiningur um hversu langt frá ströndum landsins þýskir togarar skyldu halda sig svo og um aflamagn.

Síðustu viðræður við þjóðverja fóru fram í Reykjavík 28. og 29 okt. og í Bonn 19. og 20. nóv. s. l. Í þeim viðræðum og í framhaldi af þeim var þrautreynt hversu langt málum yrði þokað til samkomulags. Liggur nú fyrir að samkomulag geti tekist, svo sem birt hefur verið í blöðum og allir þekkja.

Þetta samkomulag, sem hér er lagt fyrir Alþ. í formi heimildar til ríkisstj. er í 10 liðum, eins og forsrh. hefur raunar þegar gert grein fyrir, en ég ætla að nefna flest þessara atriða samt með örfáum orðum.

Miðað er við 200 mílna svæðið skv. reglugerð frá 15. júlí 1975 um fiskveiðilandhelgi Íslands, þ. e. a. s. núgildandi fiskveiðimörk íslendinga. Hér er um mikilsverða viðurkenningu í raun að ræða, enda þótt lagalega fyrirvara sé að finna í uppkastinu.

Í öðru lagi segir að heildarársafli skipa skrásettra í Sambandslýðveldinu Þýskalandi skuli ekki fara fram úr 60 þús. tonnum og að af því magni verði þorskafli ekki meiri en 5 þús. tonn. Það hefur að sjálfsögðu verið eitt af skilyrðum fyrir samningagerð af Íslands hálfu að lækka aflamagnið sem mest. Þjóðverjar fóru lengi fram á 95 þús. tonn og síðar 85 þús. tonn, en niðurstaðan er nú um 60 þús. tonn, svo sem áður segir, og þar af ekki meira en 5 þús. tonn af þorski.

Í umr. hér í gær talaði hv. 2. þm. Austurl., Lúðvík Jósepsson, og raunar margir fleiri um það með sterkum orðum að hér væri um allt of mikið magn að ræða. Vegna þessa leyfi ég mér að minna á það, að í samningaviðræðum við þjóðverja, sem fóru fram í Bonn hinn 6. og 7. sept. 1973, voru sem fyrr deilur um aflamagnið. Þá rifjaði formaður þýsku samninganefndarinnar upp stöðuna og sagði að þjóðverjar hafi fyrst lagt til 100 þús. tonn, en íslendingar 65, spurning væri hvort 80–82 þús. tonn gætu leyst það mál. Síðan segir orðrétt í skýrslunni:

„Lúðvík Jósepsson sagði nú enn að aflahámarkið væri nátengt skerðingu aflamöguleika, sem sagt stærð flota, gerð skipa, stærð á svæðunum. Auðvitað yrði að finna tölur í þessu sambandi og væri þá hugsanlegur einhver millivegur, en frá okkar sjónarmiði væri aðalatriðið skerðingin á aflamöguleikum frekar en hámarksaflinn sjálfur sem mundi þá koma af sjálfu sér.“ Þarna var sem sagt hægt að hugsa sér milliveg milli 65 og 100 og ekkert talað um þorskinn. Þetta var nú þá. En nú eru 60 þús. tonn talin ganga landráðum næst.

Ég leyfi mér að minna á þann árangur sem náðst hefur í takmörkum afla útlendinga frá því að vinstri stjórnin ákvað að færa landhelgina út í 50 mílur frá 1. sept. 1972. Þegar við byrjuðum að tala við breta og þjóðverja á árinu 1971 var aflamagn breta 207 þús. tonn og þjóðverja 120 þús. tonn innan 50 mílna. Nú þykir það goðgá að tala um 65 þús. tonn við breta og 60 þús. við vestur-þjóðverja sem gilda skuli í 2 ár, og þó verður að taka það með í reikninginn að nú er talað um 200 mílur umhverfis Ísland, en áður voru aðeins 50 mílur ræddar.

Við mat á þessu atriði verður af Íslands hálfu að miða við það að fá magnið eins langt niður og frekast eru tök á og þá haft í huga hvað líklegt væri að þýsk skip gætu aflað án samkomulags. Reynslan sýnir að þjóðverjar náðu á árinu 1973 91 700 tonnum og á árinu 1974 68 100 tonnum, en þess ber þá að gæta að landhelgisgæslan kom í veg fyrir veiðar með klippingum svo og með því að togararnir hífðu vörpurnar þegar þeir urðu varir varðskipa. Á síðara árinu, þ. e. 1974, stunduðu bretar veiðar skv. samkomulaginu frá 1973, og gat því landhelgisgæslan einbeitt sér að því að hefta veiðar þýskra togara. Nú er fyrirsjáanlegt að málið horfir allt öðruvísi við, þar sem bretar ætla sér nú að stunda ólöglegar veiðar í skjóli herskipaverndar, og verður það ærið verkefni fyrir landhelgisgæsluna að snúa sér að því máli.

Alþb.- menn telja sig nú hafa upplýsingar um það að á þessu ári verði afli þjóðverja ekki nema 40 þús. tonn, en hafa þó ekki tilgreint heimildir. Þrátt fyrir mikla eftirgangsmuni hefur mér ekki tekist að fá aðrar upplýsingar um afla þjóðverja á þessu ári en þær, að 1. júní hafi þeir verið búnir að afla 26 þús. tonna. Ef fullyrðingar Alþb.-manna ættu að standast mundi það þýða að þjóðverjum ætti ekki að takast að afla nema 14 þús. tonna á 7 síðustu mánuðum þessa árs. Er það nú ekki heldur ólíklegt?

Þess ber og að geta í þessu sambandi, að þjóðverjar stunda hér aðallega karfa- og ufsaveiðar sem fiskifræðingar eru sammála um að þoli meiri sókn og þorskstofninn er því ekki í hættu vegna þeirra skv. þessu samkomulagi, enda hafa mjög margir þm. viðurkennt það í umr. í gær og í dag að ufsi og karfi þyldu nokkru meiri sókn en verið hefur.

Í þriðja lagi er aðeins um að ræða 40 ísfisktogara skv. sérstakri skrá. Þýsk verksmiðjuskip og frystitogarar eru því útilokaðir frá öllu 200 mílna svæðinu. Verður það að teljast mjög veigamikið atriði sem þjóðverjar voru alls ófáanlegir til að fallast á áður, jafnvel utan 50 mílna markanna. Því hefur verið haldið fram hér að ekki séu allar verksmiðjur útilokaðar úr þeim togurum sem leyfi kunni að fá ef samkomulagið nær fram að ganga. Í þessu sambandi ætla ég aftur að leyfa mér að vitna til hv. 2. þm. Austurl., Lúðvíks Jósepssonar, á áðurnefndum fundi, en þá sagði hann:

„Það skiptir miklu máli hvað við er átt með verksmiðjuskipum. Að áliti íslendinga væri verksmiðjuskip togari sem gæti verið á miðunum í lengri tíma en venjulegir togarar sem stunduðu ísfiskveiðar, en þeir tækju venjulega 3 vikur í ferðina og væru 2 vikur á miðunum. Verksmiðjuskip í eiginlegum skilningi gætu verið á miðunum í 2–3 mánuði: Þau gætu fryst og haft mjölverksmiðju um borð. Þetta vildu íslendingar útiloka. En ef um það væri að ræða að í venjur legum togurum væri takmarkaður útbúnaður til fiskmjölsvinnslu, t. d. til að vinna úr úrgangi, þá væri það annað mál. Þess vegna væri mikils um vert að fá upplýsingar um það, hvers konar skip það væru sem þjóðverjar vildu fá leyfi fyrir, því að þá væri hægt að útiloka hin raunverulegu verksmiðjuskip. Væri þá e. t. v. hægt að leysa málið þannig.“

Þarna gat sem sagt takmarkaður útbúnaður í þessa átt komið til greina að mati Lúðvíks Jósepssonar, og ég hygg að það sé alveg nákvæmlega rétt mat.

Þá eru það svæðin. Er þar einnig um að ræða verulegar tilslakanir ef hálfu þjóðverja frá því sem áður var. Fyrir Suðausturlandi er miðað við hólf sem er fyrst 25 og síðan 23 sjómílur frá grunnlínum sunnan 65° norðlægrar breiddar. Suðurströndin er síðan lokuð frá 15° vestlægrar lengdar til 22° vestlægrar lengdar. Síðan kemur opið svæði sem miðað er við 25 mílur frá grunnlínum undan Reykjanesi, en síðan 50 mílur frá grunnlínum Faxaflóa og 40 mílur frá grunnlínum Breiðafjarðar, síðan aftur 50 mílur frá grunnlínum fyrir Vestfjörðum, þó þannig að gert er ráð fyrir opnu hólfi fyrir hluta af Vestfjarðasvæðinu inn að 37–34 mílna frá grunnlínum frá 1. júní til 30. nóv. Síðan er lokað svæði fyrir öllu Norðurlandi og Austurlandi að þeim mörkum sem ég nefndi í upphafi.

Enda þótt þjóðverjar hafi aðallega stundað veiðar á þeim svæðum sem veiðiheimildirnar miðast við er þess að gæta annars vegar, að þeim er þar þokað miklu lengra frá ströndum en þeir hafa áður verið, og hins, að án samkomulags væri engin trygging fyrir því að þeir leituðu ekki bæði nær ströndum en samkomulagið segir til um né heldur að þeir mundu ekki leita á önnur svæði og með miklu fleiri skipum og þ. á m. frystitogurum. Í fyrri samningaviðræðum hafa þjóðverjar og jafnan krafist þess að komast inn að 12 mílum á a. m. k. tveimur til þremur stöðum, en nú fara þeir hvergi svo nálægt.

Ákvæði er um að þýskir togarar stundi ekki þær veiðar á hrygningarsvæðum og uppeldissvæðum sem íslenskum skipum eru bannaðar veiðar á, og er þar um mjög veigamikið atriði að ræða, enda eru friðunarráðstafanir höfuðmarkmið þess sem við erum að reyna að gera.

Í sjötta lagi eru ákvæði um að þýsk skip virði íslenskar reglur um möskvastærð og lágmarkslengd og þyngd á fiski sem leyfilegt er að veiða. Gildir það einnig um þær reglur sem settar kunna að verða síðar um aðra möskvastærð en þá sem nú gildir.

Þá ber þýskum togurum að tilkynna landhelgisgæslunni daglega um staðsetningu sína og mun það auðvelda störf landhelgisgæslunnar, bæði að því er varðar eftirlit og björgunarstarfsemi almennt.

Í áttunda lagi eru ákvæði um að ef ástæða er til að ætla að brot hafi verið framið á ákvæðum samkomulagsins gætu íslensk varðskip stöðvað hlutaðeigandi togara hvar sem er innan 200 mílna markanna og kvatt til þýskt eftirlitsskip til að sannreyna málsatvik. Þetta er sams konar ákvæði og notað var í samkomulaginu við breta frá 1973. Þegar það ákvæði var rætt á sínum tíma var það gagnrýnt á þeim grundvelli að framkvæmd íslenskra laga færi ekki fram nema breskt eftirlitsskip kæmi þar við sögu. Var því þá haldið fram að í raun og veru væri verið að afsala sér slíku valdi til annarra þjóða. Framkvæmdin á þessu ákvæði hefur verið þannig að hér er aðeins um það að ræða að gefa hinum aðilanum kost á að fylgjast með því sem skeður, en dómsmrn. tekur ákvörðun um það hvort skip sé strikað út af listanum. Þannig hefur þetta verið í framkvæmd og hefur ekki valdið neinum erfiðleikum.

Komið hefur fram sá skilningur á 8. lið samkomulagsins að íslenskir eftirlitsmenn megi því aðeins fara um borð í þýsk skip til að kynna sér leiðarbók og aflaskýrslur svo og rannsaka veiðarfæri og afla um borð að ástæða þykir til að ætla að brot hafi verið framið á samningi þessum. Þetta er ekki réttur skilningur á 8. lið. Skv. uppkastinu geta íslendingar farið um borð hvenær sem er.

Í níunda lagi er miðað við að samkomulagið sé gert til 2 ára frá dagsetningu orðsendingar. Þetta eru aðalatriði orðsendingarinnar. Síðan er gert ráð fyrir tveimur bréfum og er texti þeirra prentaður sem fskj. með till. Annað er um lagalega réttinn. þ. e. að erindaskiptin hafi engin áhrif á afstöðu aðila til hafréttarmála, og er þá miðað við að hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna sé enn eigi lokið. Hitt er um að framkvæmd samkomulagsins megi fresta ef bókun nr. 6 við samning Íslands við Efnahagsbandalagið hefur ekki tekið gildi innan 5 mánaða, og mundi það m. a. hafa í för með sér að hólf það undan Vestfjörðum, sem ég áðan nefndi, mundi ekki opnast ef slík frestun á sér stað. Hins vegar mundi slík frestun að sjálfsögðu ekki breyta neinu um gildistíma sjálfs samkomulagsins, og ég vil fullyrða að ákvæði þetta verði samstundis notað ef þau skilyrði verða þá fyrir hendi.

Ég mótmæli því að þetta ákvæði boði samninga við breta innan 5 mánaða. Þetta ákvæði er sett skv. kröfu íslendinga af þeim ástæðum að við viljum ekki vera bundnir af samningnum ef bókun 6 kemur ekki til framkvæmda.

Nú er það mikils virði að íslensk þjóð sé samhuga og standi saman um hagkvæma lausn á okkar vanda. Lokasigurinn er skammt undan og við væntum mikils af hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. En við megum ekki spilla þeim góða árangri sem þar hefur náðst, og það má ekki gleyma því að ráðstefnunni er ekki lokið. M. a. vegna þess verðum við að líta á það mál, sem hér er nú lagt fyrir Alþ., sem áfanga í baráttunni. Ég vona að málið fái góðar undirtektir hjá hv. alþm.

Áðan talaði hv. þm. Benedikt Gröndal um það að hér væri mikil mótmælaalda gegn samningum við útlendinga og vitnaði til útifundar í dag því til stuðnings. En eftir því sem ég veit best var fundarefni jafnframt það að mótmæla veru breskra herskipa á Íslandsmiðum. Skyldu ekki einhverjir hafa komið á fundina til að mótmæla því? Í gær var því haldið fram hér á hv. Alþ. að þjóðin hefði þegar svipt ríkisstj. og þm. stjórnarfl. umboði til þess að fjalla um landhelgismálið, svo mikil væri andstaða fólksins gegn samningum við útlendinga. Þessu vil ég eindregið mótmæla. Mitt umboð og okkar allra þm., jafnt stjórnarsinna sem stjórnarandstæðinga, gildir fram til næstu kosninga. Þangað til verðum við að axla þær byrðar, sem okkur kunna að mæta, og leiðarljós okkar á að vera samviskan. Og ég læt það verða mín síðustu orð í þessum umr. að á meðan ég hef umboð á Alþ. ætla ég mér að hlýða samvisku minni og gera það sem ég tel þjóðinni fyrir bestu, hversu hátt sem þeir láta er á móti minni skoðun kunna að vera. — Ég þakka áheyrnina.