02.12.1975
Sameinað þing: 27. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (550)
296. mál, Bessastaðaárvirkjun
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Út af þeim athugasemdum sem komið hafa fram hér um að það hafi verið geysileg mistök af mér sem formanni Kröflunefndar að þiggja boð frá framleiðandanum í Japan, jafnvel þó að það hafi verið nefndinni að kostnaðarlausu, þá vil ég aðeins skýra það að ég held einmitt að þessi ferð mín til Japans hafi verið stórlega til gagns. Mér fannst ég hafa fulla ástæðu til þess að þiggja þetta boð, skoða hvernig framkvæmdum væri háttað hjá þessum aðilum og yfirleitt kynna mér framvindu mála, því að það er mjög þröngur afgreiðslutími á þessum vélum, — og einnig fróðlegt að sjá hvernig þarna væri til hagað.
Ég vil svo aðeins bæta því við í sambandi við þessa margumtöluðu Japansferð, að samkv. þeim samningum sem gerðir voru um þessi kaup, sem voru nálægt 2 milljörðum yena var eins og oft er í sambandi við slíka samninga ákvæði um að þarna skyldi fara fram bankaábyrgð. Bankaábyrgð kostar geysilega peninga, það vita þeir sem eru kunnugir slíkum hlutum, og þá var þetta, að við hefðum átt að opna bankaábyrgð hér sem hefði svo verið framkvæmd og staðfest af banka úti í Japan. Ég hafði talað um það við umboðsmenn framleiðenda hérna og umboðsmann þeirra í London hvort ekki mundi vera hægt að komast að samningum um það við þessa aðila að þeir slepptu því að þessi bankaábyrgð færi fram á þann veg að hún yrði staðfest af japönskum banka. Þetta var talið ómögulegt. Ég gat náð í háttsetta menn í Japan, sem stjórna þessu fyrirtæki, og tókst svo til að það var fallið frá þessu ákvæði samningsins. Nú vil ég biðja menn að reikna út hvað slíkur ábyrgðarkostnaður, staðfestingarþóknun hins erlenda aðila mundi verða í 7 ár. Ætli sá kostnaður hefði ekki orðið nokkrum millj. meiri en þó að ferðin til Japans hefði verið greidd af Kröflunefnd?