27.11.1975
Sameinað þing: 25. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (524)

80. mál, samkomulag við Sambandslýðveldið Þýskaland um veiðar þýskra togara

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Hér hafa nú farið fram býsna almennar umr. um þetta mál og alveg sérstaklega af hálfu þeirra sem styðja samningagerð við vestur-þjóðverja. Ég verð að segja það, að mér finnst að meginhluti þessara umr. snúist um mikil aukaatriði þessa máls.

Hér tala menn langt mál um að það sé að finna viss ákvæði í þessum samningum um möskvastærð. En allir þeir, sem þekkja þar til, sjá auðvitað að það, sem segir í þessum drögum sem menn kalla hér, en ég kalla samning, segir hreinlega ekki neitt, því að meginreglan, sem á að takast upp eftir nokkra mánuði, er svo til sú sama varðandi möskvastærð og þjóðverjar hafa notað og við erum nú farnir að nota hér að þó nokkru leyti. En möguleikarnir á því, að þeir taki hér upp enn annan möskva og við líka, eru sáralitlir á þessu tímabili sem samningurinn á að fjalla um. En um þetta geta menn auðvitað haldið langar ræður, rétt eins og þeir séu að frelsast í nýjum möskva.

Það er alveg sama að segja um þær ræður sem hér hafa verið fluttar um friðunarreglur, einhverjar nýjar friðunarreglur. Ekkert er nýtt í þeim efnum, — ekkert. Það eina, sem vitanlega vekur athygli manna sem virða fyrir sér þau nýju ákvæði sem er að finna í þessum nýja samningi, er að þar er að finna ákvæði um að það verði að tilkynna þjóðverjum út til Bonn um friðunarreglur af hálfu íslendinga, þær sem við kunnum að ákveða. Af þessu verðum við að draga þá ályktun, sem ég hef bent á hér áður, að vegna þessa getum við ekki búist við því að gagnvart þjóðverjum sé hægt að koma við svonefndri skyndifriðun sem við höfum talað mikið um að taka upp. Hitt hefur aldrei í öllum samningaviðtölum okkar við þjóðverja og ekki heldur við breta verið vandamál, að fá þá til þess að viðurkenna það að hlíta þeim reglum sem settar hafa verið með góðum fyrirvara varðandi almennar friðunarreglur sem gilda jafnt fyrir okkur og þá. Allar orðalengingar um þetta eru því í rauninni alveg út í bláinn og koma því stórpólitíska máli sem liggur á bak við þessa samningagerð, ekkert við og eru algjört aukaatriði,

Þá er svipað að segja um ræður manna varðandi það að við verðum að tryggja okkur markaði. Hvar er það að finna í þessum plöggum að það eigi að tryggja okkur einhverja markaði umfram það sem verið hefur? Ekkert einasta ákvæði er að finna um það. Þetta er ósköp svipað og þegar menn voru að tala um það í löngu máli hér áður að ef við yrðum aðilar að EFTA, þá opnaðist fyrir okkur 200 milljóna manna markaður o. s. frv. — eða er við urðum aðilar að Efnahagsbandalaginu. Allt þetta hefur reynst eintóm villukenning og ekki haft nein veruleg áhrif á okkar markaðsmál. Það eina, sem hér gæti komið til greina, er að við hefðum eitthvað eilítið meiri möguleika til þess að flytja út þær vörur, sem við annars framleiðum hér og flytjum út, inn í þessi markaðslönd. Ef bókun 6 kæmi til framkvæmda, þá er það rétt að þar er um nokkrar vörutegundir að ræða sem ekki hafa neina afgerandi þýðingu fyrir okkur. Ég veit mætavel að þeir aðilar sem eiga eða reka niðursuðuverksmiðjur, — þeir eru ekki margir í þessu landi, þeir hafa alltaf verið að gera sér vonir um það að ef þeir fengju eilítið lægri tolla að glíma við í vissum Evrópulöndum, þá gætu þeir e. t. v. komist þarna inn, og það er ekki alveg loku skotið fyrir það. En þar er ekki um neitt stórmál að ræða fyrir okkur, það vitum við. Það er eins og ég hef bent á, að ef bókun nr. 6 kæmi til framkvæmda eins og okkar útflutningi er háttað núna, þá hefur hún mest að segja til lækkunar á tollgreiðslum okkar af ísvörðum fiski sem við seljum bæði í Þýskalandi og Bretlandi. En hitt vitum við líka mætavel, að það er síður en svo hagkvæmt fyrir okkur þjóðhagslega séð að ýta undir útflutning á ísvörðum fiski. Það er reginmisskilningur sem hér hefur komið fram, að það ætti að vera eitthvert keppikefli fyrir okkur að opna slíka möguleika umfram það sem verið hefur. Þvert á móti, kæmi fyllilega til greina hreinlega að banna slíkan útflutning og standa að því að vinna þessi hráefni til meiri verðmæta hér í landinu við þær aðstæður sem við höfum. Menn tala um að við verðum að gæta að því að hafa einhverja möguleika til þess að selja okkar vörur. Auðvitað verðum við að geta sett okkar vörur á erlendum markaði, en slíkt kemur þessu máli ekkert við.

Eða þá fullyrðingar eins og sú, að með því að nú semjum við við þjóðverja um allt fiskveiðilandhelgissvæðið, alveg út í 200 mílur, þá felist í því óbein viðurkenning þjóðverja á okkar nýju fiskveiðilandhelgi. Eftir þessari reglu hefði samningur okkar frá nóv. 1973 við bretana átt að þýða viðurkenningu breta á 50 mílna landhelginni. Hefur það reynst svo? Ekki aldeilis. Bretar tóku þetta fram, og þjóðverjar taka þetta fram á alveg sams konar hátt, að þetta samkomulag þeirra við okkur breyti engu um afstöðu þeirra til þessara landhelgismála. Þetta er því eitt af þeim mörgu aukaatriðum sem menn eru að reyna að vefja þetta mál inn í, kemur í rauninni málinu ekkert við og fær ekki staðist ef menn vilja líta af einhverju raunsæi á málið. En þetta er auðvitað ágætt til þess að vefja einhverjum lopa utan um málið.

Svo auðvitað geta menn kryddað ræður sínar, eins og hér hefur verið gert af hálfu stjórnarsinna, með löngu máli um það og dularfullu tali að segja: Ja, voru ekki til klippur í tíð Lúðvíks, þegar hann var í ríkisstj.? Eins og það komi þessu máli eitthvað mikið við, eins og hér hefur þegar verið drepið á. Eða þá hitt, að endurtaka hér, eftir það sem annars hefur komið fram í þessum umr.: Samdi ekki Lúðvík við breta og gekk hann ekki fram fyrir skjöldu til þess að koma á þeim samningi? — eins og einn hv. stjórnarstuðningsmaður sagði hér. Og svo þetta: Bauð ekki Lúðvík þjóðverjum þetta og þetta og svona marga ferkm af hafsvæði í kringum landið? — Ekkert er nú í rauninni eins furðulegt af mönnum, sem eitthvað svolítið þekkja til fiskveiða, og það er spurning hvort ætti ekki að taka ákveðin skipstjórnarréttindi eða fiskveiðiréttindi af þeim mönnum sem þau hafa og tala á þann veg um fiskveiðar hér við landið, þegar þeir fara að mæla allt í ferkm. Þeir hefðu átt að mæla þetta í dagsláttum, það væri miklu hressilegra, hvað hér væri um margar dagsláttur að ræða. Það er líka aðferð til þess að mæla þetta út. Þeir vita mætavel að meira að segja innan 50 mílnanna er líklega mikill meirihluti hafsvæði þar sem enginn maður með nokkra glóru í höfðinu hefur reynt að renna fyrir fisk af því að það eru engin fiskimið þar undir. Þjóðverjar og aðrir þeir, sem eru að leita eftir samningum um fiskimið, hafa ekkert verið að sækjast eftir þessu. En þetta er ágætt fyrir menn sem vilja fela sig út úr einhverjum vandræðum í slíkum útreikningum: Þessi bauð svona margar dagsláttur og hinn svona margar. Spurningin í þessu máli er að sjálfsögðu um það, hverju er verið að fórna eða hvað er verið að semja um af okkar fiskimiðum. Og um þetta hafa auðvitað alltaf staðið deilurnar í öllum samningaviðræðum, bæði við þjóðverja og breta.

En í sambandi við þessi ræðuhöld, sérstaklega varðandi tilboð sem ég á að hafa gert sérstaklega til vestur-þjóðverja og eins samningaviðræðurnar við breta, þá þykir mér rétt að rifja það svolítið betur upp en gert hefur verið hér. Hæstv. dómsmrh. vék þó talsvert að því í sinni ræðu, því að hann mundi auðvitað allvel hvernig þessi mál bar að á sínum tíma.

Það var eitt sinn allmikið rætt um það að allir alþm., 60 talsins, hefðu orðið sammála 15. febr. 1972 hér á Alþ. um tiltekna stefnu í landhelgismálinu. Þetta samkomulag hafði haft sinn aðdraganda. Það voru ekki fáir fundir sem voru haldnir milli flokkanna um það að ná saman um þá samþykkt sem þá var gerð á Alþ., 15. febr. 1972. Þeir, sem í þeim samningum stóðu, vita mætavel að við þessa tilraun til samkomulags greindi allmikið á milli afstöðu okkar alþb.- manna og sérstaklega fulltrúa Sjálfstfl. Fulltrúar Sjálfstfl. gerðu kröfu um að inn í þetta samkomulag yrði tekið ákvæði um að því væri heitið sem stefnumiði frá Alþ. að það yrði haldið áfram samningaviðræðum við breta og þjóðverja til þess að leysa það vandamál sem allir sáu auðvitað fyrir að upp mundi koma við þá. Við neituðum þessu lengi vel og vildum hafa orðalag á þessu á annan veg, En við tókum þátt í þessu breiða samkomulagi sem síðan var gert, og með þessu samkomulagi var mótuð sú allsherjarstefna sem síðan var fylgt, að allir hefðu fallist á það að rétt væri að halda þannig á útfærslunni í 50 mílur að þeim, sem hér höfðu stundað veiðar lengi, yrði gefinn kostur á sanngjörnum umþóttunartíma, það væri rétt að semja við þá um nokkurn tíma um veiðirétt á hinu nýja og aukna landhelgissvæði okkar. Þetta var það sem allir flokkar sömdu um, og alveg sérstök krafa kom fram um þetta frá Sjálfstfl. En svo rísa hér upp ýmsir hv. þm. úr liði sjálfstæðismanna og ætla að kenna mér sérstaklega um það og okkur alþb.-mönnum að við höfum séð um það að standa þannig að málum að semja við breta eða veita þjóðum umþóttunartíma í sambandi við þessa útfærslu.

En það hafði ekki verið samið um það í þessu mikla samkomulagi hvað umþóttunartíminn ætti að vera langur eða hvað ætti að veita hinum ýmsu þjóðum, sem hér gætu komið til greina, mikil fiskveiðiréttindi innan hinnar nýju stækkuðu fiskveiðilandhelgi okkar. Sýndist auðvitað sitt hverjum í þeim efnum þegar kom til samningaviðræðna t. d. við breta og vestur-þjóðverja. Það vissu líka allir að þegar að því kom að gera samninginn við breta, sem samþ. var hér á Alþ. 13. nóv. 1973, þá töldum við alþb.-menn að það hefði verið gengið allt of langt í þá átt að veita bretum fiskveiðiréttindi hér við land. Það voru ekki aðeins þau fimm atriði sem hér voru talin upp af hv. þm. Jóni Árnasyni. Það voru aðeins þau atriði sem við vildum fá fram sem breytingar á samkomulagi sem var búið að negla sig allt of fast í. En við gerðum einnig þá aths. við þetta, að hæstv. dómsmrh. núv. og reyndar þáv. líka, í vinstri stj., hafi gengið: allt of langt í sambandi við það fiskmagn, sem um var samið, og alveg sérstaklega um þann tíma, sem veiðiréttindin áttu að gilda. En það kom auðvitað vel í ljós, um það leyti sem var verið að gera þessa samninga, að Sjálfstfl. bæði á þingi og alveg sérstaklega kom það fram í skrifum í Morgunblaðinu, hann eggjaði lögeggjan forsrh. í fyrrv. ríkisstj. um að halda áfram með þetta samkomulag, drífa það í gegn, Sjálfstfl. skyldi standa á bak við hann, hann þyrfti ekki á neinu atkv. að halda frá Alþb. Þetta mátti lesa í Morgunblaðinu dag eftir dag, og það var einmitt í krafti þess sem forsrh. í þeirri stjórn sagði við okkur sem með honum vorum í stjórn: „Ég mun slíta stjórnarsamstarfinu við ykkur ef ekki verður samkomulag um að fallast á þetta uppkast eins og það liggur fyrir.“ (Gripið fram í: Sagði hann þetta?) Já, hann sagði þetta. Það lá alveg skýrt fyrir, og það var einmitt út frá þessu, enda gáfum við yfirlýsingar um það á Alþ., þegar þetta var samþ., að það var vegna þess að við sáu.m að við gátum ekki komið í veg fyrir að þetta samkomulag yrði gert. En við hefðum átt hinn kostinn að vísu, að ganga úr ríkisstj. og hafa ekki lengur aðstöðu til þess að hafa áhrif þar á mjög þýðingarmikil mál sem lágu hálfkláruð — og einnig að afhenda landhelgismálið þeim aðilum sem alltaf, fyrr og síðar, hafa reynst svikulir í málinu og bilað fyrstir allra manna, en það eru forustumenn í liði Sjálfstfl. Við tókum því þá afstöðu að gefa hér skýra yfirlýsingu um álit okkar í málinu, en fallast eigi að siður á að þessi samningur yrði gerður. Þetta kom hér fram í öllum meginatriðum hjá hæstv. dómsmrh. Hann vissi þetta. Hann viðurkenndi þetta. Og það hafði aldrei verið nein deila um að þetta hafi verið afstaða okkar alþb.-manna. En svo geta menn sem sagt varðandi þetta mál sem hér liggur fyrir, haldið langar ræður, hinir ýmsu sjálfstæðismenn, og kennt okkur sérstaklega um þessa samninga sem gerðir voru við breta fyrst og fremst í hróksvaldi Sjálfstfl. Annars hefðu þeir ekki verið gerðir.

En þessi atriði öll, það eru ekki þau sem hér skipta máli varðandi þá till., sem hér liggur fyrir til afgreiðslu og þær deilur, sem hér eru raunverulega uppi um það hvort nú eigi að semja við vestur-þjóðverja og síðan marga fleiri um undanþágur til veiða í fiskveiðilandhelginni. Það eru ekki þessi atriði sem skipta máli. Það, sem máli skiptir og þeir stjórnarliðar fást ekki til að ræða um, það er hvað eigi að gera eftir að búið er að samþ. í fyrsta lagi samninginn við vestur-þjóðverja og síðan aðra þá undanþágusamninga, sem gert er ráð fyrir af ríkisstj. hálfu að gera, og standa líklega við það tilboð sem hún hefur þegar gert bretum, þó að ekki sé gert ráð fyrir meiru, að svara því hvernig þá eigi að fara með fiskveiðimálefni okkar íslendinga sjálfra. Um það fæst ekkert svar frá talsmönnum ríkisstj. Þeir skjóta sér undan því með öllu að ræða þennan gífurlega vanda sem upp kemur um leið og slíkir samningar eru gerðir um þetta mikla veiði úr okkar fiskstofnum, hvernig þá eigi að fara með okkar eigin fiskveiðimál. Hvernig stendur á því að þeir fást ekki til að ræða þetta mál? Eru þeir kannske hræddir um að þjóðin í landinu grípi enn þá fastar inn í en hún hefur gert enn varðandi þessa samningagerð, ef henni væri sagt hreint til um það hvað ætti að gera?

Það er eins og ég hef bent á í þessum umr., að það eru raunverulega aðeins tveir kostir sem við eigum völ á í málinu. Annars vegar er það, að við höldum áfram okkar fiskveiðum eins og verið hefur að undanförnu, gerum engar sérstakar ráðstafanir umfram hinar almennu sem við höfum sett lög um áður, með einhverjum. breytingum nú, en héldum okkar veiðum í öllum aðalatriðum áfram í óbreyttu formi. En þá ætti niðurstaðan að verða sú að áliti fiskifræðinga, sem hafa aðvarað okkur, að hér verði í rauninni algjört hrun í okkar fiskveiðum eftir 2 ár með alveg hrikalegum efnahagslegum afleiðingum. Þetta er annar kosturinn. Það er í rauninni að stíga alveg hreint yfir skýrslu fiskifræðinganna, láta sem við höfum hvorki heyrt hana né séð. Hinn kosturinn er að við tökum upp nýjar takmörkunarreglur á það sem við eigum að veiða, að það verði t. d. farið í að framkvæma þetta sem Fiskiþing hefur verið að fjalla um, að við seldum einhvern verulegan hluta af okkar fiskibátum úr lendi og við stöðvuðum með öllum mögulegum hætti þá smíðasamninga sem þegar hafa verið gerðir, kaupum okkur út úr því, losum okkur við þau nýju skip, — eða þá jafnvel, eins og einn hafði lagt til, að fara bara hreint í það að ekki einu sinni að selja þetta til fátækra þjóða, heldur bara fara í það í stórum stíl að höggva upp gömlu skipin okkar og senda síðan ríkissjóði reikninginn og óska síðan eftir því að ríkissjóður borgaði þetta út fyrir þá sem yrðu fyrir því. Um þetta hafa komið fram alvarlegar till. nú, og svo einnig að setja einhvers konar hámarksreglur á fiskveiðar okkar manna, t. d. á þann hátt sem ritari á Fiskiþingi var að tala um í sjónvarpinu, að setja hámarksaflakvóta á öll helstu fiskibyggðarlögin í landinu. Þá yrði væntanlega sagt við hvert byggðarlag fyrir sig: Ja, þið verðið að skera niður ykkar afla um ca. 20–30% frá því sem hann var á s. l. ári. — Um þetta hefur verið spurt, því að það sjá allir að annan hvorn kostinn verðum við að velja. En stuðningsmenn ríkisstj., þeir sem standa fyrir því að reyna að berja í gegn þessa till., um þetta atriði málsins vilja þeir ekki ræða, sem er þó höfuðatriði málsins.

Þeir eru þeirrar skoðunar eftir þeirra málflutningi að það sé ekki um annað að ræða fyrir okkur en að semja við útlendinga, a. m. k. við vestur-þjóðverja. Það er alveg augljóst mál. Að vísu er málflutningur af hálfu stjórnarstuðningsmanna hér mjög misjafn um það hvað eigi svo að gerast meira en að samþ. þennan samning við vestur-þjóðverja, og þá virðist mér nú satt að segja að hugsunin sé ekki allt of skörp hjá stuðningsmönnum stjórnarinnar. Sumir virðast hugsa sér framvindu þessara mála þannig að það verði bara samið við vestur-þjóðverja eða a. m. k. ekki samið við breta. Þá gefur það auðvitað alveg auga leið, eftir því sem hér hefur komið fram í þessum umr. frá hálfu ríkisstj., að þá stendur samningurinn við vestur-þjóðverja aðeins í 5 mánuði, því að bókun nr. 6 verður ekki komin til framkvæmda innan 5 mánaða, þá á að fresta framkvæmd samningsins, en verði ekki samið við breta, þá vitum við upp á hár að bókun nr. 6 kemur ekki til framkvæmda.

Þeir, sem hugsa sér því þróunina þannig, að það verði ekki samið við breta, en vilja endilega gera samninginn við vestur-þjóðverja með þessum ákvæðum í, eru þá að gera samning til 5 mánaða, gefa vestur-þýsku togurunum rétt til þess að veiða hér á tilteknum svæðum í 5 mánuði — búið, hefur ekkert meira gildi. Allur draumurinn um möskvann og friðunarreglurnar og allt er þotið út í vindinn, því að menn hafa ekki tíma til þess eð koma þessum miklu gæðum í framkvæmd. Til hvers eru menn nú að standa að samningum á þessa lund? Ég hef auðvitað þá skýringu eina, sérstaklega þegar ég heyri að hv. þm. Þórarinn Þórarinsson heldur því fram með allri sinni áróðurstækni að þetta sé nú meiningin, þetta eigi nú að vera svona. Þá veit ég að þetta eru aðeins eftirstöðvar af því þegar hann var að reyna að sannfæra sína samflokksmenn um að það væri óhætt að samþ. þennan samning, hann stæði bara í 5 mánuði og það væri alls ekki á leiðinni á eftir þessum samningi neinn samningur við breta og sé alveg óhætt að trúa því. Ég trúi því ákaflega illa að hv. þm. Þórarinn Þórarinsson meini þetta í raun og veru. Hinu trúi ég mætavel, að hann haldi þessu fram við ýmsa af sínum flokksbræðrum Ég trúi því ekkí að hann standi fyrir því að gera samninga um landhelgismálið á þessum grundvelli, aðeins til 5 mánaða og að öðru leyti þýðingarlausan samning með öllu. (Gripið fram í: Er það of stuttur samningur að mati hv. þm.?) Til 5 mánaða. Það leysir ekkert, nema þá að þjóðverjum er aðeins gefinn réttur til þess að fiska hérna eftir þessum samningi í 5 mánuði, en við fáum ekkert í aðra hönd, ekki neitt. Sama ástand er komið upp eftir 5 mánuði. Það er auðvitað vel hægt að gera svona samning við breta líka: Við skulum ekki vera að þræta um þetta í næstu 5 mánuði. Þið megið fiska eins og þið viljið. — Er það nokkur lausn á málinu? Það er engin lausn á málinu. Það er bara eftirgjöf hjá okkur gagnvart þjóðverjum í 5 mánuði og ekkert annað. Þetta auðvitað sjá allir. Þetta vita allir.

Nei, ákvæðið um 5 mánaða frestinn varðandi bókun nr. 6 getur auðvitað ekki þýtt nokkurn skapaðan hlut annan en að það eigi að notfæra sér þessa 5 mánuði til þess að ná samningum við breta og aðra Efnahagsbandalagsaðila, enda tel ég að þetta hafi komið skýrt fram á landhelgisfundi hjá hæstv. utanrrh. Þetta er auðvitað það eina rökrétta, að það eigi að reyna að koma þessari margumtöluðu og dularfullu bókun nr. 6 í framkvæmd á þessu 5 mánaða tímabili. Að búast við því, eins og ég held að hæstv. forsrh. léti orð falla um í þessum umr., að bann vildi nú vona að bretar reyndust ekki þeir ódrengir í þessu að fara að beita þessu neitunarvaldi í sambandi við bókun nr. 6, það væri a. m. k. rétt að vona það á meðan það væri ekki orðið. Þeir hafa sagt þetta alveg skýrt við okkur, og þeir segja: Við þurfum ekki einu sinni að tilkynna það. Það verður sjálfkrafa. Bókun nr. 6 fer ekkert í gildi fyrr en þið eruð búnir að semja við okkur. — Svona geta menn ekki grafið höfuðið í sandinn. Það er því enginn vafi á því að bókun nr. 6 fer ekkert í samband fyrr en búið er að semja við breta. Og ef menn keppa að því, eins og virðist vera markmiðið með þessari samningagerð við vestur-þjóðverja, þá verður vitanlega að snúa sér að því að semja við breta.

Þá er líka eðlilegt að um það sé spurt hvort ríkisstj. ætli þá, þegar til viðræðna við breta kemur, að semja um það tilboð sem hún hefur þegar gert, hvort hún ætlar að semja um 65 þús. tonnin eða hvort hún ætlar að hækka síg eitthvað frá því eða hvort hún ætlar að segja að boðið 65 þús. tonn standi ekki lengur og hún meini þá það með því að svo hátt boð verði ekki gert hér eftir.

Ég hefði nú gjarnan viljað, þó að nokkuð sé liðið á nóttu, — ég hafði ekki búist hér við löngum umr. og ætlaði nú að þola það að vera kyrr í mínu sæti þó að hér væri sagt ýmislegt misjafnt um mig og haldið fram býsna einkennilegum kenningum, — en mér finnst full ástæða til þess að vekja hér enn athygli á því að hæstv. ríkisstj. hefur ekki fengist til þess að tala hér um meginatriði þessa máls: Hvað á að leysa með þessari samningagerð, og hvernig á að mæta þeim vanda sem upp kemur ef áfram verður haldið þeirri samningastefnu sem við, sem erum á móti þessum samningi, lesum út úr þeim upplýsingum sem við höfum fengið?

Ég vil til viðbótar taka það fram, að það var ekki rétt, sem hæstv. utanrrh. gaf í skyn í útvarpsumr. í kvöld, að það hefði verið hægt að skilja orð mín svo í viðræðunum við þjóðverja á sínum tíma að ég gæti fallist á að þeir hefðu fiskmjölsverksmiðjur í gangi í sínum skipum. Þvert á móti kom það alveg skýrt fram í þeim viðræðum sem hann vitnaði til, að ég átti þar alllöng samtöl við hina þýsku aðila um að það yrði að gera glögga grein fyrir því hvernig skipin væru útbúin í þessum efnum. Og þegar það kom fram af hálfu þjóðverjanna að þeir hefðu fiskmjölsverksmiðjur í flestum sínum skipum, þá sagði ég að það væri sjálfsagt vitanlega að taka það til athugunar af hvaða stærð og gerð þetta væri, þar sem hér væri um samning að ræða fyrir skip sem veiddu fyrir ísfiskmarkað.

Ég tel að það orðalag, sem hæstv. viðskrh. sýndi okkur upphaflega, hafi verið um allt annað. Það var um það að þeir hefðu rétt til þess að vinna þann úrgang sem félli til og þeir skyldu ekki vinna í mjöl meira en sem samsvaraði þeim úrgangi sem með eðlilegum hætti félli til í sambandi við þeirra veiðar. Þarna er verið að gera ráð fyrir einhverri vinnslu um borð, en til þess er ekki ætlast, og við göngum yfirleitt ekki út frá því að hafa fiskmjölsverksmiðjur í skipum sem við gerum almennt út á ísfisk, teljum að það sé hættulegt og mjög auðvelt að misnota það. Það er sem sagt rangt að ég hafi fallist á það. Það sagði ekki heldur í því orðálagi sem hann vitnaði til, heldur aðeins hitt, að það væri sjálfsagt að taka þetta nánar til athugunar.

Ég tel enn að það sé galli á þessari samningagerð, en auðvitað miklu minni en þau aðalatriði sem ég hef rætt hér, — ég tel það galla á þessari samningagerð að það er aldrei talað um annað en að veita tilteknum skipum rétt til fiskveiða á miðunum við Ísland. Það er ekki um það talað í samningagerðinni sjálfri að hér eigi að vera um ísfiskveiðiskip að ræða, og þar skilur auðvitað ansi mikið á milli. En það er vonandi hægt að fá það á hreint síðar, þannig að þarna þurfi ekki að vera verulegur ágreiningur á milli aðila.

Ég skal svo ekki lengja þetta miklu meira að sinni, en vil nú segja það, að ef þessar umræður halda hér eitthvað áfram, þá fyndist mér eðlilegt að hæstv. ríkisstj. vildi eitthvað ræða aðalatriði þessara mála, hvernig á að fara með okkar fiskveiðimálefni, íslendinga, til hvaða ráða á þar að grípa, því að það er ekki hægt að loka augunum fyrir þeim gífurlega vanda sem upp kemur ef á að fara þessa samningaleið í jafnríkum mæli sem ríkisstj. stefnir augljóslega að að mínum dómi. Það er ekki heldur hægt að nota þá afsökun jafnmikið og hér hefur verið gert af hálfu stjórnarinnar, að hér sé bara um karfa og ufsa að ræða og það þurfi að hlífa þorskinum. Svona geta menn ekki talað um þessi mál ef þeir hugleiða málið eitthvað betur.

Það er vitanlega ekki hægt að ráðstafa miklu af karfaaflanum hér á Íslandsmiðum og ufsaaflanum frá okkar skipum. Hér er verið að tala um að ráðstafa talsvert miklu frá okkar skipum án þess að okkar skip sæki þá tilsvarandi meira í þorskstofninn, nema það eigi að fara þá leið að höggva þarna niður okkar veiði. Þetta byggist að sjálfsögðu á því að heildaraflamagnið, sem talað er um af fiskifræðingunum að megi taka úr þessum stofnum, þessum fjórum stofnum, það er svipað þeim afla sem við höfum veitt og veiðum sjálfir. Það er því í rauninni nokkurn veginn sama í hvorn endann menn fara. Ef þeir ráðstafa allt of miklu af karfanum eða ufsanum, þá verður það til þess að við sækjum meira í hina stofnana, nema þá við eigum að minnka okkar aflamagn. En hitt er auðvitað alveg ljóst, að það aflamagn, bæði af ufsa og karfa, eins og ég hef minnst á áður í þessum umr., sem þjóðverjum er ætlað skv. þessum samningum, það er orðið svo mikið að þegar við tökum tillit til okkar veiði, eins og hún hefur verið af ufsa og karfa, þá erum við komin allmikið upp fyrir þau mörk sem fiskifræðingarnir tala um að megi leyfa að taka úr þessum stofnum. — Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar að sinni.