02.12.1975
Sameinað þing: 27. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (547)
296. mál, Bessastaðaárvirkjun
Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Hér hef ég að lokum leyft mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. iðnrh. um Bessastaðaárvirkjun. Hún er svo hljóðandi:
„Hvað hefur miklum fjármunum verið varið á þessu ári til athugana og undirbúnings Bessastaðaárvirkjunar í Fljótsdal, þar með talin vegagerð ?“
Miklar sögusagnir ganga um land allt um furðulega fjársóun og umstang við rannsókn og undirbúning Bessastaðaárvirkjunar, sem hátt settir menn í orkumálum okkar eiga þó að telja að aldrei komist á vegna vatnsskorts. „Það er eins og vera að virkja vatn sem ekki er til í dalnum,“ orti einu sinni austfirðingur um Grímsárvirkjun. Þó er talið að um 100 millj. kr. hafi farið í vegagerð í sambandi við þessa virkjun, og virðist raunar auðsætt að farsælla hefði verið að veita það fé, sem þarna er urðað, í flutningslínu frá Kröflu svo að umframrafmagn þaðan yrði austfirðingum til gagnsemdar meðan væri verið að finna þeim í raun hagsama heimavirkjun.
Einhverjum kann að finnast framangreind fsp. mín slettirekuskapur í garð austfirðinga. En hún er ekki hugsuð á þann veg heldur er ég að draga að því nót með öllum þeim fsp., sem ég hér hef borið fram við iðnrh., að almenningi verði ljóst hvernig ekki á og ekki má vinna að virkjunarmálum okkar né öðrum framkvæmdamálum. Það verður að vinna eftir þrauthugsuðum áætlunum og ítarlegum rannsóknum um þörf, hagkvæmni og fjárhagsgetu þjóðarinnar. Fyrr var þörf, en nú var nauðsyn í þeim kreppudal sem þjóðin er nú stödd í.
Það er þetta sem ég vil undirstrika, þótt ég út af fyrir sig virði og meti framkvæmdagleði ráðh. og fagni út af fyrir sig úrlausnum þeim sem okkur norðlendingum eru nú búnar, með þeim fyrirvörum að þær útleiðist vel. Hitt þykir mér dapurlegur skuggi á, að þær hafa orðið líður í því fjárhagslega öngþveiti sem fyrrv. og núv. ríkisstj. hafa að verulegu leyti leitt yfir þjóðina.
Ég ætla að leyfa mér aðeins að svara því sem kom hér fram hjá hv. þm. Ragnari Arnalds og Ingvari Gíslasyni. Mér er alveg ljóst að línur, flutningslínur eða tengilínur, kringum allt land eru nauðsyn, En það er bara spurningin um það, eftir hvaða röð á að taka þessar framkvæmdir. Ég tel, og ég hygg að það séu fleiri sem telja, að það hefði ekki átt að ráðast við þær aðstæður sem nú eru í fjármálum þjóðarinnar nema í aðra hvora þessa framkvæmd, hitt hafi verið bruðl og sóun á fjármunum þjóðarinnar eins og málum er nú komið. Þetta vil ég að mönnum sé ljóst að vakti m. a. fyrir mér í mínum fyrirspurnum.
Ég veit ekki hvað ættfróður Ingvar Gíslason er, en ég hygg að hann viti harla lítið hverjir mínir sagnarandar eru varðandi Kröfluvirkjun. Þeir eru furðumargir og sennilega miklu fleiri en hann hefur hugmynd um. Jafnvel eru þeir ekki fjarskyldir Orkustofnuninni. En ég held að þeim litist ekkert allt of vel á framkvæmdirnar sem þarna eru í gangi. Og þó að þeir vafalaust vilji það, þá er ég ekki viss um að þeir ráði við það að ná tökum á þessari holu sem hefur verið að angra þá núna í haust og vetur. En við skulum vona það öll að þessir ágætu og vel ættuðu sagnarandar mínir hafi rangt fyrir sér. Við skulum vona það. En því miður hef ég nokkuð ríka ástæðu til þess að ætla að það sé ekki vist.