02.12.1975
Sameinað þing: 27. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (556)

299. mál, dýpkunarskip og dýpkunarframkvæmdir

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson) :

Herra forseti. Á þskj. 51 er fsp. frá hv. 9. landsk. þm. sem er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta.

„1. Hvað líður kaupum eða leigu á nýju dýpkunarskipi samkv. ályktun frá síðasta þingi?

2. Hver hafa verið verkefni dýpkunarskipsins Grettis á yfirstandandi ári?

3. Hvað margar hafnir á landinu biða nú dýpkunarframkvæmda?

4. Hefur verið leitað til innlendra aðila, sem hugsanlega gætu tekið að sér sams konar verkefni og Grettir?“

Svar það, sem ég hef við þessum fsp. hv. 9. landsk. þm., er frá Hafnamálastofnuninni. Nú verð ég að biðja afsökunar á því að röð svaranna er ekki í samræmi við fyrirspurnina.

Hafnamálastofnunin gerir út tvö dýpkunarskip eða tæki: dýpkunarskipið Gretti og dæluprammann Hák. Grettir er gamalt grafskip, keypt til landsins fyrir 30 árum. Hann hefur samt öflugasta dýpkunartækið á landinu. Hann hefur s. l. tvö ár unnið að dýpkun Grindavíkur, en þar hefur verið unnið að hafnargerð undanfarið, fjármagnað með láni Alþjóðabankans. Grettir er mjög gamalt tæki, en honum hefur verið vel við haldið. Talið er eðlilegt að nota hann nokkur ár enn.

Hákur er miklu nýrra tæki. Hann er keyptur hingað til lands árið 1967. Hákur hefur reynst mjög afkastamikill við hafnargerðir og hefur þann kost að hann dælir efni því, er hann dælir, upp á land þar sem uppfyllingar er þörf. Hákur er útbúinn með skera á inntaki dælurörsins og hann getur dælt upp efni úr höfnum þar sem dæluskipi án slíkra skera er ókleift að dýpka, auk þess sem hann ristir minna en önnur slík skip. Hákur hefur á þessu ári dælt úr höfninni í Ólafsfirði, Dalvík, við Karlsey og Ólafsvíkurhöfn. Hákur er nú í allmikilli viðhaldsviðgerð, en dæluútbúnaður sem þessi þarfnast mikils viðhalds. Þegar þessum viðgerðum verður lokið verður hann jafngóður og nýr.

Líkleg verkefni fyrir Gretti á næsta ári verða dýpkanir í Bolungarvík, Skagaströnd, Húsavík og Neskaupstað. Hákur mun eftir áramótin líklega hefja dælingu í Hafnarfirði, dæla síðan á Grundarfirði, á Bíldudal og Þingeyri, síðan á Hvammstanga, Sauðárkróki og Hrísey. Einnig verður stórt verkefni dýpkun Þorlákshafnar.

Ef litið er á verkefni næstu ára ber mest á verkefnum sem leysa má með dælum. Miklu minni eru þau verkefni sem nota verður við graftæki eins og Gretti. Sprenginga er þörf, en oftast takmarkað á hverjum stað.

Undanfarið hefur Hafnamálaskrifstofan unnið að könnun á því hvers konar dýpkunartæki væri hagkvæmast að bæta við tækjakost stofnunarinnar. Áhuginn beinist einkum að fleka á fótum. Slíkur fleki mundi á margan hátt henta vel hinum fjölbreytilegu verkefnum hér á landi, sem borðpallur fyrir krana við dýpkanir, vinnupallur við þilrekstur og grjótútlagningu og fleira. Segja má að ekkert eitt tæki hafi jafnmarga möguleika við hafnaframkvæmdir. Verð á slíkum fleka er nú af stærstu gráðu 150 millj. kr. Einnig kemur til greina að hafa sérstakan fleka fyrir gröft og annan fyrir bortæki.

Á vegum Hafnamálastofnunarinnar var nýlega skoðuð stór fljótandi grafskófla í Norður-Noregi. Grafskófla þessi er mjög öflug og mundi henta vel við viss verkefni. Það mun standa okkur til boða að leigja hana í eitt ár eða svo. Vegna þess hversu dýrt yrði að flytja hana hingað yrði það ekki gert nema umrædd verkefni yrðu unnin í einu lagi. Þyrftu því að vera til þessara nota töluverðar fjárveitingar. Sérstaklega kostnaður við gröft slíkrar skóflu virðist vera af líkri stærðargráðu og hjá Gretti.

Nokkur fjöldi dýpkunartækja er til hér í landi í einkaeign. Hér er eingöngu um dælutæki að ræða. Ekkert þeirra hefur skera eins og Hákur. Það hefur komið sér vel að geta leigt þessi tæki þegar Hákur hefur verið bundinn annars staðar og legið hefur á takmörkuðum dýpkunum sem þessi tæki hafa ráðið við, en það er nær eingöngu tiltölulega laus sandur og leir. Reynst hefur illa að ætla þeim erfið verkefni.

Í dag má segja að Hákur uppfylli þá þörf sem er fyrir dælingu, dæluskip innan ramma þeirrar fjármögnunar hafnagerða sem fyrir hendi er. Ef á henni yrði skyndileg aukning gæti orðið þörf fyrir fleiri tæki á þessu sviði, en æskilegt væri að þau gætu leyst erfiðari verkefni en dælingu lausra efna.

Að endingu má benda á það almennt, að ekki er réttlætanlegt að kaupa dýr og afkastamikil tæki til hafnagerðar nema fjármagn til hafnagerðar sé svo mikið að þörf sé fyrir tækin og þau geti unnið við þau verk sem þau eru miðuð við.

Þetta svar mitt verður að nægja við fsp. hv. þm. Ég endurtek, að ég bið afsökunar á því að röðin í svarinu er ekki eins og í fsp., en ég vona að það nægi.