02.12.1975
Sameinað þing: 27. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (555)
299. mál, dýpkunarskip og dýpkunarframkvæmdir
Fyrirspyrjandi (Sigurlaug Bjarnadóttir) :
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 51 fsp. til hæstv. samgrh., svo hljóðandi:
„1. Hvað líður kaupum eða leigu á nýju dýpkunarskipi samkv. ályktun frá síðasta þingi?
2. Hver hafa verkefni dýpkunarskipsins Grettis verið á yfirstandandi ári?
3. Hve margar hafnir á landinu bíða nú dýpkunarframkvæmda?
4. Hefur verið leitað til innlendra aðila sem hugsanlega gætu tekið að sér sams konar verkefni og Grettir?“
Þáltill. sú, sem um getur í 1. lið fsp., var borin fram af öllum Vestfjarðaþm. á síðasta þingi og var afgreidd sem ályktun Alþ. Hér var og er um mikið nauðsynjamál að ræða. Dýpkunarskipið Grettir er nú um það bil að syngja sitt síðasta, enda orðinn um 30 ára gamall, en í sumar var þó gerð á honum klössun sem tók um hálft ár, á meðan margar hafnir á landinu biðu aðkallandi dýpkunarframkvæmda. Að klössun lokinni tók Grettir aftur til við Grindavíkurhöfn sem hann hefur nú unnið við í um það bil tvö ár samfleytt með hléi á meðan á viðgerð stóð, og enn biða hinar hafnirnar og leggja ný og fullkomin fiskiskip í stöðuga áhættu við of grunna innsiglingu.
Það er sýnt að framkvæmdir við hafnir landsins hafa engan veginn haldist í hendur við hina stórfelldu aukningu fiskiskipastólsins og því nauðsynlegt að hugsa fyrir nauðsynlegum tækjakosti til að bæta þar úr eigi ekki illa að fara. Það eru raunar ekki aðeins fiskiskip sem þurfa á góðum höfnum að halda. Vöruflutningaskip okkar þurfa að komast inn á þær hafnir sem þau flytja vörur á. Það vildi svo til að er ég í haust var stödd vestur á fjörðum, í Bolungarvík, þá hafði vöruflutningaskip úr Reykjavík orðið að sigla fram hjá höfninni í Bolungarvík hlaðið vörum þangað og sigla inn á Ísafjörð, og síðan varð auðvitað að flytja landleiðis vörur til Bolungarvíkur út Óshlíð. Þarna skeður auðvitað tvennt í senn : Bolungarvíkurhöfn missti af aðflutningsgjöldum af vörum og á lagðist aukakostnaður með bifreiðaflutningum út Óshlíð.
Nú er það svo að til eru íslenskir einkaaðilar sem hafa yfir að ráða allgóðum dýpkunartækjakosti, og hafa alþm. nýlega fengið kynningarbréf í hendur frá þess konar fyrirtæki, Björgun hf.
Björgun hf. býður fram þjónustu sína við hvers konar hafnarframkvæmdir og dýpkunarframkvæmdir, bæði við dælingu og gröft á hörðum botni, og telur sig geta boðið hagkvæmari kjör og meiri afköst en tæki Hafnamálaskrifstofunnar. Því er spurt um það í síðasta lið fsp. hvort leitað hafi verið til innlendra aðila sem hugsanlega gætu tekið að sér sams konar verkefni og Grettir og þannig flýtt þessum bráðnauðsynlegu framkvæmdum.
Í nýrri reglugerð um hafnamál er gert ráð fyrir að Hafnamálastofnunin annist hafnarframkvæmdir eða framkvæmdin sé boðin út. Væri í alla staði eðlilegt og æskilegt að útboð á frjálsum markaði væri tíðkað meira en verið hefur hingað til og því sjálfsagt að kanna þá möguleika.