02.12.1975
Sameinað þing: 27. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 932 í B-deild Alþingistíðinda. (551)

296. mál, Bessastaðaárvirkjun

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég stend ekki upp til að tala um Kröflu eða hv. þm. Jón Sólnes og ferð hans til Japans, það virðist vera gaman að vera þar. En ég spyr um Bessastaðaárvirkjun sem er hér til umr. og mér skilst að sé búið að verja 136 millj. kr. til rannsókna. En mér er ekki ljóst hvort er búið að ákveða að virkja — eða er þetta allt saman kostnaður án þess að nokkur ákvörðun liggi fyrir um 30 mw. virkjun sem heimild var veitt til á síðasta þingi? Þetta er ákaflega hár rannsóknarkostnaður.

Ég hef þær fréttir frá sérfræðingum að þeir telja raunar slíka virkjun þarna, 30 mw., mjög vafasama, ekki síst með tilliti til annarra möguleika sem þarna eru fyrir hendi. Sumir virðast telja að allur þessi kostnaður sé fremur til undirbúnings Fljótsdalsvirkjunar heldur en Bessastaðaárvirkjunar. Ég veit ekki hvort hæstv. ráðh. getur svarað þessu, en mín spurning er sú, ef hann treystir sér til að svara því : Er nokkur ákvörðun enn tekin um virkjun Bessastaðaár upp á 30 mw.?