27.11.1975
Sameinað þing: 25. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Kjarni þess máls, sem hér er rætt um, er einfaldur og skýr. Semja á við þjóðverja um 60 þús. tonna ársafla. Samningar við belgíumenn eru tilbúnir til undirskriftar og eru um 7 þús. tonn allt innan 50 mílna. Samningar við norðmenn eru líka tilbúnir og heimila 3 þús. tonn á ári. Samningar við færeyinga verða gerðir um svipað magn og þeir höfðu áður eða 20 þús. tonn. Þessir samningar nema samtals 90 þús. tonnum. Allir vita um tilboðið til breta um 65 þús. tonna ársafla. Þannig er óumdeilanlega um að ræða samninga um veiðar útlendinga á 155 þús. tonnum á ári og mikill meiri hluti þessa afla yrði veiddur innan 50 mílna markanna. Þetta er stefna ríkisstj. Þetta eru hennar tilboð og hennar samningar. Enginn getur neitað þessum staðreyndum.
Það er líka jafneinfalt og skýrt að fiskifræðingar okkar hafa sent frá sér alvarlega aðvörun um ástand fiskstofnanna við landið. Þeir leggja til að fastsettur verði hámarksafli af þorski, ýsu, ufsa og karfa sem veiða megi á miðunum við landið á næsta ári, Þessi hámarksafli er því sem næst hinn sami og heildarafli íslendinga af þessum fisktegundum hefur verið undanfarin ár. Það fer því ekkert á milli mála að annaðhvort verða útlendingar að hverfa af miðunum eða að minnka verður afla íslendinga eigi að fylgja ráðum fiskifræðinganna. Að semja við útlendinga um 155 þús. tonna aflamagn eða jafnvel meira við þessar aðstæður hlýtur að leiða yfir okkur hrikaleg vandamál, þó að Þórarinn Þórarinsson haldi að slíkir samningar væru til þess að vernda fiskstofnana við landið.
Í rauninni eigum við aðeins um tvo kosti að velja ef samið verður. Annar kosturinn er að halda áfram óbreyttum fiskveiðum okkar frá því sem verið hefur og láta skeika að sköpuðu um það hverjar afleiðingarnar verða. Fiskifræðingarnir segja að þá megi telja víst að hrun verði í fiskveiðunum eftir 2 ár. Hinn kosturinn er að gera öflugar ráðstafanir til að minnka okkar eigin veiðar sem samsvarar veiðiheimildum útlendinganna. Ýmsir opinberir aðilar eru þegar farnir að tala um þennan kost. Rætt er um að selja fiskibáta úr landi, jafnvel með vildarkjörum. Lagt er til að reynt verði að losna við þá skipasmíðasamninga sem gerðir hafa verið. Og fram eru komnar hugmyndir um að setja aflakvóta á alla útgerðarbæi í landinu og koma þannig á þvinguðum niðurskurði í fiskveiðum okkar. Um þessi risavöxnu vandamál fæst ríkisstj. ekki til að ræða — veitið því athygli í þessum umr. í kvöld. Hún fæst ekki til að svara hvað hún ætli að gera í fiskveiðimálum landsmanna eftir að samið hefur verið um 155 þús. tonna aflamagn til útlendinga.
Þetta, sem ég hef sagt, eru allt staðreyndir þess máls sem hér er til umr. Fram hjá því er ekki hægt að komast með neinum sjónhverfingum eða neinum vífilengjum. Samningurinn við þjóðverja um 60 þús. tonna ársafla í næstu 2 ár er aðeins fyrsti samningurinn sem nú er lagður fyrir Alþ. Hinir koma á eftir einn af öðrum skv. stefnu stjórnarinnar.
Stjórnin og talsmenn hennar í þessum samningamálum reyna með ýmsum hætti að réttlæta þessa samningagerð. Ein helsta afsökunin fyrir samningunum er sú, að nauðsynlegt sé að margumtöluð bókun nr. 6 við Efnahagsbandalagið komi til framkvæmda. Litlar skýringar eru hins vegar gefnar á þessari dularfullu bókun nr. 6, en hið sanna er að hún geymir ákvæði um mjög óverulegar tollalækkanir fyrir okkur, — ákvæði sem við eigum samningslegan rétt á og án allra tilslakana í landhelgismálinu, en skilyrðið um bókun nr. 6 er aðeins fyrirsláttur af hálfu ríkisstj. Í samningunum nú við þjóðverja var strax fallið frá þessu skilyrði þrátt fyrir margfalda svardaga einstakra ráðh. um að frá þessu skilyrði skyldi ekki vikið. Ljóst er nú öllum að bókun nr. 6 kemur ekki til framkvæmda fyrr en samið hefur verið við öll Efnahagsbandalagsríkin.
Í öðru lagi er reynt að réttlæta samninga við útlendinga nú með því að sýnt sé að íslendingar geti ekki varið landhelgina og að af þeim ástæðum sé hægt að ná meiri friðun á miðunum með samningum en án samninga. Þessi kenning hefur rækilega verið afsönnuð síðustu daga og víkur. Landhelgisgæslan hefur sýnt að með því að beita klippunum nokkurn veginn að fullu hefur hún komið í veg fyrir virkar veiðar bresku togaranna. Það er fölsun á staðreyndum að halda því fram að skýrslur um veiðar útlendinga sýni að þeir hafi veitt hér meira án samninga en eftir að samningar voru gerðir. Afli þjóðverja var 68 þús. tonn árið 1974. Af þeim afla veiddu þeir um 30 þús. tonn á miðunum fyrir utan 50 mílna mörkin. Ólöglega hafa þeir ekki veitt meira en 35–40 þús. tonn árið 1974, og skv. fréttum frá þýskum útgerðarmönnum telja þeir að heildarveiðar þýskra skipa á öllum Íslandsmiðum í ár verði ekki yfir 40 þús. tonn. Innan 50 mílnanna verða þá veiðar þeirra varla meira en 20–30 þús. tonn, því við vitum að þeir veiða það mikið utan 50 mílna markanna.
Við þetta má svo bæta því, sem allir vita, að því fer víðs fjarri að gæsluskipunum okkar hafi verið beitt af fullum krafti á undanförnum árum. Það er beinlínis broslegt að heyra hæstv. forsrh. og aðra framámenn í Sjálfstfl., sem mest hafa gumað af útfærslunni í 200 mílur, halda því fram, að við getum ekki varið landhelgina og af því sé best að semja. Hvers vegna völdu þeir þá ekki strax samningaleiðina, eins og bretar og þjóðverjar hafa alltaf prédikað, fyrst þeir vissu fyrir fram að einhliða útfærsla okkar var gagnslaus og að við gætum ekki varið landhelgina? Meintu þeir kannske aldrei neitt með öllu 200 mílna talinu?
Uppgjöf hæstv. forsrh. í 200 mílna málinu er svo gjörsamleg að nú telur hann í þessum umr. að það, að þjóðverjar fengu allt svæðið út í 200 mílur að þessu sinni í samningum jafngildi eiginlega því að þeir viðurkenni 200 mílurnar.
Þá er það ein röksemdin fyrir samningagerð við vestur-þjóðverja að þeir lofi nú að veiða ekki nema 5 þús. tonn af þorski og um þetta eru höfð mörg orð, mikill sigur, en skv. opinberum skýrslum veiddu þjóðverjar aðeins 5 500 tonn af þorski árið 1974 og sennilega mun minna á þessu ári. Það þurfti ekki að semja um nein 60 þús. tonn við þjóðverja og það í 2 ár til þess að ná því sem þegar hafði verið náð.
Þá er nýjasta röksemdin fyrir nauðsyn samninga við þjóðverja sú, að eftir að slíkir samningar séu gerðir geti landhelgisgæslan snúið sér af fullum krafti að bresku togurunum og þá geti íslendingar einbeitt sér í átökunum við breta. Hér er um augljós falsrök að ræða, því að eitt atriðið í samningi við þjóðverja nú er að þeir samningar eigi að falla úr framkvæmd eftir 5 mánuði ef bókun 6 hafi þá ekki komið til framkvæmda. Það hefur verið viðurkennt og liggur í augum uppi að þessa 5 mánuði, sem samningurinn ræðir um, á að nota til þess að ná samningum við breta, því að annars væru þessir samningar við vestur-þjóðverja hreinlega út í bláinn. Samningurinn við þjóðverja verður því ekki til þess að tekin verði upp harðari afstaða gagnvart bretum, heldur þvert á móti til að ryðja brautina fyrir samningum við þá.
Þannig eru öll rök ríkisstj. fyrir samningum haldlaus. Það er auðvitað gjörsamlega þýðingarlaust fyrir talsmenn ríkisstj. í þessu máli að reyna að drepa á dreif meginatriði þessa alvarlega máls með útúrsnúningum og blekkingum um liðinn tíma. Slíkum blekkingum hafa hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. reynt að beita hér í kvöld, með því t. d. að bera saman aflamagn, sem nú á að semja um, og aflamagn, sem rætt var um í samningum fyrir 2 eða 3 árum. Hvers vegna skyldu þeir nú bjóða bretum 65 þús. tonn, en áður var samið við þá um 130 þús. tonn. Vegna þess að það eru allt aðrir tímar nú og allt önnur skilyrði en þá voru. Það dytti auðvitað engum óvitlausum manni í hug að bjóða það sama nú og gat komið til mála að bjóða fyrir 2 eða 3 árum í sambandi við umþóttunartíma.
Hæstv. iðnrh. Gunnar Thoroddsen mun tala hér næst á eftir mér. Hann getur auðvitað haldið áfram fjasi af svipuðu tagi og hann gerði hér í umr. um þetta mál í gær og haldið því fram að Sjálfstfl. hafi fundið upp 200 mílna regluna og einn barist fyrir henni gegn öllum hinum. Slíkar fullyrðingar breyta auðvitað ekki þeirri staðreynd að vinstri stjórnin hafði lýst yfir stuðningi við 200 mílna auðlindalögsögu á erlendum vettvangi áður en þeir sjálfstæðismenn fóru að kvaka um það mál hér á landi. Og það breytir heldur ekki þeirri staðreynd, að ég flutti á vegum vinstri stjórnarinnar það frv. um heimild til 200 mílna útfærslu sem samþykkt var á Alþ. sem lög í maímánuði 1974 og 200 mílna útfærslan síðan var miðuð við.
Það vita allir, að við alþb.-menn vorum efnislega á móti samningunum við breta sem gerðir voru 13. nóv. 1973. En við stóðum þá frammi fyrir því að við gátum ekki komið í veg fyrir þá samninga eða fengið þeim breytt, vegna þess að Sjálfstfl. lýsti því yfir á Alþ. og í Morgunblaðinu dag eftir dag að það skipti ekki máli fyrir Framsfl. hvort hann hefði stuðning Alþb. eða ekki, Sjálfstfl. mundi tryggja framgang. málsins á Alþ.
Allt þras um þessi mál kemur auðvitað fyrirliggjandi samningum við vestur-þjóðverja í sjálfu sér ekkert við. Það er kjarni þess máls, sem nú liggur fyrir, sem skiptir öllu máli. Það er sú staðreynd að samkv. fyrirliggjandi samningi eiga þýskir togarar að fá að veiða allt árið um kring upp að 23 sjómílum frá landi á viðkvæmustu fiskimiðunum við Austurland, við Reykjanes, við Vestfirði og út af Breiðafirði. Og það er sú háalvarlega staðreynd að gera verður ráðstafanir til að minnka veiðar landsmanna sjálfra á þeirra eigin miðum þrátt fyrir alla útfærslu, þrátt fyrir allt talið um 200 mílur og þrátt fyrir það að útlendinga hafa þegar fengið umþóttunartíma í 3 eða 4 ár. Það er blátt áfram hrollvekjandi að hugsa til þess að nú skuli íslensk stjórnvöld ætla að semja um veiðar við útlendinga í stórum stíl til tveggja ára og án þess þó að fá nokkra minnstu viðurkenningu á fiskveiðilandhelginni.
Það kann að vera, að ekki verði hægt að koma í veg fyrir þá afglapa- og ógæfusamninga sem að hér er rætt um, þó að nær öll þjóðin hafi mótmælt og þó að áskoranir og mótmæli gegn þessari samningagerð hafi verið send ríkisstj. frá fólki úr öllum stéttum, úr öllum landshlutum og úr öllum stjórnmálaflokkum og nú síðast undirstrikuð með gífurlega fjölmennum fundum bæði í Reykjavík og víða annars staðar í landinu, þar sem undirstrikuð voru mótmæli gegn samningagerðinni við vestur-þjóðverja. Þó að þessi ógæfusamningur verði samþykktur á Alþ. á morgun er baráttunni í landhelgismálinu samt ekki lokið. Enn er eftir slagurinn um samninga við breta. Við skulum líka minnast þess að árið 1961 var gerður mikill ógæfusamningur í landhelginni, samningur sem Haagdómstóllinn dæmdi okkur öllum rétti til einhliða stækkunar á landhelginni, samningur sem Hagdómstóllinn dæmdi okkur eftir og bretar skáka nú í skjóli af. Þessum samningi var hrundið af þjóðinni í alþingiskosningunum 1971 og síðan af þeirri ríkisstj. sem skuldbatt sig til þess að framfylgja því.
Samningar um veiðar útlendinga, sem nú verða gerðir, verða að fara á sömu lund og samningarnir frá 1961. Þeir, sem samninga gera nú, verða að fá makleg málagjöld. Þeir útlendingar, sem nú taka við fiskveiðisamningum sem gerðir hafa verið gegn vilja mikils meiri hluta landsmanna og gegn gefnum loforðum, mega vita að þessir samningar verða ekki látnir standa í vegi þess að íslendingar geti lifað mannsæmandi lifi í landi sínu. En það sem nú skiptir máli, er að öll þjóðin skilji hvað er að gerast og um hvað raunverulega er barist. Þjóðin hefur enn einu sinni fengið staðfestingu á því að forustumönnum Sjálfstfl. er ekki hægt að treysta í landhelgismálinu og að loforð Framsfl. eru harla lítilsvirði þegar flokkurinn er í íhaldssamvinnu. En rétta lærdóma af slíkri dýrkeyptri reynslu verður þjóðin að læra að draga. — Góða nótt.